Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Árið 2019 ætla ég að …

Árið 2019 ætla ég að …
2019

Rann­sóknir hafa sýnt að ríf­lega þriðj­ungur fólks strengir ára­móta­heit á hverju ári. Lyk­ill­inn að því að standa við ára­móta­heit er að ætla sér ekki um of, velja sér aðeins eitt eða tvö, og vera búinn að ákveða þau með fyr­ir­vara. Hér eru nokkur góð ára­móta­heit tengd heilsu til að veita inn­blástur og vekja til umhugs­unar.

Lífsstílsbreytingar

Algeng­asta ára­móta­heitið er án efa það að létt­ast, breyta matar­æð­inu eða hreyfa sig meira. Það kannski sýnir einna best hversu erfitt er að snúa við blað­inu og lifa heil­brigð­ara lífi. Vandinn er að fólki hættir til að vilja sjá árang­ur­inn strax og þegar það ger­ist ekki þá missir það móð­inn. Best er að forð­ast allar skyndi­lausnir og setja sér hóf­leg mark­mið.

Hætta að reykja

Flestir reyk­inga­menn hafa reynt að hætta alla­vega einu sinni og jafn­vel oftar. Margir verða hræddir við að reyna að hætta því þeir ótt­ast það að mis­takast enn einu sinni. Stað­reyndin er sú að það tekur suma margar til­raunir en það er betra að reyna aftur og mis­takast en að reyna ekki. Þú þarft að finna út hver birt­ing­ar­mynd fíkn­ar­innar er hjá þér og hvaða lausn hentar þér best. Það verður án efa erfitt en verður þess virði til langs tíma litið.

Draga úr streitu

Það er alls ekk­ert slæmt að vera undir dálitlu auka­á­lagi öðru hverju, þvert á móti getur það gert okkur afkasta­meiri og gefið okkur aukna orku. Lang­tíma­streita og álag hefur hins vegar þver­öfug áhrif og auka meira að segja líkur á svefn­leysi, hjarta­sjúk­dómum, þung­lyndi, ofþyngd og fleiru. Langir vinnu­dagar, ónógur svefn, lítil hreyf­ing, lélegt matar­æði og skortur á sam­veru­stundum með fjöl­skyldu og vinum getur leitt til streitu­aukn­ingar. Til að snúa niður af víta­hringnum sem oft mynd­ast þarf að laga þessi atriði. Gott er að taka eitt skref í einu og stundum þarf hjálp sér­fræð­inga í lið með sér.

Drekka minna áfengi

Neysla áfengis í miklu magni er heilsu­spill­andi, hvort sem það er mikið í einu eða lítið og oft. Áfengi hefur áhrif á boð­efni í heil­anum og getur aukið líkur á minnistapi, þung­lyndi og fleiru. Það hefur líka áhrif á aðra starf­semi lík­am­ans eins og hjarta- og æða­kerfið og lifr­ina og svo hafa rann­sóknir sýnt tengsl milli ofneyslu áfengis og ýmissa krabba­meina; þar á meðal í munni, hálsi, lifur og brjóstum. Það er ekki endi­lega þörf á að hætta alveg að drekka, nema þú eigir við flókn­ari vanda að stríða en þú getur ákveðið að drekka aðeins um helgar og þá í hófi eða taka áfeng­is­lausan mánuð öðru hverju.

Sofa meira

Flestir vita að góður og end­ur­nær­andi svefn er mjög mik­il­vægur. Á meðan við sofum er gríð­ar­lega margt að ger­ast í lík­ama okkar, til dæmis fer fram nauð­syn­leg end­ur­nýjun og -upp­bygg­ing í frumum lík­am­ans. Færri gera sér grein fyrir að ónógur svefn getur aukið lík­urnar á lífs­stíls­sjúk­dómum á borð við yfir­þyngd og syk­ur­sýki 2. Svefn er líka mik­il­vægur þegar kemur að því að öðl­ast minn­ingar og styrkja minnið því það á sér stað svokölluð þjöppun í minni okkar á meðan við sofum. Þannig að við ættum öll að fara snemma upp í endrum og sinnum á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ