Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Karlarnir á kránni

Karlarnir á kránni

Fimm karl­kyns alþing­is­menn og ein alþing­is­kona hitt­ust á bar og létu gamm­inn geisa. Uppi­staðan í sam­ræð­unum var kven­fyr­ir­litn­ing, karla­grobb, hómó­fóbía og stað­fest­ing á því að íslensk póli­tík gengur meira og minna út á hrossa­kaup og greiða á móti greiða. Ekkert nýtt í því. Það sem blessað alþing­is­fólkið vissi hins vegar ekki var að ein­hver óprútt­inn krá­ar­gestur var með sím­ann sinn stilltan á hljóð­upp­töku sem hann/hún síðan sendi á fjöl­miðla. Hver fréttin af annarri af þessum óform­lega fundi birt­ist á vef­miðlum og fjand­inn varð laus á Facebook og Twitter. Alþing­is­menn­irnir báð­ust afsök­unar á ummælum sínum í bak og fyrir, með þeim fyr­ir­vara að sjálf­sögðu að þeir hefðu verið drukknir og þar af leið­andi ekki ábyrgir orða sinna. Engum þeirra dettur í hug að segja af sér þing­mennsku og í við­tölum fjöl­miðla við þá kemur skýrt fram að þeir eiga ekki von á því að nokkur eft­ir­mál verði af þessu gaspri þeirra. Þeir treysta sem fyrr á gull­fiska­minni kjós­enda og ætla ótrauðir að halda sínu striki. Nema hvað? Það er ekki hefð fyrir því að íslenskir stjórn­mála­menn taki ábyrgð á orðum sínum og gerðum. Þeir skáka enda­laust í því skjól­inu að þeir séu ósnert­an­legir og kjós­endum komi í raun­inni ekk­ert við hvað þeir eru að aðhaf­ast. Þeir eiga þetta, þeir mega þetta.

Svörin sem þessir alþing­is­menn hafa gefið fjöl­miðlum um rætur ummæla sinna á fyrr­nefndu fylliríi eru grát­lega fyr­ir­sjá­an­leg. Það eru hin hefð­bundnu svör ofbeld­is­manna: „Fyr­ir­gefðu, ég meinti þetta ekki, ég var bara fullur, ég var bara reiður, þú veist að ég er ekki svona maður. Ég ber mikla virð­ingu fyrir konum, þótt ég meti þær ein­göngu út frá útliti þeirra og kalli allar konur sem hafa skoð­anir sem þær fylgja eftir, klikk­aðar kuntur, kræfar kerfiskerl­ingar og apa­k­etti sem ekk­ert vita, kunna eða geta. Það tala sko allir svona þegar þeir eru einir með strák­unum. Þú veist það.“

Nei, kæru alþing­is­menn, við vitum það ekki. Þótt kven­fyr­ir­litn­ingin í jafn­réttisparadís­inni Íslandi sé stæk og rót­gróin þá tala sem betur fer ekki allir svona. Allra síst menn sem hafa verið í far­ar­broddi alþjóð­legra verk­efna í jafn­rétt­is­málum. Að vera fullur er heldur engin afsökun. Og fólk „lendir“ ekki í því að segja hluti. Það er alltaf með­vituð ákvörðun hvað sem inn­byrtu áfeng­is­magni líður. Og það yfir­klór að halda því fram að lýs­ingar á póli­tískum hrossa­kaupum séu „bara lygi“ er svo yfir­gengi­lega heimsku­legt og ber vott um svo litla virð­ingu fyrir almenn­ingi að það tekur engu tali. Ekki bjóða okkur upp á svona raka­laust bull, kæru alþing­is­menn. Reynið að hegða ykkur eins og viti bornar mann­eskjur. Stígið til hliðar og axlið ábyrgð á eigin bulli. Helst ekki síðar en strax. Því þótt það hafi greini­lega alveg farið fram hjá ykkur þá hafa tím­arnir breyst. Alþing­is­menn eru ekki lengur ósnert­an­legir og Inter­netið man það sem gull­fisk­ur­inn gleymir. Það hlýtur að fara að koma að því að kjós­endur fái nóg og setji ykkur stól­inn fyrir dyrnar. Hingað og ekki lengra. Ykkar tími er lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ