Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Frystitogari kallaður í land: Stærstur hluti áhafnar smitaður af Covid

Júlíus Geirmundsson ÍS var kallaður í land eftir alvarlegt hópsmit um borð.
Júlíus Geir­munds­son ÍS var kall­aður í land eftir alvar­legt hópsmit um borð.

Um 20 manns af 24 úr áhöfn frysti­togarans Júlíusar Geir­mundssonar ÍS smituðust af Covid. Þetta kom fram í gær þegar skipið leitaði hafnar eftir að veikindi höfðu herjað á áhöfnina í þá 20 daga sem skipið hafði verið í veiði­ferðinni.

Allan túrinn voru menn að veikjast einn og einn. Fæstir urðu mjög veikir en þó var undan­tekning þar á. Það stóð á endum að þegar einn hresstist tóku næstu veikindi við.  Töldu menn í fyrstu að um væri að ræða flensu. Skipið hélt til hafnar á Ísafirði í gærdag til að taka olíu og senda alla áhöfnina í sýnatöku. Það kom svo í ljós í dag að nánast öll áhöfnin var sýkt. Talið er að  smitin megi öll rekja til eins manns og veiran hafi grasserað með þessum afleiðingum undan­farnar þrjár vikur. Skipinu var þegar stefnt til hafnar aftur í dag til að koma mann­skapnum í sóttkví.

Júlíus Geir­mundsson er væntanlegur til hafnar á Ísafirði á morgun. Ekki er ljóst hvað gert verður við áhöfnina sem ekki má eiga samneyti við sína nánustu fyrr en að aflokinni sóttkví. Reiknað er með að komið verði upp aðstöðu á Ísafirði svo hægt sé að einangra mann­skapinn.

Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðis­stofnunar Vestfjarða, stað­festir í samtali við Mannlíf að stór meirihluti áhafnarinnar reyndist sýktur og að von sé á áhöfninni í land á morgun. Aðspurður hvaða móttökur togarinn komi til með að fá við komu til hafnar segir hann það enn óljóst hvernig verður tekið á málinu.

„Ákvörðun um það verður tekin í fyrra­málið. Þeir munu nátt­úrlega ekki kom í land fyrr en umdæmis­læknir sóttvarna verður búinn að ákveða hver næstu skref verða,“ segir Gylfi.

Gylfi Ólafsson, for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning