Á ellefta tímanum í gærmorgun barst lögreglu tilkynning um meðvitundarlausan karlmann í heimahúsi í Kópavogi en greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglunni.
Hún hélt rakleiðis á vettvang samkvæmt tilkynningunni, en maðurinn, sem var um fertugt, reyndist látinn er að var komið. Ekki er ljóst með hvaða hætti andlátið bar að, en rannsókn málsins er í fullum gangi. Skýrslutökur stóðu yfir í gær og er framhaldið í dag, en enginn er í haldi vegna málsins.
Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu að sögn lögreglu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir