Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Kemst þangað sem ég ætla mér“

Ragn­heiður Ragn­ars­dóttir varð lands­þekkt á Íslandi fyrir sunda­frek sín, tók meðal ann­ars í tvígang þátt í í keppni á Ólymp­íu­leikum, en hún söðl­aði um og und­an­farin ár lærði hún leik­list í Los Angeles og setti sér það mark­mið að fá hlut­verk í sjón­varps­þátt­unum Vikings þegar nám­inu lyki. Það tók fjögur ár en eins og þeir vita sem séð hafa stikl­una fyrir fimmtu seríu þátt­anna leikur hún þar stórt hlut­verk. Auk þess leikur hún í fleiri þáttum, sem hún má alls ekki tjá sig um strax, er ein­stæð móðir fimm ára sonar og tekur enn þátt í sund­keppnum. Við spyrjum hana hvert leynd­ar­málið er á bak við þennan árangur.

„Kemst þangað sem ég ætla mér“
|Ragga Ragnars

Ragn­heiður, eða Ragga eins og hún er alltaf kölluð, ólst upp í Garða­bænum og Danmörku, byrj­aði að æfa sund sex ára gömul og var komin í ung­linga­lands­liðið tólf ára og lands­liðið fjórtán ára. Hún keppti fyrst á Ólymp­íu­leikum árið 2004 í Aþenu og svo aftur í Bejing 2008. Hún var á fullu að æfa fyrir leik­ana í London 2012 þegar örlögin gripu í taumana.

„Ég held bara áfram að vinna að mínu og kom­ast þangað sem ég ætla mér. Það er svo gaman að vera til!” Mynd / Hallur Karlsson

„Þá var ég orðin ólétt, komin fjóra mán­uði á leið, þannig að það fór ekki alveg eins og stefnt var að,“ segir hún hlæj­andi. „En það var raunar kær­komin hvíld . Ég hafði fengið lungna­bólgu fyrr um vet­ur­inn og var lengi þreytt og veik og mér fannst þetta ágætis tími til að taka góða pásu frá sund­inu.“

Sonur Röggu, Breki, verður sex ára í febr­úar en hann gengur í Ísaks­skóla og fylgir móður sinni oft á upp­töku­staði þátt­anna og kvik­mynd­anna sem hún leikur í. Hún segir vel hafa gengið að sam­ræma hlut­verk ein­stæðrar móður því flökku­lífi sem fylgir leik­ara­brans­anum.

„Þetta er púsl,“ við­ur­kennir Ragga. „En mér finnst þetta gaman. Á meðan ég var í sund­inu varð ég auð­vitað vön því að vera alltaf að ferð­ast, var að æfa og keppa út um allan heim, þannig að ég vand­ist því að búa hálf­part­inn í ferða­tösku og hann er að venj­ast því líka. Stundum kemur hann með mér, stundum er hann heima en hér hef ég góða hjálp frá öllum í kringum mig, enda þarf þorp til að ala upp barn. Síðan hann byrj­aði í skól­anum er orðið aðeins erf­ið­ara að fara með hann í burtu en ég tek hann stundum með mér í viku hér og viku þar. Hann var líka með mér í Dublin í allt sumar þar sem þætt­irnir Vikings eru teknir upp.“

Ólympíuleikarnir og Óskarsverðlaunin efst á óskalistanum

Ragga býr yfir mik­illi þol­in­mæði og vissi að allt tæki sinn tíma. „Fyrst eftir að ég hætti að synda sinnti ég bara móð­ur­hlut­verk­inu til að byrja með,“ segir Ragga. „Ég tók mér hlé alveg í tvö ár en þegar sonur minn var rúm­lega eins árs flutti ég til L.A til að fara í nám í leik­list. Ég lærði þar í um það bil eitt og hálft ár, tók enga gráðu samt, og fékk síðan atvinnu­leyfi í Banda­ríkj­unum í eitt ár.

Ég ákvað þegar ég var sjö eða átta ára að ég ætl­aði að verða leik­kona, svo það var alltaf það sem ég stefndi að þegar ég kláraði sundið. Ég sagði einmitt við pabba þegar ég var sjö ára að þegar ég yrði stór ætl­aði ég á Ólymp­íu­leik­ana og á Ósk­arsverð­launa­af­hend­ingu. Hann sagði bara flott, gaman, gerðu það! Ég er mjög þol­in­móð mann­eskja og ég veit að hlut­irnir taka tíma, það tekur ekki korter að und­ir­búa sig fyrir Ólymp­íu­leika og ekki heldur fyrir frama í leik­list.“

Ég ákvað þegar ég var sjö eða átta ára að ég ætl­aði að verða leik­kona, svo það var alltaf það sem ég stefndi að þegar ég kláraði sundið.

Leik­list­ar­á­hug­inn er greini­lega land­lægur í fjöl­skyld­unni því leik­konan Heiða Rún Sig­urð­ar­dóttir, sem hefur meðal ann­ars leikið í sjón­vaps­þátt­unum um Stellu Blóm­kvist og bresku þátt­unum Poldark, og Ragga eru til dæmis bræðra­börn. Svo virð­ist sem áhug­inn sé í ætt­inni.

„Amma mín var mik­ill „per­for­mer“,“ segir Ragga hlæj­andi. „Ekki kannski endi­lega leik­kona en hún var alltaf að spila á gítar og koma fram og vera veislu­stjóri hér og þar. Bróðir mömmu er Valgeir Guð­jóns­son Stuð­maður svo maður vand­ist því að fólk í fjöl­skyld­unni væri í sviðs­ljós­inu. Guðjón bróðir minn er svo kvik­mynda­gerð­ar­maður, fór með mér til L.A til að læra leik­list en er núna kom­inn alveg á fullt í kvik­mynda­gerð­inni.“

Aldrei spurning að hún kæmist inn í Vikings

Eins og fyrr segir var Ragga lengi harð­á­kveðin í því að landa hlut­verki í Vikings. „Ég hreifst svo af þátt­unum þegar ég byrj­aði að horfa á þá þegar sonur minn var nokk­urra vikna gam­all,“ útskýrir hún. „Það að vilja verða leik­kona er eitt, en að vita hvert maður ætlar er annað. Ég hugs­aði aldrei: kannski fæ ég eitt­hvað að gera, heldur var ég harð­á­kveðin í því að ég ætl­aði að leika í þessum þáttum. Ég veit að ég er ekki týpan sem fær hlut­verkin sem sæta stelpan í næsta húsi, ég er 188 senti­metrar á hæð, mjög sterk og vel á mig komin og maður þarf að vita það sjálfur hvaða hlut­verk henta manni. Ég hætti aldrei að trúa því að ég fengi hlut­verk í Vikings, það var ekki bara að ég vildi það heldur ætl­aði ég þangað. Fólk rang­hvolfdi aug­unum þegar ég, nýbyrjuð í skól­anum, var spurð hvar ég sæi mig fyrir mér eftir fimm ár og ég svar­aði strax að ég myndi vera að leika í Vikings. Það var ekki neitt sem ég þurfti að sanna að ég gæti, ég hef aldrei hugsað þannig, ég fer bara þangað sem ég vil og ætla mér og mér finnst skipta máli. Hingað til hef ég gert allt sem ég hef sett mér mark­mið um og ætla að halda því áfram. Þannig að það var aldrei spurn­ing í mínum huga að ég kæm­ist inn í þætt­ina. Það tók langan tíma, nærri fjögur ár, en ég komst þangað að lokum.

Fólk rang­hvolfdi aug­unum þegar ég, nýbyrjuð í skól­anum, var spurð hvar ég sæi mig fyrir mér eftir fimm ár og ég svar­aði strax að ég myndi vera að leika í Vikings.

Margir halda að maður geti bara fengið hlut­ina á einn hátt, hvort sem það eru pen­ingar eða vinna eða barn eða hvað sem það er,“ segir Ragga. „Ég hef bara aldrei hugsað þannig. Ég hef alltaf hugsað að maður fái bara allt sem maður vill og það komi þegar það á að koma og eins og það á að koma. Ég var ekki með umboðs­mann sem fann hlut­verkið fyrir mig, ég bara skófl­aði mig áfram og hitti fólk á leið­inni sem gat ekki hjálpað mér en líka fólk sem gat hjálpað mér. Ég í raun­inni bara spurði alla í brans­anum hvort þeir þekktu ein­hvern sem væri að vinna í Vikings og loks­ins eftir þrjú ár datt ég inn á ein­hverja línu og fékk að tala við fólk hér og þar. Var kynnt fyrir manni sem þekkti ein­hvern sem þekkti ein­hvern og svo kom þetta bara smám saman. Á end­anum komst ég í sam­band við Michael Hirst, aðal­hand­rits­höf­und þátt­anna, og hann fékk að sjá mig og heyra hver ég var og nokkrum vikum seinna var hlut­verk komið inn á borð til mín.“

Ragga verður vand­ræða­leg á svip þegar hún er spurð hvort Hirst hafi skrifað hlut­verkið sér­stak­lega fyrir hana. „Hann hefur örugg­lega verið með þetta til­búið,“ segir hún fljótt. „En kannski séð að þetta hlut­verk hent­aði mér vegna þess að hann er mjög góður mann­þekkj­ari. Þegar ég las hlut­verkið fannst mér eins og það hefði verið skrifað fyrir mig en auð­vitað var málið að það pass­aði mér bara svo vel. Hann náði mér algjör­lega og ég þurfti mjög lítið að und­ir­búa mig fyrir hlut­verkið, þetta var bara ég. En ég fór svo auð­vitað í prufu, það er bara ferlið. Ég fór í „screen test“, var sett í bún­ing og lék eitt atriði og nokkrum vikum seinna var ég komin til Dublin og byrjuð að vinna, eig­in­lega áður en ég vissi af. Ég missti mig aldrei eitt­hvað yfir að hafa fengið hlut­verkið, þetta var bara planið og það gekk upp.“

Þegar ég las hlut­verkið fannst mér eins og það hefði verið skrifað fyrir mig en auð­vitað var málið að það pass­aði mér bara svo vel.

Vildi ekki leika í Game of Thrones

Eins og gefur að skilja er karakter Röggu nýr í þátt­unum en hún harð­lok­ast þegar spurt er nánar út í hann. Þátta­röðin fer í sýn­ingu þann 28. nóv­em­ber og það er harð­bannað að spilla fyrir vænt­an­legum áhorf­endum, sem eru millj­ónir um allan heim. Hún við­ur­kennir þó að þetta sé stórt hlut­verk og per­sóna sem skipti máli í sög­unni.

„Ég kem fyrir í stiklunni og ofurað­déndur þátt­anna hafa ham­ast við að púsla saman hlut­unum og reyna að kom­ast að ein­hverju um þennan karakter sem sam­kvæmt stiklunni er greini­lega í víg­lín­unni, en meira get ég ekki sagt þér,“ segir hún ákveðin.

Ragn­heiður seg­ist alltaf ná mark­miðum sínum, en það kosti vinnu, aga og enda­lausa þol­in­mæði. Mynd / Hallur Karlsson

Eins og dyggir áhorf­endur Vikings vita byggja þætt­irnir á Íslend­inga­sög­unum og nor­rænum goð­sögum, aðal­hetjan er Ragnar loð­brók, þannig að fólk kann­ast við per­són­urnar, þótt ýmsum sé auð­vitað bætt við til að breikka sög­una. Ragga segir að þetta séu hennar upp­á­halds­þættir og hafi verið lengi, hún hafi alltaf vitað að þetta væri málið fyrir hana.

„Ég horfði líka á Game of Thrones en þá hugs­aði ég ekki að ég ætl­aði að leika í þeim. Alveg góðir þættir, en ekki fyrir mig. Eftir að ég fékk atvinnu­leyfið í Banda­ríkj­unum vann ég rosa­mikið í heilt ár, fékk engin stór hlut­verk samt, var með umboðs­mann sem ég síðan hætti hjá því mér fannst hann ekki gera nóg fyrir mig. En hann sendi mig í alls konar prufur fyrir hitt og þetta, ég fékk vinnu við nokkrar aug­lýs­ingar, var auka­leik­ari í sumum stærstu þátt­unum í heim­inum, eins og Scandal og West World, og sömu­leiðis í nokkrum bíó­myndum með frægum leik­urum. Ég vann líka í tvo mán­uði sem „stand in“ fyrir eina af leikkon­unum í stórri bíó­mynd og kynnt­ist öllum sem unnu við mynd­ina. Það var mjög gaman. Svo rann atvinnu­leyfið út og ég flutti heim, fékk mér vinnu og byrj­aði að skófla mig enn þá meira í átt að Vikings.“

Þætt­irnir eru að stærstum hluta teknir upp á Írlandi og Ragga hefur verið í Dublin meiri­part­inn af síð­ustu tveimur árum að vinna við þá. Hún er samt ekki upp­numin yfir frægð­ar­líf­inu, segir vinn­una við þætt­ina voða svip­aða því að vera sund­kona.

„Það er mikið af ferða­lögum, ég vakna klukkan fjögur, fimm á morgn­ana og mæti í stól­inn fyrir hár og mei­köpp, fer svo í bún­ing­inn og fyrir klukkan átta er ég mætt á sett og byrjuð að vinna. Eins og í sund­inu þarf ég að vera vel und­ir­búin, and­lega og lík­am­lega, þarf að kunna allar senur og allar línur, þetta er mikil vinna og mjög krefj­andi fyrir bæði lík­ama, sál og huga. Það er oft mjög kalt, maður er kannski fáklæddur úti í marga klukku­tíma í snjó og frosti en samt er rign­ing­ar­vél með ísköldu vatni beint að manni á meðan maður er að berj­ast. Þetta er rosa­lega skemmti­legt líf en mjög krefj­andi og ég er alveg búin á því þegar ég kem heim eftir dag­inn og þarf að fara að læra línur fyrir næsta dag, sinna barn­inu og elda mat. Þannig að þetta er heil­mikið púsl allt saman, en skemmti­legt.“

Þetta er rosa­lega skemmti­legt líf en mjög krefj­andi og ég er alveg búin á því þegar ég kem heim eftir dag­inn.

Tökur á sjöttu seríu hafnar

Ragga er greini­lega svaka­legt hörku­tól. „Ég veit það nú ekki,“ segir hún hóg­vær. „Ég hef bara alist upp við það að synda mjög mikið og vera alltaf und­ir­búin og til­búin til þess að gefa allt alla daga. Ég hef alltaf gefið allt í allar æfingar í sund­inu en þar lærði ég auð­vitað líka að það þarf að hvíla sig á milli og hugsa vel um matar­æðið, lík­amann og and­legu heils­una. Ég hug­leiði og passa upp á að sofa vel, ólíkt mörgum leik­urum sem eru ekki með þennan bak­grunn, fara kannski rosa­mikið á djam­mið, sofa lítið og gleyma því að drekka vatn. Það kemur niður á þeim og fólk bara springur úr þreytu. Það hefur auð­vitað alveg komið fyrir mig líka að springa úr þreytu, en ég hef alla­vega þennan grunn að kunna að hugsa vel um mig og allt sem ég þarf til þess að geta „per­for­mað“. Það er alveg sama hvort það er sund eða leik­list þá er þetta „per­formans“ sem maður er búinn að vera að æfa sig fyrir í marga daga, vikur og ár. Ég labb­aði ekk­ert inn á settið og kunni allt, sko. Ég var sett í alls konar æfingar og kenndir alls konar hlutir sem ég kunni ekki en kann núna.“

Ragga við­ur­kennir að flestir sem hún hitti séu mjög for­vitnir um hlut­verkið og reyni að fiska upp úr henni hver þetta sé, en hún loki bara munn­inum og þegi sem fast­ast. Hún geti þó lofað því að það sé margt skemmti­legt fram undan í þátt­unum og aðdá­endur muni fá sitt svika­laust.

Tökur á sjöttu seríu eru hafnar en Ragga verst allra frétta um það hvort hún taki líka þátt í þeim, hvort hennar karakter lifi fimmtu ser­í­una af. Það kom þó fram fyrr í sam­tali okkar að hún þarf enn mjög oft að fljúga til Dublin, svo það ætti að vera óhætt að treysta því að hlut­verki hennar í þátta­röð­inni sé ekki lokið. Það hefur líka kvis­ast út að með­leik­arar hennar í þátt­unum leiti mikið til hennar með fram­burð forn­ís­lenskra orða í text­anum.

Ég hug­leiði og passa upp á að sofa vel, ólíkt mörgum leik­urum sem eru ekki með þennan bak­grunn, fara kannski rosa­mikið á djam­mið, sofa lítið og gleyma því að drekka vatn.

„Það var nú ekki eitt­hvert opin­bert hlut­verk mitt að kenna þeim íslensku,“ segir Ragga og hlær. „Ég var bara oft spurð hvernig ætti að bera þetta eða hitt orðið fram þegar voru línur, eða frasar eða jafn­vel heilu ræð­urnar á íslensku, sem þeir kalla nátt­úr­lega „old norse“ en er auð­vitað bara íslenskan eins og hún er skrifuð í Íslend­inga­sög­unum og maður skilur alveg þótt það tali nátt­úr­lega eng­inn svona lengur. Ég pass­aði mig samt mjög vel á því að stíga ekki á neinar tær á sett­inu, því það er auð­vitað ekki mitt verk að kenna fólki fram­burð, ég hjálp­aði bara ef ég gat.“

Ragga hefur greini­lega nóg að gera, þótt allt sé það meira og minna leynd­ar­mál, þurfti til dæmis að fljúga til Dublin, London og Los Angeles í síð­ustu viku. Hún segir mér líka að hún sé í sam­bandi með banda­rískum tattúlista­manni sem heitir Mike, en vill ekk­ert upp­lýsa um á hvaða stigi það sam­band er. Hún vill lítið tala um hvað er fram undan.

„Nei, ekki neitt,“ segir hún og glottir. „Ég held bara áfram að vinna að mínu og kom­ast þangað sem ég ætla mér. Það er svo gaman að vera til! Ég er oft spurð að því hvernig mér tak­ist að gera stóra hluti og það er bara vegna þess að ég hef áhuga á því sem ég er að gera og hef mjög gaman að því. Ég hefði til dæmis aldrei farið á Ólymp­íu­leik­ana ef ég hefði verið að remb­ast við að gera eitt­hvað sem mér fynd­ist leið­in­legt eða eitt­hvað sem ein­hver annar hefði ákveðið fyrir mig. Það drepur niður alla ánægju en ef maður ákveður sjálfur hvað maður vill, setur sér mark­mið og nýtur ferða­lags­ins þol­in­móður þá kemst maður þangað sem maður vill. Þol­in­mæðin er lyk­il­at­riði, það ger­ast engir stórir hlutir á einni nóttu. Svo þarf líka að muna að njóta þess sem maður upp­sker. Ég þarf ekk­ert að vera komin með næsta verk­efni í hend­urnar, það er allt í lagi að leyfa sér að njóta í smá­stund áður en maður ræðst í næsta mark­mið. Þetta kemur allt þegar það á að koma.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ