Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Vandræðaleg mistök Önnu á Tenerife: „Ég reyndi að kalla í hann en hann svaraði engu“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Anna Kristjáns­dóttir skrifar vinsælustu og að margra mati skemmtilegustu Facebook-færslur landsins ef ekki Norður­landanna, í það minnsta. Færslurnar eru vanalega stút­fullar af kalhæðni og húmor en örsjaldan glittir í alvarlegan undirtón en þær fjalla um líf hennar í Paradís sem aðrir kalla Tenerife.

Í nýjustu færslu Önnu er hægt að sjá allt þetta, húmor, kaldhæðni og alvarleikann blákaldann. Í fyrri­partinum talar hún um gamlan skóla­félaga og breskan tvífara hans:

„Dagur 1193 – Óskar.

Einn af skóla­félögum mínum í Vélskólanum var Óskar, strákur aðeins eldri en ég frá Skaga­strönd, einn af þessum rólegu hæglátu drengjum sem voru ekkert að flíka með kunnáttu sína en samt vinir vina sinna. Hann með sitt eldrauða hár eins og sannur Íri, en alltaf í góðu skapi. Sumarið 1975 vorum við á sinn hvorum japanska skut­togaranum, hann á Arnari, ég á Vestmannaey. Svo gerðist það sem endranær að við lukum námi við Vélskólann, hann 1976, ég 1977 og hann hvarf mér sjónum. Frétti þó eitthvað af honum í Lands­smiðjunni. Áratugum síðar er hann orðinn tækja­vörður í Vélskólanum, en ég í starfi hjá Orkuveitu Reykja­víkur, en átti það til að reka inn nefið hjá kennurum Vélskólans í verklegum fögum þegar verið var í eftirlitinu með borholum og dælu­stöðvum og sníkja kaffi hjá kollegunum og hitti oft Óskar.Þetta er auðvitað allt liðin tíð, Óskar kominn yfir sjötugt og sjálf er ég sjötug og því erum við engir unglingar lengur.Í fyrra­kvöld sat ég á húsbarnum og kneifaði mitt öl er Óskar gekk framhjá. Ég reyndi að kalla í hann en hann svaraði engu og gekk framhjá og í burtu. Í gærkvöldi sátum við Drífa á húsbarnum er Óskar gekk framhjá, en þá áttaði ég mig á að þessi Óskar var mun yngri en Óskar okkar, vart meira en fimmtugur. En það má Óskar vita að hann á breskan tvífara sem er staddur á Tenerife þessa dagana.

Ég reyni að ná mynd af honum einhvern næstu dagana.“

Í seinni hlutanum mælir Anna eindregið með því að fólk sem komið er yfir léttasta skeiðið fari í ristil­speglun, það sé dauðans alvara:

„Góð vinkona, reyndar ein af mínum uppáhalds er stödd á Íslandi þessa dagana vegna veikinda móður sinnar. Hún notar tækifærið og fer í allsherjar læknis­skoðun í leiðinni, þar á meðal ristil­speglun. Eftir að hafa lent í slíku get ég fullvissað hana og aðra um að það er „pís of cake“, en samt nauðsynlegt fyrir allt fólk sem er komið yfir fimmtugt.Ég man þegar ég fór í slíka rannsókn fyrir fáeinum árum síðan og læknirinn úrskurðaði í kjölfarið að ristillinn í mér væri eins og nýskeint barns­rassgat. Himin­lifandi ánægð hélt ég heim eftir rann­sóknina en er ég kom heim hitti ég gamlan skips­félaga á bíla­stæðinu fyrir utan blokkina mína, en móðir hans bjó í þarnæsta stiga­gangi. Hann tjáði mér að hann væri hættur að vinna, hefði greinst með ristil­krabbamein. Hann lést þremur mánuðum síðar.Sem ég segi. Öll yfir fimmtugt fari í skoðun áður en það er um seinan. Þetta er spurning upp á líf eða dauða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning