Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Fúnkisstíll heillar mig mest“

Jóhanna Kristín Gustavs­dóttir er með BA í atvinnu­lífs­fé­lags­fræði, er lög­giltur fast­eigna­sali og starfar hjá Landmark fast­eigna­sölu.

„Fúnkisstíll heillar mig mest“

Hún er gift og á tvær dætur, sú eldri er tví­tug og yngri er tólf ára. Fjöl­skyldan á líka hund­inn Kötu sem er af Papillion-teg­und­inni. Þau búa í fal­legu par­húsi á Kárs­nes­inu í Kópavogi.

Hvað heillar þig mest við starfið? „Það er hversu fjöl­breytt það er og að fá að hafa sam­skipti við þver­skurð af okkar sam­fé­lagi. Flestir eru að gera sín stærstu við­skipti á ævinni enda eru heim­ili fólks oft­ast það sem stendur því næst, fyrir utan fjöl­skyld­una sjálfa. Það er því afar ánægu­legt að að fá að aðstoða fólk við að selja sín heim­ili og finna því nýjan stað og upp­lifa þakk­lætið sem því fylgir.“

Geturðu lýst hefð­bundnum vinnu­degi hjá þér? „Hann byrjar á góðum kaffi­bolla og að fara út með hund­inn. Síðan ræðst dag­ur­inn af því hvað fyrir liggur en það getur til dæmis verið til­boðs­gerð eða gagna­öflun um eign ef ég er að taka nýja eign í sölu eða þá að tala við kaup­endur og selj­endur ef eign hefur verið sýnd dag­inn áður. Vera við­stödd mynda­töku á eign með ljós­mynd­ar­anum. Seinni­hluti dags­ins fer oft í að sýna eignir og vera með opin hús. Það sem gerir alla daga skemmti­lega í starf­inu er sam­starfs­fólkið mitt hjá Landmark sem er ein­stak­lega flottur og sam­stiga hópur fag­fólks.“

„Það er afar ánægu­legt að að fá að aðstoða fólk við að selja sín heim­ili og finna því nýjan stað og upp­lifa þakk­lætið sem því fylgir.“

Hvað er það sem þér finnst gera heim­ili að heim­ili? „Að heim­ilið sé nota­legt og öllum líði vel og finn­ist gott að koma heim eftir vinnu- eða skóla­dag­inn og geta slakað á.

Geturðu lýst þínum stíl? „Hann er hlý­legur, klass­ískur og í skand­in­av­ískum og ítölskum stíl.“

Áttu þinn upp­á­halds­arki­tekt? „Högna Sig­urð­ar­dóttir, hún var tíma­laus í sinni hönnun og tók mikið mið af umhverf­inu og nátt­úr­unni. Þá er ég hrifin af hönnun Sigurðar Hall­gríms­sonar og Guð­bjargar Magn­ús­dóttur en sem sam­tíma­hönn­uðir skapa þau ein­stak­lega heild­stæð og fal­leg heim­ili.“

Áttu þinn upp­á­halds­hönnuð? „Nei, ekki beint en ég er mjög hrifin af skand­in­av­ískum og ítölskum hönn­uðum.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til? ,,Nirvana, en ég væri samt til í mynd eftir Eggert Pét­urs­son list­mál­ara.“

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn? „Fjólu­blár og margir jarð­litir.“

Hvar líður þér best? „Heima hjá mér í faðmi fjöl­skyld­unnar og vina. Það sakar ekki að vera að elda góðan mat.“

Hvað heillar þig mest við haustið? „Það eru haust­lit­irnir í nátt­úr­unni og lyktin af haustinu. Þegar fer að rökkva bæti ég við fleiri kerta­stjökum og kveiki oftar á kertum.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag? „Erfitt að segja, það eru svo margir svalir og flottir veit­inga­staðir á Íslandi í dag en ætli ég verði ekki að segja Sumac á Lauga­veg­inum sem er með mið­aust­ur­lenska- og norður-afríska mat­reiðslu. Frábær staður.“

Er ein­hver bygg­ing­ar­stíll sem heillar þig meira enn annar? „Fún­kis­stíll heillar mig mest.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … „að njóta sam­veru­stunda með vinum og fjöl­skyldu og gera skemmti­lega hluti saman. Þá má ekki gera lítið úr því að vera í gef­andi starfi.

Mynd / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur