Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Doktor Henry: „Hefði ekki verið betra að ráðherra hefði strax vikið til hliðar?“

Henry Alexander Henrysson siðfræðingur ræðir um listina að bera ábyrgð á eigin skoðunum.
Henry Alex­ander Henrys­son sið­fræð­ingur ræðir um list­ina að bera ábyrgð á eigin skoð­unum. Mynd: Dagur Gunnarsson

Henry Alexander Henrysson, doktor í heimspeki, telur að fjármála­ráðherra landsins og formaður Sjálfstæðis­flokksins, Bjarni Benediktsson, skilji ekki hugtakið „pólitísk ábyrgð“. Raunar heldur heim­spekingurinn því fram að hið sama sé að segja um ráðherrana Katrínu Jakobs­dóttur og Lilju Alfreðs­dóttur.

Henry hefur fylgst vel með viðbrögðum ráðherra ríkis­stjórnarinnar við skýrslu Ríkis­endur­skoðunar vegna sölunnar á hlut ríkisins í Íslands­banka. Í svörum þeirra, og þá sér í lagi Bjarna fjármála­ráðherra sem ber ábyrgð á viðkomandi mála­flokki, megi sjá að þau skilji ekki hvað pólitísk ábyrgð sé.

„Grunn­skiptingin í hugtakinu er á milli þess að stundum berum við ábyrgð á einhverju að því leyti að okkur er falið verkefni. Þá berum við ábyrgð á því að úr því sé unnið. En þetta er kannski ekki að bera ábyrgð eða axla ábyrgð í þeim skilningi sem fólk hefur verið að tala um. Það er tengdara síðari merkingunni þar sem maður þarf að vera ábyrgur fyrir því sem gert hefur verið. Fatan stoppar hjá manni, svo maður grípi til orðalags sem er þekkt úr ensku,“ segir doktorinn í heimspeki í samtali við Vísi.

Henry telur að þessi ólíka merking flækist fyrir fólki og þá sér í lagi íslenskum stjórn­málamönnum. „Til dæmis var vitnað í tvo ráðherra ríki­stjórnarinnar í vikunni varðandi slíka ábyrgð og getur maður ekki annað en vonað að rangt hafi verið eftir þeim haft. Viðbrögð þeirra voru óskiljanleg,“ segir Henry, og á þar við svör Katrínar og Lilju:

„Þar segja þær eitthvað á þá leið að Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra hafi þegar axlað ábyrgð með því að hafa kallað eftir skýrslu ríkis­endur­skoðanda?! Pólitísk ábyrgð felst í eðli þess hlutverks sem maður tekur sér fyrir hendur sem kjörinn fulltrúi. Ráðherra sem hluti framkvæmda­valds ber aukna ábyrgð umfram aðra því segja má að sá hluti framkvæmda­valdsins sem starfar undir viðkomandi starfi á ábyrgð hans eða hennar. Fatan stoppar þar, eins og ég nefndi áður.“

Að mati Henrys felst pólitísk ábyrgð að „maður geti svarað fyrir – fært rök fyrir – þeim ákvörðunum sem maður ber ábyrgð á. Hér skipta „armlengdar­sjónarmið“ engu því að ábyrgðinni er ekki útvistað. Ekki þá nema sannað sé að reynt hafi verið skipulega að blekkja viðkomandi ráðherra. Ef maður getur ekki svarað fyrir öðruvísi en að draga fram atriði sem eru ekki viðeigandi, til dæmis þegar þau snerta annars konar ábyrgð eða maður virðist ekki skilja eðli hlutverks síns, þá er maður ekki að bera/axla pólitíska ábyrgð.“

Og Henry vill að því fylgi einfald­lega aðgerðir þegar íslenskt stjórnmála­fólk taki ábyrgð á gjörðum sínum.

„Það er einfald­lega þannig – og sem hefur oft gerst á undan­förnum árum – að ef svörin eru ekki til staðar, þá er ekkert annað að gera en að segja sig frá hlut­verkinu. Það gerist vissulega ekki reglulega á Íslandi. Hversu oft höfum við séð ráðherra hangi í hlutverki sínu, rúna tiltrú og trúverðug­leika, fram að kosningum og svo leitað á önnur mið eftir kosningar?Hefði ekki verið betra í ljósi almannahags­muna að viðkomandi ráðherrar hefðu strax vikið til hliðar í stað þess að láta málaflokk sinn drabbast niður út kjör­tímabilið þar sem veik staða þeirra gerir það að verkum að ekki er hægt að koma mikil­vægum málum í gegn?,“ spyr Henry.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning