Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Langar í Arco-gólflampa í stofuna

Fast­eigna­sali vik­unnar.

Langar í Arco-gólflampa í stofuna

Fast­eigna­sali vik­unnar er Guð­mundur Th. Jónsson, fram­kvæmda­stjóri og annar af eig­endum Fast­eigna­mark­að­ar­ins ehf. Hann á eina dásam­lega dóttur, Klöru Rut, sem er fædd árið 2005 og býr í ein­býli í hæða­hverf­inu í Garðabæ og hefur gert síð­ast­liðin 9 ár.

Hvað heillar þig mest við starfið? „Það er mjög margt en lík­lega eru það fyrst og fremst líf­leg sam­skipti við fólk og að upp­lifa ánægju við­skipta­vina að far­sælum fast­eigna­við­skiptum afstöðnum. Eins finnst mér frá­bært að koma til vinnu á hverjum degi og hitta fyrir það frá­bæra sam­starfs­fólk sem ég er svo lán­samur njóta sam­vista með.“

Getur þú lýst hefð­bundnum vinnu­degi hjá þér? „Dagurinn byrjar í World Class kl. 6.45 og ég mæti oft­ast til vinnu um kl. 8.30. Við fast­eigna­salar búum við þau for­rétt­indi að dag­arnir eru mjög fjöl­breyttir. Þeir fela til dæmis í sér að eiga sam­skipti við kaup­endur og selj­endur, ýmist vegna til­boðs­gerðar, skoð­ana á eignum, með til­liti til sölu og verð­mats, bæði fyrir ein­stak­linga og fyr­ir­tæki. Einnig eru fund­ar­höld algeng vegna ráð­gjafar til fyr­ir­tækja og ein­stak­linga. Svo fer drjúgur tími í umsjón og rekstur fast­eigna­söl­unnar, sem er á minni könnu, en sá hluti verður að sjálf­sögðu að vera í góðu lagi. Vinnu­tími fast­eigna­sala er ekki hefð­bund­inn því það eru stöðug sím­töl í far­síma, tölvu­póstar og að skoða eignir. Ég skal alveg við­ur­kenna að starfið getur stundum verið mjög krefj­andi þegar áreitið er mikið á öllum tímum sól­ar­hrings þegar maður hefur jafn­vel gert áform um að verja tím­anum í annað.“

„Það þarf stöðugt að end­ur­nýja á heim­il­inu, hluti sem ganga sér til húðar, og akkúrat núna er ég að pæla í nýju hang­andi loft­ljósi í eld­húsið og Arco-gólf­lampa í stof­una.“

Hvað finnst þér gera heim­ili að heim­ili? „Að það sé opið vinum og fjöl­skyldu. Eins skiptir mig máli að hafa ekki of marga hluti í kringum mig þannig að heim­ilið sé yfir­hlaðið. Verð svo eig­in­lega að taka fram að ég er með hrein­gern­ing­ar­áráttu og hef það fyrir reglu að hrein­gera heim­ilið að minnsta kosti einu sinni í viku. Mér finnst best að sjá um það sjálfur ein­hverra hluta vegna.“

Getur líst þínum stíl? „Einfalt er gott. Vandaðir hlutir og færri.“

Áttu þinn upp­á­halds­arki­tekt? ,,Þeir eru margir, meðal ann­ars Sigvaldi Thordar­son og Högna Sig­urð­ar­dóttir, sem hafa teiknað mörg að fal­leg­ustu húsum lands­ins. Orri Árnason hjá Zeppelin-arki­tektum finnst mér vera frá­bær og með sinn eigin ein­staka stíl. Eins held ég mikið upp á Baldur Svav­ars­son hjá Úti – Inni arki­tektum, en hann teikn­aði einmitt húsið sem ég bý í og mér finnst hönn­unin á því vera ein­stak­lega vel heppnuð.“

Áttu þinn upp­á­halds­hönnuð? „Mér hefur þótt mjög gaman að fylgj­ast með vel­gengni íslenskra hönn­uða á alþjóð­legum vett­vangi og má þar til dæmis nefna Siggu Heimis, sem hefur náð mjög langt í sínu fagi og er að gera mjög skemmti­lega hluti.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til? „Ég hef verið að reyna að temja mér að vera frekar ánægður með það sem ég hef heldur en að hugsa stöðugt um eitt­hvað sem mig kynni mögu­lega að vanta. Eina sem mér kemur í huga er að ég myndi vilja öðl­ast meiri innri frið, en er að vinna í því líka.“

Er ein­hver hlutur sem þig langar að eign­ast í húsið þitt? „Það þarf stöðugt að end­ur­nýja á heim­il­inu, hluti sem ganga sér til húðar, og akkúrat núna er ég að pæla í nýju hang­andi loft­ljósi í eld­húsið og Arco-gólf­lampa í stof­una.“

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn? „Enginn sér­stakur, en mis­mun­andi hlutir bera liti á mis­mun­andi hátt þannig að upp­á­halds­lit­ur­inn veltur svo­lítið á því um hvaða hlut ræðir. Í nátt­úr­unni eru upp­á­hald­s­lit­irnir mínir þeir sem árs­tíð­irnar skapa hverju sinni og ótrú­legur fjöl­breyti­leiki í þeim.“

Fast­eigna­sali vik­unnar er Guð­mundur Th. Jónsson, fram­kvæmda­stjóri og annar af eig­endum Fast­eigna­mark­að­ar­ins ehf.

Hvar líður þér best? „Mér líður best í stang­veiði með veiði­fé­lögum mínum og bestu vinum, Níelsi, Gísla og Hilmi, hvar sem við erum staddir hverju sinni. Lax­veiðin er mitt upp­á­halds­á­huga­mál en væri lítið varið í hana ef félags­skap­ur­inn væri ekki góður. Hef reynt að fá Patrek Jóhann­es­son, einn af mínum bestu vinum, til að veiða með mér í nokkur ár, án árang­urs, en ætli ég geri ekki enn eina til­raun með það í sumar.“

Er eitt­hvað sem þig langar að eign­ast í garð­inn? „Þarf að end­ur­nýja gas­grillið því það er orðið 15 ára gam­alt. Ætla svo að lofa því hér á opin­berum vett­vangi að bjóða vinum mínum í grill­veislu í garð­inum í sumar svo að ég verði lík­lega að standa við það.“

Áttu þér upp­á­halds­hverfi á höf­uð­borg­ara­svæð­inu? „Fyrir mér er Garða­bær­inn alltaf í upp­á­haldi enda er ég alinn upp þar og ber því taugar til þess bæj­ar­fé­lags. Þar liggja ræt­urnar og þar eign­að­ist maður sína æsku­vini. Minn­ing­arnar eru margar og góðar og ég er ánægður með að búa í Garðabæ í dag, sem er að mínu mati afburða­vel rekið sveit­ar­fé­lag og öll þjón­usta við íbúa eins góð og á verður kosið. Ég er þó viss um að sitt sýn­ist hverjum í þessum efnum, en jafn­framt að mjög mörgum verður hugsað til æsku­stöðv­anna þegar þeir fá svona spurn­ingu.“

Er ein­hver bygg­ing­ar­stíll sem heillar þig meira en annar? „Nei, ég er mjög opinn fyrir bygg­ing­ar­stílum en reyni að sjá eitt­hvað óhefð­bundið og skemmti­legt í hverjum og einum. Fór fyrir nokkrum árum um landið með góðum vini og skoð­aði staf­kirkj­urnar, m.a. við Víðihlíð, Hofsós og í Eyja­firði og verð að segja að það er magn­aður bygg­ing­ar­stíll, sem ég held að sem flestir ættu að gefa sér tíma til að skoða ef þeir eru á ferða­lagi um landið. Nú svo er Staf­kirkja í Vest­manna­eyjum og ein á Árbæj­ar­safn­inu fyrir þá sem ætla ekki út fyrir borg­ar­mörkin.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag? „Það er ótrú­leg gróska í veit­inga­staða­menn­ing­unni á Íslandi og frá­bært að sjá hvað það hefur orðið mikil bylt­ing í þeim efnum á síð­ast­liðnum tíu árum eða svo. Mínir upp­á­halds­staðir eru Sushi Social, Rok, Lof, Rossopomodoro og svo stað­ur­inn þar sem ég borða oft­ast og býður upp á ótrú­lega fjöl­breyttan og hollan mat, en það er Nat Kitchen á Lauga­vegi 85.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … verja eins miklum tíma og hægt er með þeim sem þér þykir mest vænt um og skipta þig mestu máli. Ég má alveg gera betur í því og það er eitt af mark­mið­unum í líf­inu að gera það.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur