Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála

„Litla Lára hefði alveg mátt vita að hún mætti segja frá“

Lára Garðarsdóttir
Lára Garð­ars­dóttir Lára hlaut á dög­unum styrk úr Höf­unda­sjóði Mynd­stefs. Mynd: Aðsend

Kát Ína kanína — og leyndar­málið er ný barnabók eftir Láru Garðars­dóttur fyrir börn á aldrinum þriggja til sjö ára. Lára skrifar, mynd­skreytir og gefur bókina út sjálf og fjallar þar um mikilvægt en viðkvæmt efni: muninn á góðum og vondum leyndar­málum.

Sagan segir frá kanínunni Ínu sem gengur með leyndarmál sem verður sífellt þyngra að bera. Í gegnum söguna er börnum á einfaldan hátt bent á að það sé mikilvægt að segja frá ef leyndarmál veldur vanlíðan, ótta eða skömm.

Hvað varð til þess að þú skrifaðir bókina?

„Við þekkjum öll góð leyndarmál,“ segir Lára í samtali við Mannlíf. „Að mamma sé ólétt, hvað einhver fær í jólagjöf eða hver er skotinn í hverjum. Slík leyndarmál geta verið skemmtileg og skapað spennu, gleði og samkennd.“

En svo eru leyndarmál sem eru allt annars eðlis.

„Það eru leyndarmál sem valda vanlíðan, skömm eða ótta. Börn eru háð full­orðnum og geta átt sérstak­lega erfitt með að segja frá þegar tryggðin við fólkið í kringum þau verður til þess að þau þegja.“

Lára segir að ein helsta ástæða þess að hún hafi viljað skrifa bókina hafi verið að kenna börnum að „svíkja ekki sig sjálf“.

„Ég vildi gefa þeim glugga til að greina á milli leyndar­mála og vandamála. Ég var sjálf barn með leyndarmál og kannski skrifa ég þessa sögu að einhverju leyti fyrir litlu Láru – sem hefði alveg mátt vita að hún má og á að segja frá þegar henni líður illa.“

Vandað til verka

Lára segir mikilvægt hafa verið að fara varlega með efnið, enda bókin ætluð mjög ungum börnum.

„Ég leitaði meðal annars til starfs­fólks Barnahúss, kennara og heilbrigðis­starfsfólks við vinnslu bókarinnar. Mér fannst mikilvægt að nálgast þetta á réttan hátt.“

Markmiðið hafi þó aldrei verið að skrifa þunga eða íþyngjandi bók.

„Ég vildi skrifa sögu sem börn geta notið og samsamað sig með, en sem getur líka gefið foreldrum og öðrum full­orðnum tækifæri til að opna á samtal.“

Sagan er í bundnu máli og bókin rík af myndmáli, en Lára mynd­skreytir bókina sjálf og segir það hafa verið mikil­vægan hluta af sköpunar­ferlinu.

Hefur opnað samtöl

Viðbrögðin eftir að bókin kom út hafa verið Láru sérstak­lega dýrmæt.

„Börn hafa sjálf talað um að Ína hafi verið leið vegna leyndar­málsins og full­orðnir hafa sagt mér frá samtölum sem hafa skapast eftir lesturinn.“

Þannig hafi bókin ekki aðeins snert börnin.

„Hún hefur ekki síður haft áhrif á og hreyft við fullorðna fólkinu. Það er í raun nákvæmlega það sem ég vonaði að bókin gæti gert.“

Lára segist ekki gera ráð fyrir að ein barnabók geti leyst erfið mál.

„En ef hún getur hjálpað einu barni að finna orð yfir eitthvað sem því líður illa með, eða orðið tilefni til samtals sem annars hefði ekki átt sér stað, þá hefur hún gert það sem ég vonaði að hún gæti gert.“

Gefur bókina út sjálf

Lára hefur skrifað og mynd­skreytt barna­bækur um árabil og áður gefið út bókina Flökku­sögu, sem seldist upp.

Kát Ína kanína — og leyndar­málið hlaut styrk úr Höfunda­sjóði Myndstefs en Lára sér sjálf um útgáfu bókarinnar og hún er nú komin í almenna dreifingu hjá Pennanum, Bókabúð Forlagsins og A4, auk þess sem hægt er að kaupa hana á heimasíðu hennar.

Útgáfuhóf verður haldið í Pennanum Eymundsson í Kringlunni 11. október klukkan 14. Allir eru velkomnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Menning

Ein besta rappsveit Íslands­sögunnar snýr aftur á svið

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027