Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Minnast Hrannars Leví sem lést fyrir aldur fram: „Ég sá hann blómstra eftir meðferð“

„Í dag var einn af þessum erfiðu dögum en í dag var jarðarför hans Hrannars Leví Elvussonar. Hann var 31 ára gamall, faðir, sonur, bróðir og svo margt meira.  Ég hafði heyrt um Hrannar þegar ég var í neyslu en við vorum báðir svona hálf­partinn þekktir fyrir að gera hluti sem kröfðust svona hálfgerðs ótta­leysis eða kannski vorum við bara svipað ruglaðir.“

Svo hefst færsla góðgerðasamtakana Það er von á Facebook en samtökin voru stofnuð af Hlyni Kristni Rúnars­syni. Samtökin birtu í gær minningarorð um Hrannar Leví en útför hans var haldin í gær. Hann var einungis 31 ára.

Hér fyrir neðan má lesa minningar­orðin sem samtökin birtu í gær í heild sinni.

Hrannar er þessi týpa sem laðar fólk að sér. Stutt í brosið. Hnyttinn og fyndinn. Við vorum saman í meðferð árið 2019. Hann var þá hraustur og hafði gaman af því að leika sér í fjörunni, skoða undir steina og finna krabba og allskyns ógeð. Svo hljóp hann um og hrekkti okkur hina.

Hrannar var svona týpa sem hefði líklega þrifist mjög vel í röð og reglu ef einhver hefði gefið honum almennilegt tækifæri. Ég sá hann blómstra eftir meðferð í einhvern tíma en eftir ár eða svo fór að halla undan fæti eins og vill svo oft gerast. Ég fór að heyra sjaldnar í honum og þegar ég hitti hann þá var mikið að „gera“ hjá honum. Óróliekinn fór að taka meira pláss og fór hann að sækja í annan vinskap en þá sem voru með allt upp á borðum.

Hrannar var ljúfur, blíður, einlægur, fyndinn, gáfaður, orku­mikill, veiði­dellumaður…. Ég held að allir sem fengu að kynnast honum muni sakna hans og heiðra minningu stráks sem var einstak­lega orðheppinn og tók sig ekki allt of alvarlega.

Að taka utan um móður hans eftir athöfnina í dag, hugsandi að þetta hefði alveg eins geta verið ég og móðir mín sem væri að ganga í gegnum þennan missi. Ég votta öllum þeim sem syrgja alla mína samúð og ég vona að dauðsföllum vegna alkahólisma fari að fækka. Við erum nefnilega að missa alltof gott fólk alltof snemma.

Hrannar Leví Elvusson, ég mun sakna þín þarna töffara bangsinn þinn.  Ég veit að þú vakir yfir börnunum þínum og heldur yfir þeim verndar­vængi.

Þinn vinur

Hlynur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag