Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Söfnunarþáttur UNICEF verður sögulegur sjónvarpsviðburður – Búðu til pláss

UNICEF-söfnunarþáttur desember 2024 samstarfsmynd
UNICEF-söfn­un­arþáttur des­em­ber 2024 sam­starfs­mynd

Þann 6. des­em­ber munu sjón­varps­stöðv­arnar RÚV, Sjónvarp Símans og Stöð 2 taka höndum saman og vera með söfn­unar- og skemmti­þátt UNICEF á Íslandi í beinni útsend­ingu. Er því um sögu­legan við­burð að ræða. Hér fyrir neðan má lesa frétta­til­kynn­ingu frá þeim sem standa að útsend­ing­unni:

Búðu til pláss föstu­dag­inn 6. des­em­ber kl. 19:40 – Söfnunar- og skemmti­þáttur UNICEF á Íslandi í beinni útsend­ingu á RÚV, Stöð 2 og Sjón­varpi Símans 

Í til­efni af 20 ára afmæli UNICEF á Íslandi kynnum við sögu­legan við­burð í íslensku sjón­varpi þegar söfn­unar- og skemmti­þátt­ur­inn Búðu til pláss verður sendur út í beinni útsend­ingu á RÚV, Sjón­varpi Símans og á Stöð 2 í sam­starfi við Vodafone og Kviku banka.  Sýn, sem á og rekur Stöð 2 og Vodafone, leggur auk þess til höf­uð­stöðvar sínar undir útsend­ing­una og síma­ver Vodafone í þágu mál­stað­ar­ins. Búðu til pláss í hjart­anu þínu, skráðu þig sem Heims­for­eldri UNICEF og eigðu ógleym­an­lega kvöld­stund með fjöl­skyld­unni föstu­dags­kvöldið 6. des­em­ber klukkan 19:40.

Síð­ast­liðin 20 ár hafa tug­þús­undir Íslend­inga átt þátt í heims­meti í að leggja rétt­indum og vel­ferð millj­óna barna um allan heim lið með því að vera Heims­for­eldrar UNICEF. Nú sem aldrei fyrr þurfa börn heims­ins á stuðn­ingi þínum að halda enda aldrei fleiri börn búið við hörm­ungar sem þau eiga enga sök á.  

Stóru sjón­varps­stöðv­arnar þrjár taka allar höndum saman og búa allar til pláss í dag­skránni sinni svo þú getir búið til pláss í hjart­anu þínu í þágu barna í neyð. Gerum það sögu­lega sam­starf að sögu­legri stund í 20 ára sögu UNICEF á Íslandi.  

Búðu til pláss fyrir tónlist, grín og góðverk

Í þætt­inum verður boðið upp á úrval skemmti­at­riða, grín, dans og tón­list þar sem lands­þekktir ein­stak­lingar og vel­unn­arar UNICEF leggja sitt af mörkum í þágu mál­stað­ar­ins. Í þætt­inum koma m.a. fram Diljá Pét­urs­dóttir og Björn Stef­áns­son, dans­arar í Ung­leik­hús­inu og Örn Árnason ásamt Halldóru Geir­harðs­dóttur, Páli Óskari, Sigríði Thorlacius, Ólafi Darra og Gunnari Hanssyni. Tón­list­ar­at­riði kvölds­ins verða glæsi­leg þar sem fram koma meðal ann­ars Pollapönk, Ragga Gísla, Pálmi Gunn­ars­son, Una Torfa, Unn­steinn Manúel, Rakel Sig­urð­ar­dóttir, Högni Egilsson, Elín Hall, Daníel Ágúst og Vitr­ing­arnir þrír. Kynnar kvölds­ins verða Ragn­hildur Steinunn Jóns­dóttir og Sigrún Ósk Krist­jáns­dóttir og grín­stjórar kvölds­ins og kynnar í síma­veri Vodafone eru Fannar Sveins­son og Sandra Barilli.   

Meg­in­mark­mið kvölds­ins verður að fjölga í hópi Heims­for­eldra UNICEF, mán­að­ar­legra styrkt­ar­að­ila Barna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna, og munu sjálf­boða­liðar í síma­vera Vodafone taka á móti sím­tölum verð­andi Heims­for­eldra allt kvöldið. Við munum leggja áherslu á von og árangur í fjöl­krísu­heimi og veita áhorf­endum inn­sýn inn í störf og verk­efni UNICEF um allan heim. Sérstök áhersla í þætt­inum verður á hörm­ungar barna á Gaza og hvernig þú getur lagt þitt af mörkum til að styðja við börn sem misst hafa allt sitt í stríði sem þau bera enga ábyrgð á. Fyrstu þrír mán­uðir af fram­lögum nýskráðra Heims­for­eldra munu þannig renna til neyð­ar­söfn­unar fyrir börn á  Gaza. 

Ógleymanleg kvöldstund fyrir alla fjölskylduna

„Við lofum ógleym­an­legri kvöld­stund í krafti þessa öfl­uga sam­starfs, þar sem við munum í senn slá á létta strengi sem og hjarta­strengi þjóð­ar­innar í þágu rétt­inda barna,“ segir Birna Þór­ar­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi.  „Tuttugu ára sam­fylgd og stuðn­ingur Heims­for­eldra UNICEF á Íslandi hefur skilað sögu­legum árangri í þágu barna um allan heim. Sam­taka­máttur þjóð­ar­innar sýnir sig í því að okkar litla þjóð á heims­met í hlut­falls­legum fjölda Heims­for­eldra innan UNICEF. Við erum ótrú­lega þakk­lát öllum sam­starfs­að­ilum okkar í þessu risa­vaxna verk­efni sem öll hafa lagst á eitt til að búa til pláss fyrir UNICEF og Heims­for­eldra. Nú þegar við fáum svona dýr­mætt pláss fyrir skila­boð og erindi UNICEF, biðjum við þjóð­ina að búa til pláss í hjart­anu sínu og skrá sig sem Heims­for­eldra. Sýnum í verki að við stöndum með von­inni, að við stöndum með rétt­indum og vel­ferð barna um allan heim, því það hefur aldrei verið mik­il­væg­ara.“   

Búðu til pláss – fyrir betri heim fyrir börn

Heims­for­eldrar UNICEF eru mik­il­væg­ustu styrkt­ar­að­ilar UNICEF, Barna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Sem Heims­for­eldri styður þú ekki við eitt til­tekið barn, heldur börn um allan heim í gegnum stærstu hjálp­ar­sam­tök í heimi fyrir börn og myndar þannig örygg­is­net fyrir öll börn ásamt öðrum Heims­for­eldrum. 

Í fyrra tryggðu Heims­for­eldrar UNICEF meðal ann­ars: 

  • 40 millj­ónum barna og ung­menna aðgengi að menntun og 30 millj­ónum skóla­gögn til náms.
  • Rúmlega 42 millj­ónum ein­stak­linga hreint vatn og hrein­læt­is­þjón­ustu við neyð­ar­að­stæður.  
  • Rúmlega 400 millj­ónum barna bólu­setn­ingu við mænu­sótt og 130 millj­ónum við misl­ingum. Bólu­setn­ingar hafa bjargað sex manns­lífum á mín­útu síð­ustu 50 árin og eru árang­urs­rík­asta leiðin til að koma í veg fyrir að börn veik­ist og deyi af völdum sjúk­dóma. 
  • Rúmlega 430 millj­ónum barna, barns­haf­andi kvenna og nýbak­aðra mæðra þjón­ustu til að með­höndla og fyr­ir­byggja vannær­ingu. 
  • Og vissir þú að fleiri börn lifa nú af fyrstu fimm ár ævi sinnar en nokkru sinni fyrr og að dán­ar­tíðni barna á þessum aldri hefur dreg­ist saman um 51% frá árinu 2000?  

Þessi árangur er vitn­is­burður um þann árangur sem UNICEF hefur náð á und­an­förnum ára­tugum í þeim verk­efnum sínum að auka aðgengi að grunn­þjón­ustu í heil­brigð­is­kerf­inu, bólu­setja börn  gegn hættu­legum sjúk­dómum, veita mæðrum og for­eldrum nauð­syn­legan stuðn­ing og fræðslu, sinna lang­tíma­upp­bygg­ingu sam­fé­laga og bregð­ast við neyð­ar­að­stæðum með mann­úð­ar­að­stoð um allan heim. 

Búðu til pláss í hjart­anu þínu – fyrir líf allra barna. Horfðu á söfn­un­ar­þátt UNICEF og skráðu þig sem Heims­for­eldri  í dag. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið