Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Hulda Hákon og Dóra Einars: „Það er eitthvað að – við erum mörg á flótta frá miðbæ Reykjavikur“

Stöllurnar Hulda og Dóra sækja þjónustu í Hafnarfirði en búa í Reykjavík
Stöll­urnar Hulda og Dóra sækja þjón­ustu í Hafn­ar­firði en búa í Reykja­vík

Lista­konan Hulda Hákon og búninga­hönnuðurinn Dóra Einars eru afar óánægðar með ástandið í miðbæ Reykja­víkur og segjast fara til Hafnar­fjarðar til að fá þjónustu.

„Foreldrar mínir og vinir þeirra er aldraðir. Ólust upp í miðbænum. Þekkja hvern krók og kima. Bjuggu þar, versluðu þar, skemmtu sér og nutu,“ segir Hulda og heldur áfram:

„Nú er borin von að ég geti farið með þau um miðbæ Reykja­víkur til þess að njóta þeirra gæða sem hann hefur uppá að bjóða. Nú fer ég með þau í miðbæ Hafnar­fjarðar. Sorglegt. Þau ólust upp í miðbæ Reykja­víkur og eiga húseign sem þau komast ekki að. Engin bílastæði lengur.“

Hún segir að það „vantar leyfi fatlaðra að leggja á gangstétt og hjólreiða­stíga – eins og til dæmis á Hverfis­götunni þar sem þau eiga húsnæði; þannig aðstæður finnast víða.“

Dóra Einars tekur í sama streng og segir:

„Ég elska höfuðborg okkar Íslendinga, Reykjavík. Fer þangað til hárgreiðslu­meistara míns á Tryggva­götu á fimm vikna fresti; elska að fara í leikhúsin, Hörpuna, lista­söfnin og galleríin.“ Hún segir að það að „trítla í kringum Tjörnina og garðana er í miklu uppáhaldi. Að kvöldi til fer maður á einn og einn veitinga­stað.“

Dóru finnst „dapurlegt frá því að segja að ef ég þarf að fara í innkaupa­ferð, ritfanga­verslun, skósmið, teikniáhöld, fatnað og margt fleira þá keyri ég frá Seltjarnarnesinu til Hafnar­fjarðar til að sækja þjónustu. Ég nenni ekki öllu kraðakinu nema ef erindið er nauðsynlegt í Reykjavík“ og endar á þessum orðum:

„Það er eitthvað að og við erum svo mörg á flótta frá miðbæ Reykja­vikur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra