Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sveppi hljóp nakinn niður Laugaveginn: „Það er æðislegt að hlaupa allsber í margmenni“

Sveppi hálf nakinn
Sveppi hálf nak­inn Mynd: Kazuma Takigawa

Sverrir Þór Sverrisson. Sveppi. Í viðtali við Reyni Traustason segir hann frá því hvernig nafnið Sveppi kom til, hann talar um æskuárin þegar hann vildi fíflast og vera fyndinn, árin í FB þar sem hann var í vídeó- og skemmtinefnd, tímann á grænmetis­lagernum, upphaf ferilsins sem hann er þekktur fyrir, sem var að ganga hringinn í kringum Ísland í tvo mánuði, hann talar um hrekkina og áskoranirnar í sjón­varpinu, svo sem þegar hann hljóp allsber niður Lauga­veginn, jákvætt áreitið og svo talar hann örlítið um fjöl­skylduna. Hann talar líka um hvað sé fram undan og hvort hann vilji verða gamalmenni á Spáni. Hér er brot úr viðtalinu.

Allsber á Laugavegi

Þú ert stjarna sem gerir út á börn með myndirnar þínar og þá þarftu nátt­úrlega að passa upp á að fortíðin sé ekki að banka upp á hjá þér með einhverjum gervi­typpum.

„Já, það er bara tíma­spursmál hvenær það gerist.

Fólki fannst þetta ekki alveg passa; að þetta væri sami gæinn.

Ég man þegar ég byrjaði með barna­tímann á Stöð 2. Þá vorum við Auddi með þátt sem hét bara Auddi og Sveppi. Við vorum á hverjum föstudegi í hálftíma og máttum bara gera það sem við vildum. Það var oft dálítið kvartað yfir því að ég væri á föstu­dögum; í eitt skiptið hljóp ég allsber niður Lauga­veginn. Mér fannst það æðislegt. Og svo daginn eftir var ég með barnaþátt í Stöð 2. Fólki fannst þetta ekki alveg passa; að þetta væri sami gæinn. En ég nennti ekki að pæla í því. Þetta var bara svona.“

Hvernig datt þér í hug að hlaupa allsber niður Lauga­veginn?

„Það var einhver áskorun. Við vorum rosa mikið í áskorunum; alltaf að skora á hver annan að gera eitthvað út í hött. Og bara hvað sem var. „Basically“ bara það sem okkur fannst fyndið. Þetta var áskorun sem ég tók; hljóp allsber. Það er æðislegt að hlaupa allsber í margmenni.“

Hvernig voru viðbrögðin?

„Fólk hefur gaman af því að sjá einhvern karl.“

Flestir þekktu þig. Svo voru einhverjir túristar sem sáu eitthvað krullað fyrirbæri nakið á harðahlaupum.

„Ógeðslega gaman. Þetta er það sem þau muna. Þetta er bara Gullfoss og Geysir og allsberi kallinn á Laugavegi.“

Þetta hefur verið áhugavert.

Það blundar enn þá í mér svona fífla­skapur.

„Þetta var mjög skemmtilegur tími. Það blundar enn þá í mér svona fífla­skapur. Ég hef oft hugsað, þegar ég er að keyra bílinn og sé eitthvað, „djöfull væri fyndið að stökkva út og hlaupa allsber í gegn“.“

Þú ert svolítið búttaður. Hefur aldrei verið viðkvæmt fyrir þig að sýna það?

„Hvernig ég er vaxinn?“

Nekt þína.

„Það er dálítið fyndið. Það eiginlega hentaði betur, af því að ef þú ert svona asnalegur, svona lítill og kubbs­legur, þá er allt í lagi. Þá er maður svo góðlegur. Ef ég er ber að ofan þá finnst öllum það bara fyndið og krúttlegt, en þegar Auddi var ber að ofan þá fannst öllum hann vera að monta sig. Ef ég væri með „sixpack“ og ógeðslega vöðva­stæltur og væri alltaf að fíflast eitthvað ber að ofan niðri í bæ þá væru allir „voðalega hefur hann mikla þörf fyrir að sýna vöðvana sína“. En ef því að ég er svona asnalegur þá er þetta miklu fyndnara. Það sama með Pétur.“

Þá fer þetta að snúast um kjark.

„Já, akkúrat.“

Viðtalið í Mannlífi er hér.

Podcastið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt