Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Forréttindi að vera í draumastarfinu

Forréttindi að vera í draumastarfinu

Þórey Ólafs­dóttir er við­skipta­fræð­ingur og lög­giltur fast­eigna­sali, fram­kvæmda­stjóri og einn af eig­endum LANDMARK fast­eigna­sölu. Þórey býr í nota­legu rað­húsi í Garða­bænum ásamt börnum sínum þremur, Andra Má, 18 ára, Arnari Má, 16 ára og Thelmu Lind, 13 ára, ásamt schnauzer-hund­inum Skugga.

Hvað heillar þig mest við starfið?

„Það má kannski segja að það sem heilli mig mest við starfið séu þessi mann­legu sam­skipti, ánægju­leg upp­lifun við­skipta­vina, gleði og ein­lægt þakk­læti í lok fast­eigna­við­skipta. Það eru for­rétt­indi að vera í drauma­starf­inu og hlakka til þess að mæta til vinnu á hverjum degi. Fast­eigna­við­skipti eru oftar en ekki þau stærstu sem fólk ræðst í og fáar fjár­fest­ingar sem standa fólki nær.“

Getur þú lýst hefðbundnum vinnudegi hjá þér?

„Dagarnir eru nú mjög fjöl­breyttir og því kannski eng­inn hefð­bund­inn vinnu­dagur sem slíkur. Ég byrja flesta daga í rækt­inni, fer út að hlaupa eða hjóla til að næla mér í orku fyrir dag­inn. Skipulag dags­ins ræðst svo af þeim verk­efnum sem liggja fyrir hverju sinni, hvort sem það er dag­legur rekstur stof­unnar, mót­taka við­skipta­vina, tölvu­póst­sam­skipti, verð­mat, sölu­sýn­ingar eða til­boðs­gerð. Hjá LANDMARK starfar mjög öfl­ugur og þéttur hópur sem í sam­ein­ingu gerir vinnu­dag­inn með ein­dæmum skemmti­legan og lit­ríkan.“

Hvað finnst þér gera heimili að heimili?

„Heimilið er griða­staður fjöl­skyld­unnar og á að end­ur­spegla þá sem þar búa. Heimilið tekur breyt­ingum eftir tíma­bilum, aldri fjöl­skyldu­með­lima og þarfa þeirra hverju sinni en þar á alltaf að ríkja gagn­kvæmt traust og ein­læg vin­átta.“

Getur lýst þínum stíl?

„Ég veit ekki hvort ég fylgi ákveðnum stíl en mér finnst gaman að blanda saman gömlu og nýju, klassíku og módern hvort sem það er í umgjörð heim­il­is­ins eða fata­vali. Ég er þó fremur minimal­ísk og vil frekar eiga fáa og vand­aða muni eða flíkur sem ég vel af kost­gæfni.“

Áttu þinn uppáhaldsarkitekt?

„Ég held að Sigvaldi Thordar­son sé nú efstur á blaði hjá mér en hann var sann­kall­aður lista­maður á sínu sviði. Stíl­hreinar línur, fal­legir litir og frá­bært skipu­lag ein­kennir öll hans verk.“

Hver er þinn uppáhaldshönnuður?

„Ég er alltaf mjög hrifin af allri skand­in­av­ískri hönnun, Design by us og HAY sem dæmi en þegar kemur að inn­an­húss­hönnun þá er það klár­lega æsku­vin­kona mín og inn­an­húss­arki­tekt­inn hún Thelma Björk Frið­riks­dóttir.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eignast?

„Ég er mjög ánægð og þakk­lát með allt mitt og mína, frekar nægju­söm og vil hafa fáa en vand­aða hluti í kringum mig. En það er kannski helst pottur á pall­inn og útisturta sem kemur upp í hug­ann þar sem það er efst á óska­lista barn­anna um þessar mundir.“

Uppáhaldsliturinn þinn?

„Ég er frekar stíl­hrein, vel gjarnan ljósa tóna og held að það end­ur­spegli bæði lita­pal­lettu heim­il­is­ins og fata­skáps­ins.“

Hvar líður þér best?

„Þegar ég þarf að hreinsa hug­ann og sækja mér orku fer ég yfir­leitt eitt­hvað út að hreyfa mig og líður ein­stak­lega vel á hlaupum, hjóli eða uppi á fjalli. Annars líður mér klár­lega best í stof­unni heima, helst umkringd börn­unum mínum og vinum. Sam­veru­stundir fjöl­skyld­unnar mættu þó vera fleiri en eftir því sem krakk­arnir eld­ast virð­ist vera minni tími með mömmu þar sem dag­skrá þeirra er þétt­skipuð íþrótta­æf­ingum, vinnu og tíma með vin­unum.“

Er eitthvað sem þig langar að eignast í garðinn?

„Mér finnst alltaf gaman að stúss­ast úti við og setja niður sum­ar­blómin en að teknu til­liti til fjölda sól­ar­stunda þetta sum­arið þá væri það helst ein risam­ar­kísa, öfl­ugur hitalampi og spurn­ing um heita pott­inn fyrir krakk­ana.“

Svalasti veitingastaðurinn á Íslandi í dag?

„Við erum ótrú­lega lánsöm að búa í borg þar sem fjöl­breytni og úrval fram­úr­skar­andi veit­inga­staða er jafn­mikið og raun ber vitni. Ég er mjög dug­leg að fara út að borða og mínir upp­á­halds­staðir í dag eru Rok, Sumac og Apótekið en auk þess heim­sæki ég Mathús Garða­bæjar auð­vitað mjög reglu­lega.“

Er einhver byggingarstíll sem heillar þig meira enn annar?

„Ég held að hver stíll hafi sinn sjarma en það er kannski helst módern­ism­inn sem heillar mig perónu­lega.“

Að lifa lífinu lifandi er að …

„… setja sjálfa sig í for­gang og gefa sér tíma til að rækta sjálfa sig. Verja góðum gæða­stundum með börnum, fjöl­skyldu og vinum sem laða fram það besta í okkar fari því það gerir lífið svo skemmti­legt.“

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur