Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tökum snjónum fagnandi

Nú þegar snjór­inn er far­inn að falla er nauð­syn­legt að láta hann ekki fara í taug­arnar á sér heldur njóta þess besta sem hann hefur upp á að bjóða.

Tökum snjónum fagnandi

Minna stress
Við verðum að sætta okkur við þann veru­leika að við búum á Íslandi og því fyrr sem við gerum það því betra. Ekkert getur komið í veg fyrir að snjónum kyngi niður og því um að gera að taka honum fagn­andi. Þetta er tæki­færi til að gíra sig niður og staldra við í núinu. Við þurfum ekki alltaf að flýta okkur svona mikið og það er allt í lagi að missa af ein­hverju. Förum fyrr af stað á morgn­ana, tökum góðan tíma í að skafa bíl­inn og njótum þess að fara ofur­hægt í vinn­una, jafn­vel í langri bíla­lest.

Farðu út með hund­inn.

Út að leika
Snjórinn er enda­laus upp­spretta skemmti­legra leikja, enda ekki að ástæðu­lausu sem flest börn elska snjó­inn. Klæddu þig vel og skelltu þér út í snjó­inn að leika hvort sem þú átt börn eða ekki. Krökkum finnst ekk­ert skemmti­legra en þegar mamma og pabbi gefa sér tíma til að leika við þau og því getur snjór­inn leitt til hinna skemmti­leg­ustu fjöl­skyldu­stunda. Það er hægt að búa til snjó­karla, byggja snjó­hús, renna sér á sleða, snjó­þotum, rassa­þotum eða jafn­vel plast­pokum, fara í snjó­kast, búa til snjó­engla, moka bíl­inn upp, hreinsa stétt­ina og svo margt fleira. Þá er um að gera að kíkja til ömmu og afa, gam­allar frænku eða hvaða vina og vanda­manna sem er og moka þau út. Þannig er nán­ast gull­tryggt að þið vinnið ykkur inn fyrir heitu súkkulaði og góm­sætu bakk­elsi.

Þegar allt er komið á kaf er ekk­ert eins hressandi og að fara út og moka snjó. Gott er að taka hraust­lega á því með því að moka vel frá dyrum, stétt­ina og bíla­stæðið.

Lík­ams­rækt og sam­kennd
Þegar allt er komið á kaf er ekk­ert eins hressandi og að fara út og moka snjó. Gott er að taka hraust­lega á því með því að moka vel frá dyrum, stétt­ina og bíla­stæðið. Þannig hittir maður jafn­vel nágrann­ana sem eru úti í sama til­gangi og getur loks­ins gefið sér tíma til að spjalla við þá og kynn­ast þeim aðeins. Ekki hika við að hjálpa nágrönn­unum með því að moka fyrir þá líka. Ekki eru allir jafn­hraustir, og gömlu hjónin sem búa við hlið­ina á þér yrðu án efa ákaf­lega þakk­lát fyrir við­vikið.

Allir hjálp­ast að
Sérstök stemn­ing mynd­ast þegar nátt­úran tekur í taumana og setur allar sam­göngur úr skorðum. Það er gaman að sjá hve margir eru til­búnir til að hjálpa öðrum að ýta bílum sem eru fastir víða og í höf­uð­borg­inni mynd­ast svona „úti á landi“ stemn­ing. Fólk er glatt og þakk­látt fyrir aðstoð­ina og það er gaman að geta hjálpað öðrum. Ekki hika við að bjóða fram hjálp þína ef ein­hver er fastur í skafli, jafn­vel þótt þú sért smá­gerður ein­stak­lingur. Margar hendur vinna létt verk og þú munt án efa fram­kalla gleði í hjarta bæði hjá sjálfri/sjálfum þér og öðrum.

Mynda­tökur í ævin­týra­heimi
Skellið ykkur í göngu­ferð og njótið þess ævin­týra­lega umhverfis sem snjór­inn hefur skapað. Endilega takið mynda­vél­ina með og festið dýrð­ina á „filmu“. Prófið ykkur áfram með alls kyns vinkla, og takið bæði nær­myndir og yfir­lits­myndir. Ef þú átt börn er til­valið að stilla þeim upp við þessar aðstæður og hver veit nema að þarna sé komin jóla­korta­myndin í ár. Ekki verra að hafa klárað eitt­hvað áður en stressið sem oft vill fylgja und­ir­bún­ingi jól­anna tekur völdin. Á svona stundu eru líka allir slakir sem gefur von um ein­stak­lega góða mynd.

Takið mynda­vél­ina með og festið dýrð­ina á „filmu“.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / www.pixabay.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu