Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Brynjar æfur yfir leyniræðu Björgvins á landsfundi – „Ekki gefa okkur fleiri gjafir“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Björgvin Þór Þórhallsson, fyrr­verandi skóla­stjóri Melaskóla og sósíal­isti, segist á Facebook hafa flutt leyniræðu á lands­fundi Sjálfstæðis­flokksins 6. nóvember síðastliðinn. Þessa ræðu hafi hann flutt fyrir tómum sal klukkan hálf sex að morgni sunnudags.

Ræðuna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan en hvort sem hún var flutt í raun eða ekki, þá er ljóst að hún strýkur Brynjar Níelsson, vara­þingmann flokksins, öfugt. Brynjar bregst ókvæða við og skrifar: „Þér hefur ekkert dottið í hug að flytja ræður á lands­fundum sósíal­ista í Norður Kóreu, Kúbu, Venesúela og öðrum svipaður til að segja hvað sósíalisminn hefur fært þeim?“

Björgvin var í fram­boði fyrir Sós­í­alista­flokk­inn í Reykja­vík í síð­ustu kosn­ingum.

Færsla Björgvins í heild sinni

Ég hélt ræðu á lands­fundi Sjálfstæðis­flokksins, kl. 5:30 í morgun. Ég var einn í salnum.

Ágætu landsfundar­fulltrúar. Góðir Sjálfstæðis­menn. Vondir Sjálfstæðis­menn og allir sem eru þar mitt á milli.

Ég er hér fyrir hönd þjóðarinnar að færa ykkur þakkir. Takk fyrir allt. Takk fyrir allt sem þið hafið gert okkur, okkur sem þjóð og okkur sem samfélagi.

Þið gáfuð okkur Davíð, þið gáfuð okkur Árna.

Johnsen.

Þið gáfuð okkur Íraks­stríðið og þið gáfuð okkur Hrunið. Þið gáfuð okkur meira að segja Sigmund Davíð og Leið­réttinguna sem er nú sérstakt afrek.

Og þið gáfuð okkur Bjarna. Takk fyrir það.

Og nú gefið þið okkur Guðlaug. Tack så mycket, eins og sænska mafían myndi segja.

Meðan ég man, ég sá Guðlaug hoppa um á hækjum áðan, er ekki hægt að láta hann fá hjólastól? Skilst að einn hafi losnað nýlega.

Sem sagt, þið gáfuð okkur Davíð. Tilfinningar mínar gagnvart þeirri persónu eru líklegri blendnari en flest annað. Sem áhuga­maður um stjórnmál viðurkenni ég mikilfeng­legan ferilinn og einstaka hæfi­leikana sem einungis Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir náði að jafna eða jafnvel bæta um betur. En á móti kom að það skorti alltaf tilfinnanlega uppá mildina í fari þessa ágæta manns, “Foringjans mikla” eins og fylgjendurnir kölluðu hann sumir. Hann gat verið ófyrirleitinn og eins og hann hefði orðað það sjálfur, undarlega smár í sniðum.

En svo liðu árin og ég tók hann smám saman í sátt. Einhverja sátt alla vega. Og þegar þar var komið sögu, var komið haust á pólitískum ferli Davíðs, kosninga­vorið 2003. Það haustaði mjög snemma það ár. Davíð vann sann­kallaðan Pyrrhosarsigur á Samfylkingunni sem var illu heilli með Össur sem formann, mann sem þekkti ekki sinn vitjunar­tíma, hvorki þá né síðar, og hafði sett Ingibörgu, vonar­stjörnu vinstri manna í fimmta sætið á lista flokksins í Reykjavík. Ingibjörg komst ekki inn og ég gleymi aldrei myndinni af henni í blaði skömmu síðar, tekinni morguninn eftir kosninga­nóttina. Hún sat með kaffi­bollann við eldhús­borðið og greini­lega úrvinda. Brosti samt en dauflega. Og ég hugsaði: Hvílík sóun!

En fyrirgefiði, þetta var útúrdúr, ég þjóna lund minni og er farinn að fjalla um Samfylkinguna.

Málið var að Sjálfstæðis­flokkurinn tapaði fylgi þetta vor en ríkis­stjórnin hélt meirihlutanum vegna kosninga­sigurs Framsóknar­flokksins. Sá sigur er nú í fréttum, tuttugu árum síðar vegna loforða­flaums þess flokks. Loforða­ermi Framsóknar­flokksins ætlar að reynast okkur dýr. Og vegna þessa dýrkeypta varnar­sigurs neyddist Davíð til að láta eftir forsætis­ráðherra­stólinn til Halldórs Ásgríms­sonar og bara til hans persónu­lega, eins og í léns­veldum miðalda, ekki til Framsóknar­flokksins. Davíð fékk eitt ár í stólnum svona til að fá að velja sinn tíma og þaðan fór hann beina leið í utan­ríkis­ráðuneytið. Öll hans saga eftir það er síðan hálfgerð niður­lægingar­saga fyrir hann, flokkinn og okkur öll. 25 nýskipaðir sendi­herrar (eða eitthvað álíka), afmælis­söngur fyrir stríðs­herrann í Washington, fáránleg og lítil­mannleg barátta fyrir því að orustu­þotur yrðu um kyrrt á Kefla­víkur­flugvelli og svo þegar hann loks hætti í stjórn­málum og gerði sjálfan sig að Seðla­bankastjóra (tilkynnti það sjálfur, réð í raun sjálfan sig, skyldi hann hafa tekið atvinnu­viðtal við sjálfan sig?): Hrunið eða hvað það nú heitir það ágæta bankahrun.

Sem sagt, þið gáfuð okkur Davíð. Það er eiginlega ekki hægt að halda áfram með þessa sögu ógrátandi, uppgjörs­skýrsla um flokkinn rifin í tætlur í ræðustól á lands­fundi og það þurfti svo lög til að losna við manninn úr Seðla­bankanum. Hversu lágt …? Hvað kom fyrir þennan mann? Hvað kom fyrir ykkur, ágæta Sjálfstæðis­fólk?

Samt, fann ég til furðulegrar velvildar í garð Davíðs þegar kunnuglegt andlitið birtist í sjón­varpinu sem forseta­fram­bjóðandi hér um árið. Þetta var eins og ómur fortíðar: allir gömlu kallarnir rifjuðust upp fyrir mér, allar gömlu hetjurnar, Ragnar Arnalds, Svavar, Jón Baldvin, Stein­grímur (Hermannsson!) og allir hinir… og það rann upp fyrir mér að saga Davíðs er mín saga og ykkar saga. Hann er hluti af minni samtíð, við höfum verið samferða­menn, gengið ólíkar götur en samstíga samt sem áður. Og ég fann til væntumþykju og hlýju, mér fannst í alvörunni svolítið huggulegt að heyra röddina.

En ég hefði auðvitað frekar nagað af mér útlim en að kjósa hann.

Og þið gáfuð okkur Árna Johnsen, þann ofurhuga og fork. Þann lífskúnstner. Þann dæmda fjárdráttsmann.

Ég var aldrei sáttur við fangelsis­dóminn. Vil helst ekki loka menn inni nema þeir séu hættu­legir öðrum. Árna hafði svo sem verið laus höndin í gegnum tíðina en við skulum ekkert vera að rifja það upp núna. Það þurfti ekki að loka hann inni, einungis að banna honum að koma að opinberum fjármálum aftur. En það fyrsta sem Sjálfstæðis­flokkurinn gerði þegar Árni hafði afplánað dóminn var að skipa hann fulltrúa í stjórn RARIK.

Ég hef bara góðar óskir til Árna en þetta var óþarfi og til skaða. Svona gera menn ekki en svona gerðI Sjálfstæðis­flokkurinn. Svona gerir Sjálfstæðis­flokkurinn. Það er í rauninni skömm að þessu. Skömm og heiður? Það er stundum eins og þessi hugtök séu víðsfjarri ykkur Sjálfstæðis­fólki.

Og þið gáfuð okkur Íraks­stríðið. Siðlaust árásar­stríð byggt á lygum og blekkingum. Helmingurinn lygi og hitt allt eintóm svik. Og hvað lágu margir Írakar í valnum? Hversu margir sárir, örkumlaðir, limlestir? Og hvað með samfélagið sjálft? Írak er ónýtt land og Íraks­stríðið leiddi af sér ein grimmilegustu hryðjuverka­samtök okkar tíma, ÍSIS.

Ég minnist ljós­myndar í blaði af ungri írakskri stúlku, barni, þar sem hún lá handa- og fótalaus á sjúkra­húsi í Bagdad, fórnar­lamb loftárása “Banda­manna”. Ræfillinn hann Tony Blair ætlaði að fá hana til Bretlands til að veita henni góða aðhlynningu en mér finnst að Davíð eigi að annast hana.

Hún lá þarna án handa og án fóta. Tólf ára kannski eða tíu. Hennar sök var að vera þarna bara, heima hjá sér, þegar flug­skeytin féllu, nákvæmu smart­bomburnar. Var Íraks­stríðið nauðsynlegt? Nei, auðvitað ekki og við erum samsek. Davíð og Halldór báru ábyrgð á því.

Og þið, ágætu Sjálfstæðis­menn, báruð ábyrgð á Davíð Oddssyni.

Er afsökunar­beiðni á leiðinni?

Svo kom hið svokallaða hrun. Þar ber Sjálfstæðis­flokkurinn meginsök. Hin pólitíska ábyrgð á þeim óskapnaði sem leiddi til Hrunsins, liggur í Valhöll. Hún liggur í þeirri hugmynda­fræði, græðgisvæðingunni og þeirri öfga­hyggju að markaðurinn leysi allan vanda – og hún liggur í krónískri spillingu Sjálfstæðis­flokksins sem virðist fyrir­munað að skilja á milli ríkis­valdsins og flokksins. Svona eins og í … Norður-Kóreu?

Sjálfstæðis­flokkurinn var með forsætis­ráðuneytið (Geir), hann var með fjármála­ráðuneytið (Árni, nei, ekki Johnsen! Mathiesen), stjórnar­formann Seðla­bankans og Seðla­bankastjóra, svokallaðan formann banka­stjórnar. Flokkurinn var með Fjármála­eftirlitið (Jónas Fr. Jónsson) en að vísu ekki stjórnar­formann þeirrar stofnunar, svo það sé sagt. Sjálfstæðis­flokkurinn var sem sé ekki bara báðum megin við borðið, hann var til hliðanna líka, undir því og yfir því og allt um kring. Þeir hefðu alveg eins getað staðsett stjórnar­ráðið og ráðuneytin í Valhöll.

Hvílíkt banana­lýðveldi! Hvílík niður­læging einnar þjóðar!

Hvílíkur skandall.

Helvítis fokking fokk.

Þið, mínir kæru vinir, gerðuð okkur þetta. Þið gerðuð okkur að banana­lýðveldi. Þið og við. Við leyfðum ykkar að gera það. Með því að kjósa ykkur unnvörpum og með því að leiða ykkur til valda, trekk í trekk. Eins og klárinn sem leitar alltaf þangað sem hann er kvaldastur.

Að lokum var þjóðinni reyndar nóg boðið og hér var gerð svokölluð bylting. Búsáhalda­byltingin beindist ekki gegn Samfylkingunni, glóru­lausum samstarfs­flokki ykkar í Hrun­stjórninni, heldur að ykkur. Búsáhalda­byltingin snerist um það m.a. að fá Samfylkinguna til að slíta þessu vonlausa stjórnar­samstarfi. Segja Sjálfstæðis­flokknum upp.

Með búsáhalda­byltingunni rak þjóðin í raun Sjálfstæðis­flokkinn. Þið voruð rekin. En þið náðuð ekki þeim skila­boðum, þið hélduð að þið væruð “Drekinn”. Heppilegur misskilningur.

Þess vegna skilur enginn hvers vegna þið barmið ykkur yfir litlu fylgi flokksins eftir Hrun. Allir aðrir vita skýringuna: það varð hérna svokallað hrun og þið njótið ekki lengur trausts og munið aldrei gera aftur. Fyrir þessa þjóð er það að tengja efnahags­legan stöðug­leika við hagstjórn Sjálfstæðis­flokksins bara lélegur brandari. Djók.

Og svo gáfuð þið okkur Bjarna, prinsinn sjálfan úr Garða­bænum. Ófúsan forystu­mann sem lét til leiðast að taka við þessum kaleik, í nafni ættarinnar og hefðarinnar. Og hefur svo sem vaxið í starfi og hlutverki enda ekki annað hægt. Teflon­húðaður svo ekkert festist á hann, ekki einu sinni að hafa komið milljónum fyrir í skatta­skjóli.

Ég hef reyndar aldrei litið á Bjarna sem einhvern voðalegan spillingar­gosa. Það sem er ófyrirgefanlegt í mínum huga er miskunnar­leysið og skeytingar­leysið gagnvart láglaunafólki, öryrkjum og eldri borgurum og eilíf samstaða með stór­fyrir­tækjunum og stóru fjármagns­eigendunum gegn þeim sem minna mega sín. Hvernig er hægt að stilla málum þannig upp að kjara­bætur þeirra sem minnst hafa – og hafa ekki nóg – setji hagkerfið á hliðina en ekki ef sömu peningar verða eftir hjá hinum ríku? Eru þetta ekki sömu peningarnir?

Bjarni er búinn að standa sig vel sem fjármála­ráðherra enda búinn að vera þar jafn lengi og grunn­skólabörn eru í grunn­skóla en hann hefur staðið gegn réttlætinu. Og það verður aldrei neinn friður án réttlætis. Hann er ekki rétti maðurinn til að vera með þessi völd.

Og svo gefið þið okkur Guðlaug. Ekki beint orðheppnasta stjórn­málamann landsins en ódrepandi og með níu líf í pólitík. Á hvaða lífi ætli hann sé núna?

Guðlaugur, Grafar­vogs­furstinn alþýðlegi. Sjarmerandi eins og George Bush yngri, einn af strákunum, vantar bara hafnabolta­húfuna. En hver er pólitík hans? Ég veit það eiginlega ekki. Stundum finnst mér eins og pólitík Guðlaugs Þórs, Borg­nesingsins knáa, sé aðallega Guðlaugur Þór Þórðarson og hans frami.

Þó kemur ýmislegt uppí hugann: hér var einu sinni sjónvarpsstöð, á svipuðum level og Omega. Þar sátu löngum stundum Ingvi Hrafn frétta­maður, Hallur Helgason, fyrr­verandi frétta­maður og Jón Kristinn Snæhólm, Sjálfstæðis­maður úr Kópavogi. Og með þeim var Guðlaugur Þór, furstinn úr Grafar­vogi. Hinir létu móðan mása en Guðlaugur beið. Og þetta er svolítið einkenni á þessari tegund af stjórn­málamanni, að tala síðastur svo hann lendi ekki á skjön við megin­strauminn í umræðunni. Svo talaði Guðlaugur og hinir hlustuðu í andakt á meðan. Eða kannski með smá spurn í augunum: “er þetta allt og sumt”? En Guðlaugur skar sig ekki úr í þessum hópi. Og skoðanir þessa hóps er ekki hægt að kalla annað en öfga­kennda hægri stefnu.

Hver er pólitík Guðlaugs? Spyr sá sem ekki veit.

Kæru landsfundar­fulltrúar. Mér þykir vænt um ykkur alla, eins og mér þykir vænt um alla hælis­leitendur sem hingað koma. Við erum öll manneskjur og viljum það sama, svona meira eða minna. Ég er ekkert betri en þið, jafnvel ívið verri ef eitthvað er. Þó ég sé ekki sammála ykkur um margt í stjórn­málum þá virði ég rétt ykkar til að hafa ykkar skoðun og stefnu og mæla fyrir henni. Samkvæmt leik­reglum lýðræðisins og í lýðræðis­legum anda. En um leið og ég þakka fyrir þessar gjafir ykkar í gegnum tíðina, og það geri ég í nafni þjóðarinnar, þá verð ég þó segja þetta:

Ekki meir, ekki meir.

Ekki gefa okkur fleiri gjafir.

Gleði­legan landsfund. Lifið heil

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning