Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ísland þorði ekki að taka afstöðu til málstaðs Palestínu: „Ísland endurtekur ranga ákvörðun!“

Fulltrúi Íslands sat hjá í kosningu nefndar Sameinuðu Þjóðanna varðandi málefni Palestínu. Var kosið um drög að ályktun Palestínu­manna þar sem óskað var eftir ráðgefandi áliti Alþjóða­dómstólsins í Haag varðandi lang­varandi hernám Ísraels í Palestínu. Voru drögin samþykkt en Ísland sat hjá.

Félagið Ísland Palestína bendir á þetta í nýlegri færslu á Facebook og má sjá á orðum þeirra að félagið sé afar ósátt við hjásetuna. Hér má lesa færsluna í heild:

„FULLTRÚI ÍSLANDS NEITAR AÐ STYÐJA MÁLSTAÐ PALESTÍNUMANNA!
Ísland endurtekur ranga ákvörðun!

Nefnd Sameinuðu þjóðanna sem m.a fjallar um afnám nýlendu­stefnunnar samþykkti þ. 13. nóvember s.l. drög að ályktun Palestínu­manna þar sem óskað var eftir ráðgefandi áliti Alþjóða­dómstólsins í Haag varðandi lang­varandi hernám Ísraels á landi Palestínu.

Í ályktuninni er Alþjóða­dómstóllinn sérstak­lega beðinn um álit á stöðu Jerúsalem sem er eitt af helstu og umdeildustu deilu­málum Ísraels­manna og Palestínu­manna.

Nítíu og átta ríki samþykktu tillöguna, sautján greiddu atkvæði gegn og fimmtíu og tvö sátu hjá. Þar á meðal Ísland.

Afstaða Íslands, að sitja hjá þegar Palestínu­menn leita til alþjóða­samfélagsins, er endur­tekning á skammar­legu framlagi Íslands á vettvangi SÞ árið 1947 þegar Allsherjar­þingið samþykkti tillögu um að skipta Palestínu.

Þá var lögð fram tillaga um að Allsherjar­þing SÞ, áður en þingið legði fram tillögu að skiptingu landsins, skyldi leita álits Alþjóða­dómstólsins á því hvort Sameinuðu þjóðirnar væru hæfar og hefðu vald til að mæla fyrir eða fram­fylgja aðgerð sem gengi gegn vilja meirihluta íbúanna í Palestínu. Þessi tillaga var felld og vó atkvæði Íslands, sem var á móti tillög­unni, þungt þar sem það munaði aðeins tveimur atkvæðum.

Ísland og þau ríki sem felldu tillöguna sýndu Palestínu­mönnum og framtíð þeirra lítils-virðingu með því neita þeim um að fá úr því skorið hvort ríki SÞ hefðu yfirleitt leyfi til að afhenda hluta af landi þeirra til annarra.

Samþykktin þ. 13. nóvember 2022 mun ekki valda neinum vatna­skilum í baráttu Palestínu­manna fyrir frelsi og mann­réttindum. Bæði Allsherjar­þing SÞ og Alþjóða­dómstóllinn hafa áður lýst hernám Ísraels á Vestur­bakkanum ólöglegt og beri að afnema. Þrátt fyrir samþykktir Sameinuðu þjóðanna hefur Ísrael haldið áfram ofbeldi og árásum gegn Palestínu­mönnum í skjóli Banda­ríkjanna og ýmissa vestrænna ríkja.

En dropinn holar steininn segir máltækið og réttlætið sækir hægt og bítandi fram.

Árið 1945 bjuggu hundruð milljóna manna, nálægt þriðjungur allra íbúa heimsins á þeim tíma, undir oki nýlendu­stefnunnar. Aðgerðir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og barátta undirokuðu þjóðanna á síðastliðnum áratugum til afnáms nýlendu­stefnu hafa stuðlað að sjálf­stæði fjölmargra fyrr­verandi nýlendna og landsvæða sem lutu stjórn annarra ríkja.

Nú endurtekur íslenska utan­ríkis­þjónustan sig og greiðir ekki atkvæði með tilraunum Palestínu­manna til að ná fram réttlæti og frelsi.
Í núverandi ríkis­stjórn Íslands sitja tveir flokkar sem segja í ályktunum að: „Mann­réttinda- og jafnréttismál skipi áfram veglegan sess í utan­ríkisstefnu Íslands á vettvangi alþjóða­stofnana … Því er mikilvægt að Ísland sýni gott fordæmi í þessum mála­flokki á heimsvísu og beiti sér gegn mann­réttinda­brotum.“ (Framsókn)
Og ennfremur: „Mikilvægt að tryggja rétt palestínsku þjóðarinnar til vatns og annarra auðlinda, ferða­frelsis, búsetu, atvinnu og mann­réttinda.“ (VG)
Þessi fögru orð eru einskis virði í ljósi þess hvernig fulltrúar landsins haga sér á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.“

Ísland er í hópi 52 þjóða sem ekki þorðu að taka afstöðu til máls­ins.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning