Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

„Bið eftir heilbrigðisþjónustu og skert aðgengi getur verið dýrkeypt einstaklingnum og samfélaginu“

Willum Þór Þórsson.
Willum Þór Þórsson.

Willum Þór Willumsson heilbrigðis­ráðherra segir að „aðgangur að heilbrigðis­þjónustu er réttlætismál og áherslumál ríkis­stjórnarinnar. Það er mikilvægt að allir hafi jafnt aðgengi að bestu heilbrigðis­þjónustu sem völ er á hverju sinni. Aðgengi sé óháð kyni, stöðu, bakgrunni, efnahag og búsetu.“

Bætir við:

„Bið eftir heilbrigðis­þjónustu eða skert aðgengi getur verið dýrkeypt einstaklingnum og samfélaginu. Biðlistar endur­spegla álag á kerfið og lengdust þeir í heims­faraldrinum. Ef ekkert er að gert mun gliðna meira á milli þarfarinnar fyrir heilbrigðis­þjónustu og þeirrar þjónustu sem að við getum veitt. Það er ljóst að nýta þarf allt heilbrigðis­kerfið til þess að vinna á biðlistum og hefur undir­búningur þess efnis verið í forgangi í heilbrigðis­ráðuneytinu undan­farið.“

Willum nefnir að „til að bregðast við þessari stöðu hafa Sjúkra­tryggingar Íslands samið við Klíníkina um kaup á endómetríósu­aðgerðum til að vinna niður biðlista og bæta aðgengi að þeim óháð efnahag. Það er mikið gleðiefni að samningar hafi náðst um þessar mikilvægu aðgerðir. Eins er samningurinn mikil­vægur liður í framtíðar­fyrir­komulagi þessara aðgerða og annarra.“

Hann segir að „endómetríósa er lang­vinnur, fjölkerfa sjúkdómur sem leggst á einn af hverjum tíu leghafa. Orsökin er óþekkt en sjúk­dómurinn getur gengið í erfðir. Því miður er greiningar­tími sjúk­dómsins oft langur þar sem um flókna sjúkdóms­mynd er að ræða. Þekkingin á sjúk­dómnum er alltaf að aukast en enn er ekki til lækning við honum.

Kviðarhols­speglun er bæði notuð til greiningar og meðferðar. Stundum þarfnast hver einstaklingur fleiri en einnar aðgerðar og þær geta verið nokkuð umfangs­miklar þegar fjarlægja þarf til dæmis leg eða eggja­stokk.“

Willum segir að „samtök um endómetríósu á Íslandi hafa verið ötul við að fræða samfélagið um sjúk­dóminn og beita sér fyrir bættri heilbrigðis­þjónustu við þá einstaklinga sem eiga við sjúk­dóminn að etja. Samtökin hafa allt frá árinu 2006 haft það að leiðar­ljósi að vinna með heilbrigðis­yfirvöldum og heilbrigðis­starfsfólki að markmiðum sínum. Hið óeigingjarna starf félagsins, sem hefur einkennst af yfirvegun og fagmennsku, hefur ekki aðeins leitt til umbóta í heilbrigðis­þjónustunni heldur líka vitundar­vakningar um sjúk­dóminn í samfélaginu almennt.“

Heilbrigðis­ráðherra bendir á að á „Land­spítala var stofnað þver­faglegt endómetríósu­teymi árið 2017. Nú er Klíníkin einnig að byggja upp sérhæfða þjónustu fyrir þennan sjúkdóm og er jákvætt að úrræðum sé að fjölga og þjónustan að eflast. Einnig gegna aðrar starfs­stöðvar, sjálfstætt starfandi kven­sjúkdóma­læknar og heilsu­gæslan mikilvægu hlutverki í heilbrigðis­þjónustu við þennan flókna og lang­vinnan sjúkdóm.

Það er ljóst að teymis­vinna er ekki aðeins nauðsynleg innan heilbrigðis­stofnanna heldur líka milli stofnanna, úrræða, félaga­samtaka, yfirvalda og einstaklinga. Er þessi samningur því mikilvægt skref í þeirri vegferð að taka saman höndum um að stytta bið og jafna aðgengi. Samvinna og samfella eru lykil­breytur í því að láta heilbrigðis­kerfið ganga upp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag