Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rifjar upp andstöðu Ólafs Ragnars við NATO og EES

Hagfræði­prófessorinn Gauti B. Eggertsson gagnrýnir málflutning Ólafs Ragnars Gríms­sonar um Evrópu­sambandið

Gauti B. Eggertsson
Gauti B. Egg­erts­son Hag­fræði­pró­fess­or­inn beinir vasa­ljós­inu að Ólafi Ragnari Mynd: econfip.org

Gauti B. Eggertsson, prófessor í hagfræði, gagnrýnir harðlega málflutning Ólafur Ragnar Grímsson um Evrópu­sambandið í ítarlegri Facebook-færslu þar sem hann rifjar upp andstöðu fyrr­verandi forsetans við bæði NATO og EES-samninginn.

Tilefni færslunnar er nýlegt hlaðvarps­viðtal við Ólaf Ragnar þar sem hann kallaði eftir því að Evrópu­málin yrðu rædd „í sögulegu ljósi“. Gauti segir það ágæta hugmynd, en telur að slíkt sögulegt samhengi varpi einnig ljósi á eigin pólitíska fortíð Ólafs.

Í færslunni rifjar Gauti upp hvernig Ólafur Ragnar hafi á sínum tíma verið harður andstæðingur aðildar Íslands að NATO og haldið því fram að banda­lagið gerði Ísland að mögulegu skotmarki í kjarnorku­stríði. Þá rifjar hann einnig upp afstöðu hans gegn EES-samningnum árið 1994.

„Ég segi nei,“ hafði Ólafur Ragnar meðal annars sagt um EES-samninginn á Alþingi á sínum tíma, að því er Gauti rifjar upp.

„Ekki skorti dramatíska lýsingu á þeirri martröð sem samþykkt EES myndi hafa í för með sér fyrir landsmenn“, skrifar Gauti og vitnar síðan í orð Ólafs Ragnars:

„Staðreyndin er nefnilega sú að þessi mikla evrópska draumsýn sem var hið pólitíska bakland fyrir þessum samningum hefur breyst í martröð. Jafnvel í slíka martröð að minningarnar frá tímum nasistanna birtast okkur óþyrmilega á sjónvarps­skerminum kvöld eftir kvöld. Richard von Weizsäcker, sá merki forseti Þýska­lands, húmanisti, höfðingi og sómamaður, sem heimsótti okkur Íslendinga, getur ekki einu sinni haldið ræðu í höfuðborg Þýska­lands án þess að æstur múgur nýnasista grýti hann svo að öryggis­verðir verða að bregða skjöldum fyrir forsetann til að tryggja líf hans.“

Gauti segir sérstak­lega athyglis­vert að skoða spár Ólafs Ragnars um framtíð utan­ríkis­viðskipta Íslands. Hann rifjar meðal annars upp ummæli þar sem Ólafur velti því upp hvort íslensk lakkrís­framleiðsla í Kína gæti reynst þjóðar­búinu arðbærari en EES-samningurinn.

Vitnar Gauti í Ólaf aftur:

„Það getur nefnilega vel verið að þessi lakkrís­verksmiðja í Kína eigi eftir að gefa íslendingum miklu meiri hagnað en EES-ævintýri hæstv. utanrrh. Og þegar upp verður staðið snemma á 21. öldinni muni menn frekar hengja upp myndir af hv. þm. Árna Johnsen en hæstv. utanrrh. Jóni Baldvin Hannibals­syni því að hv. þm. Árni Johnsen hafi haft meira nef fyrir því hvar gróða­vonina var að finna en hæstv. utanrrh. Það eru um það bil 1.000 millj. íbúar í Kína. Þeir geta borðað mikið af lakkrís. Íslendingar sem fengju sterka stöðu á þeim markaði geta skilað tekjum og arði til þjóðar­búsins í nánast himinháum stærðum.“

Prófessorinn bendir á að árið 2025 fari meira en 80 prósent af vöru­útflutningi Íslands til Evrópu en einungis lítið brot til Kína og Indlands.

„Mér þykja litlar líkur á að Indverjar og Kínverjar fari að borða lakkrís til að vega upp á móti 80 prósentum vöru­útflutnings Íslands til Evrópu á næstunni,“ skrifar hann.

Gauti telur málflutning Ólafs Ragnars um Evrópu­sambandið í dag mjög líkan þeim rökum sem hann notaði gegn EES fyrir rúmum þremur áratugum. Hann segir umræðuna um Evrópu­sambandið þurfa að fara fram í sögulegu samhengi, en að það eigi einnig við um afstöðu þeirra sem tjá sig um málið.

„En þá skulum við ekki bara nota vasa­ljósið á Brussel. Látum það líka skína á Ólaf Ragnar,“ skrifar Gauti að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum