Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Mæðgur settar í lífshættu á Langholtsvegi

Umferðar­hegðun á Langholts­vegi hefur áður vakið athygli

Skilti við Langholtsveg
Skilti við Lang­holts­veg Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Móðir í Langholts­hverfi kallar eftir aðgerðum Reykja­víkurborgar til að draga úr umferðar­hraða á Langholts­vegi eftir að litlu munaði að ekið væri á hana og dóttur hennar við gangbraut í morgun.

Sigríður Erla Sturlu­dóttir greinir frá atvikinu í Langholts­hverfis­hópnum á Facebook. Segir hún ökumann hafa ekið augljós­lega of hratt þegar mæðgurnar voru við gangbrautina hjá Langholts­vegi 112.

„Í morgun var næstum keyrt á okkur mæðgur við gangbrautina hjá Langholts­vegi 112 þar sem viðkomandi keyrði augljós­lega alltof hratt,“ skrifar Sigríður.

Í kjölfarið tóku mæðgurnar sig til og útbjuggu skilti til að minna ökumenn á að hámarks­hraði á götunni er 30 kíló­metrar á klukku­stund. Sigríður segir brýnt að borgar­yfirvöld grípi til aðgerða, til dæmis með uppsetningu hraða­hindrana, áður en alvarlegt slys verður.

Áhyggjur af umferðar­öryggi á Langholts­vegi eru ekki úr lausu lofti gripnar. Karlmaður var sýknaður seint í fyrra í Héraðs­dómi Reykja­víkur af ákæru fyrir líkams­meiðingar af gáleysi vegna alvarlegs umferðar­slyss á Langholts­vegi 26. nóvember 2024.

Maðurinn ók þá bifreið á gangandi vegfaranda og hund hans. Vegfarandinn slasaðist mjög alvarlega og hlaut meðal annars heila­blæðingu, dreifðan heila­áverka, brot í hálshrygg og rifi, lungnamar og beinbrot í vinstri fótlegg. Ökumaðurinn var hins vegar sýknaður af ákærunni.

Umferðar­hegðun í nágrenni Langholts­vegar hefur áður vakið athygli. Þegar malbiks­framkvæmdir fóru fram í Skeiðar­vogi árið 2019 og götunni var lokað milli Sæbrautar og Langholts­vegar brugðu nokkrir ökumenn á það ráð að aka upp á gangstéttir til að komast fram hjá lokuninni og fjallaði Mannlíf um málið á sínum tíma

Myndband af akstrinum vakti töluverða athygli á samfélags­miðlum. Sá sem birti mynd­bandið sagði að litlu hefði munað að slys yrði skömmu áður en upptakan hófst. Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu brást þá við mynd­bandinu og sagði: „Þetta er ótrúlegt að sjá.“

Sigríður hvetur ökumenn nú til að virða hámarks­hraðann á Langholts­vegi á meðan beðið er eftir mögulegum aðgerðum borgarinnar.

„Munum þá eftir að hægja á okkur og keyra ekki hraðar en á 30 km hraða,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning