Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Ég þakka fyrir samstarfið“

Jón Þór Hauksson hefur hætt störfum sem þjálf­ari karla­liðs ÍA í knatt­spyrnu

Jón Þór hefur nú lokið keppni
Jón Þór hefur nú lokið keppni Hættur þjálfun hjá upp­eld­is­fé­lag­inu sínu ÍA á Akranesi Mynd: Knattspyrnudeild ÍA.

Jón Þór Hauksson er hættur sem þjálf­ari ÍA í Bestu deild karla í fót­bolta, en liðið situr í botns­æti deild­ar­innar. Með 9 stig eftir 11 leiki.

Þessi tíð­indi af Jóni Þóri koma fram í til­kynn­ingu frá knatt­spyrnu­deild ÍA. Segir þar að ákvörðun um starfs­lokin hafi verið tekin í sam­ein­ingu af Jóni Þóri og stjórn knatt­spyrnu­deildar félags­ins, en hann tók við þjálfun ÍA árið 2022.

Liðið end­aði í fimmta sæti Bestu deild­ar­innar í fyrra; var lengi vel í bar­áttu um Evr­ópu­sæti, sem hafð­ist þó ekki.

Hins vegar hefur gengið upp og ofan í sumar á Íslands­mót­inu, og 4-1 tap gegn Aft­ur­eld­ingu í gær­kvöld var kornið sem fyllti mæl­inn.

Ákvörðun var tekin að skipta um þjálf­ara.

Ekki kemur fram í frétta­til­kynn­ing­unni hver það sé sem tekur við stjórn liðis, en Dean Martin aðstoð­ar­þjálf­ari hefur stýrt ÍA í tveimur leikjum í sumar er Jón Þór tók út leik­bann og því ekki talið ólík­legt að Dean Martin taki við þjálfun liðs­ins.

Frétta­til­kynn­ing ÍA:

Knatt­spyrnu­fé­lag ÍA til­kynnir að Jón Þór Hauksson hefur látið af störfum sem þjálf­ari meist­ara­flokks karla.

Ákvörð­unin var tekin í sam­ráði milli Jóns Þórs og stjórnar félags­ins. Jón Þór tók við þjálfun liðs­ins þann 1. febr­úar 2022 og hefur gegnt starf­inu af ábyrgð og festu á þeim tíma sem hann hefur verið hjá félag­inu.

Bæði hann og stjórn félags­ins voru sam­mála um að nú væri rétt að gera breyt­ingar, með hags­muni liðs­ins og fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu að leið­ar­ljósi.

„Ég vil þakka Knatt­spyrnu­fé­lagi ÍA fyrir sam­starfið síð­ustu ár. Það hefur verið mér bæði lær­dóms­ríkt og ánægju­legt að starfa með leik­mönnum og starfs­fólki félags­ins. Ég óska lið­inu og öllum sem að því koma góðs gengis í fram­tíð­inni.“

ÍA þakkar Jóni Þór fyrir sam­starfið og óskar honum vel­farn­aðar í næstu verk­efnum.

Stjórnin hefur hafið und­ir­bún­ing að ráðn­ingu nýs þjálf­ara og verður til­kynnt um fram­haldið þegar það liggur fyrir.

F.h. stjórnar Knatt­spyrnu­fé­lags ÍA,

Eggert Her­berts­son, for­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Sport

Nærmynd

Hver er Theodór Elmar?

Tíu árum eftir árangur Íslands á EM 2016 rifjar Mannlíf upp feril Theodórs Elmars Bjarnasonar, eins af leikmönnum liðsins.

Kristian Nökkvi kemur inn í lands­liðs­hóp­inn

Átján ára knatt­spyrnu­maður lést eftir höf­uð­högg í miðjum leik

Brasil­ísk knatt­spyrnu­fé­lög leita til lög­reglu eftir slags­mál í leik U20-liða kvenna

Helga Margrét vill breyta heim­inum fyrir íslenskar íþrótta­konur

Mark­vörð­ur­inn í áfalli eftir dauðs­fallið