Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Tók á móti barni í miðju matarboði“

Anna Eðvalds­dóttir, ljós­móðir og hjúkr­un­ar­fræð­ingur, hefur tekið á móti tæp­lega 1600 börnum og hefur í gegnum tíð­ina gefið for­eldrum ráð við öllu sem teng­ist komu nýs ein­stak­lings í heim­inn. Nú hefur hún látið gamlan draum ræt­ast þar sem þessi ráð eru nú saman komin í fal­legri bók.

„Tók á móti barni í miðju matarboði“
||
Anna Eðvalds­dóttir, ljós­móðir og hjúkr­un­ar­fræð­ingur.

„Þessi bók hefur verið í huga mínum í mörg ár. Ég fann fyrir hvað mikil þörf var á að for­eldrar, ömmur og afar gætu leitað svara við spurn­ingum sínum. Þar sem öll svör væru til í einni bók. Ég var enda­laust að gefa ráð, svara spurn­ingum og fann svo vel fyrir þakk­læt­inu þegar ráðin dugðu. Oftar en ekki sögðu for­eldr­arnir, „mikið væri nú gott að geta bara flett upp í einni Önnu ljósu í bók“,“ segir Anna. Sylvía Rut Sig­fús­dóttir skrif­aði bók­ina sem ber heitið Fyrstu mán­uð­irnir – ráðin hennar Önnu ljósu. Esther Viktoría Ragn­ars­dóttir og Ari Arn­alds­son teikna mynd­irnar sem prýða bók­ina og Bóka­fé­lagið gefur hana út.

„Bókin fjallar um öll þau ráð sem ég hef gefið í heima­þjón­ustu. Þar er talað um und­ir­bún­ing­inn undir fæð­ing­una, eldri systk­ini, fyrstu dag­ana heima, barnið þegar það kemur í heim­inn, líðan móður eftir fæð­ingu, nær­ingu barns­ins brjósta­gjöf og pela­gjöf, melt­ingu, grát fyrstu dag­ana, umhirðu barns­ins, veik­indi barns­ins, hitt for­eldrið, and­vana fæð­ingu, end­ur­lífgun og margt margt fleira.“

„Sjúkra­lið gæti ekk­ert gert á þessu augna­bliki sem ég gæti ekki gert. Skelli mér aftur í hanska, laga rauða kjól­inn minn og í næstu hríð fædd­ist spræk og ynd­is­leg stúlka.“
Bókin fjallar um öll þau ráð sem Anna hefur gefið í heima­þjón­ustu.

Fæðing í miðju mat­ar­boði
Á þessum tíma sem Anna hefur verið ljós­móðir hefur ýmis­legt komið upp á. Annar júní 2009 er henni til dæmis minn­is­stæður. „Ég var með smá­vegis mat­ar­boð heima hjá mér og þegar við vorum að klára að borða hringdi sím­inn. Þá er það nágranna­kona sem býr ská á móti mér. Ég var búin að vera með hana í mæðra­vernd og hún sagð­ist vera með ein­hverja „murn­ings“ verki, hvort ég gæti skoðað hana því hún nennti ekki niður eftir ef ekk­ert væri að ger­ast. Ég skott­að­ist yfir með tösk­una mína í rauðum sum­ar­kjól og rauðum lakk­skóm. Eftir skoðun segi ég henni að ef hún ætli ekki að fæða í bílnum þá skuli hún drífa sig á fæð­ing­ar­deild­ina því hún sé komin með átta í útvíkkun. Ég sný mér frá henni og fer úr hansk­anum. Hún fer að skelli­hlæja, vatnið fer og koll­ur­inn fæð­ist. Pabbinn spurði hvort hann ætti að hringja á sjúkra­bíl en ég sagði honum að setj­ast bara hjá kon­unni sinni og sýna henni stuðn­ing. Sjúkra­lið gæti ekk­ert gert á þessu augna­bliki sem ég gæti ekki gert. Skelli mér aftur í hanska, laga rauða kjól­inn minn og í næstu hríð fædd­ist spræk og ynd­is­leg stúlka. Eldri bræður hennar þrír höfðu verið sendir í ísbúð með ömmu sinni meðan ég skoð­aði mömmu þeirra og það var dásam­legt að upp­lifa þegar þeir komu til baka og sáu á hverju mamma þeirra hélt þegar þeir komu inn í her­bergið. Þegar ég kom aftur heim voru allir í róleg­heitum að fá sér kaffi. Ég sagð­ist aðeins hafa skroppið yfir í næsta hús að taka á móti barni, sagði svo: „Viljið þið meira kaffi“.“

Ljósuhjartað stundum brostið

Og kjara­bar­átta ljós­mæðra hefur ekki farið fram hjá Önnu frekar en öðrum. „Kjara­bar­átta okkar ljós­mæðra er bar­átta fyrir allar konur. Það var alveg kom­inn tími til að leið­rétta laun ljós­mæðra þannig að nýúr­skrifuð ljós­móðir lækki ekki í launum fyrir það eitt að bæta við sig tveimur náms­árum eftir fjög­urra ára hjúkr­un­ar­nám. Þetta er búið að vera erfitt og ljósu­hjartað mitt hefur nokkrum sinnum brostið í þess­ari bar­áttu. Ég hef aldrei upp­lifað eins mikla og góða sam­stöðu okkar ljós­mæðra og með­byr­inn í þjóð­fé­lag­inu gríð­ar­legur. Þetta hefur verið erfitt fyrir alla; ljós­mæður, sam­starfs­fólk og verð­andi for­eldra.“

Myndir af Önnu / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ