Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Lengi dreymt um að verða sjálfstæð

Hildur Ársæls­dóttir er með eina flott­ustu fer­il­skrána í brans­anum. Hún hefur unnið fyrir nokkur af stærstu snyrti­vöru­húsum í heim­inum í dag, á borð við L’Oréal og LVMH sem eiga mörg stærstu snyrti­vöru­merkin á mark­aðnum. Síð­ast­liðin tvö ár hefur hún unnið sem mark­aðs­stjóri Bioeffect en hún hefur sagt starfi sínu lausu og stofn­aði á dög­unum fyr­ir­tækið SKIN & GOODS sem mun sér­hæfa sig í að aðstoða snyrti­vöru­fyr­ir­tæki í mark­aðs­málum.

Lengi dreymt um að verða sjálfstæð

Með sanni má segja að Hildur sé til­búin í þetta næsta skref sem sjálf­stæður atvinnu­rek­andi en hún er menntuð sem förð­un­ar­fræð­ingur, snyrti­fræð­ingur, mark­aðs­fræð­ingur og við­skipta­fræð­ingur og er með auka­há­skóla­gráðu í vöru­þróun.

„Mig hefur lengi dreymt að verða sjálf­stæð en ég vissi bara ekki að það yrði sem eig­andi mark­aðs­stofu. Ég bjóst alltaf við því að ég myndi hanna mína eigin snyrti­vöru­línu, en hræðslan við að þurfa kannski bara að nota eitt húð­vöru­merki það sem eftir er hefur alltaf haldið aftur af mér,“ segir Hildur og bætir við að hún elski að prófa nýjar vörur og inni­halds­efni.

„Húðin breyt­ist reglu­lega, allt eftir því hvernig hugsað er um hana, hvaða vörur eru not­aðar, hvernig matar­æðið er og hvar á hnett­inum maður býr.”

„Við þurfum alls­konar inni­halds­efni við mis­mun­andi til­efni eftir því hvernig húðin á okkur er hverju sinni. Húðin breyt­ist reglu­lega, allt eftir því hvernig hugsað er um hana, hvaða vörur eru not­aðar, hvernig matar­æðið er og hvar á hnett­inum maður býr.”

Hún segir einna mik­il­væg­ast að verja húð­ina gegn ótíma­bærri öldrun með spf-sól­ar­vörn dag­lega. „Stað­reyndin er sú að 90% af öldr­un­ar­ein­kennum húð­ar­innar er af völdum skað­legra sól­ar­geisla en þau koma ekki fram fyrr en 20-30 árum seinna. Þannig að þær sem byrja fyrst að hugsa um húð­ina eftir fer­tugt geta átt erfitt með að spóla til baka.“

Húð­hreinsun segir Hildur vera það allra mik­il­væg­asta þegar kemur að húð­um­hirðu. „Það skiptir ekki máli hversu dýrum og flottum kremum fólk fjár­festir í ef það hreinsar ekki húð­ina kvölds og morgna og djúp­hreinsar tvisvar til þrisvar sinnum í viku. Annars ná öll inni­halds­efnin í dýru kremunum ekki að vinna vinn­una sína til fulls. Það tekur um það bil 28 daga fyrir húð­frumur að end­ur­nýja sig. Ef við hreinsum ekki húð­ina kvölds og morgna safn­ast dauðu húð­frum­urnar saman og mynda þykkt lag sem getur myndað þurra, gráa og líf­lausa húð. Þá geta einnig mynd­ast stórar svita­holur og húðin orðið óhrein og feit.“

Hildur mælir einnig með bæti­efnum til inn­töku. „Ég trúi því að með því að hugsa vel um sál og lík­ama sjá­ist það á húð­inni. Það hefur klár­lega áhrif á húð­ina ef maður borðar vel og drekkur nóg af vatni – alla vega tvo lítra á dag. Það besta sem ég veit er að byrja hvern dag á að drekka heitt sítrónu­vatn, það hreinsar lík­amann og er hálf­gert detox fyrir húð og lík­ama. Það jafnar PH-gildi lík­am­ans, hjálpar melt­ing­unni, eykur efna­skipti og er sér­stak­lega gott fyrir fólk sem er alltaf með útþan­inn maga. Einnig nota ég bæti­efni frá The Nue Co. Ég nota Glowing Skin Food út í morg­un­mat­inn minn og svo tek ég Debloat Food og Prebiotic eftir þörfum. Ég blanda því þá oft­ast út í kaffið eða smúðí­inn minn og sé gríð­ar­legan mun þegar ég nota þessar vörur.“

TOPP 5 að mati Hildar Ársæls­dóttur:

  • Sunday Riley Good Genes er frá­bær húð­með­ferð sem inni­heldur mjólk­ur­sýrur sem hjálpa við að lífga upp á húð­ina og jafna áferð hennar. Frábær vara fyrir bland­aða húð, feita húð eða húð sem er mis­lit vegna öra eftir bólur eða sól­ar­bletti.
  • Vintner´s Daughter er olía/serum sem gerir krafta­verk fyrir húð­ina, get ekki mælt meira með þess­ari vöru en að segja að ég hafi nán­ast hætt að nota farða eftir að ég kynnt­ist henni. Fyrir allar húð­teg­undir og hefur nán­ast allt sem þú vilt að húðin á þér fái. Ef þú ert löt og vilt bara fjár­festa í einni vöru er þessi málið.
  • A313 Vitamin A er mjög virkt retinol sem vinnur á djúpum línum og örum. Fyr­ir­byggir öldr­un­ar­ein­kenni og hjálpar óhreinni og sól­skað­aðri húð. Notist með varúð, ég nota A-vítamín u.þ.b. einu sinni til tvisvar í viku og nota mjög raka­gef­andi vöru á móti, eins og t.d. BIOEFFECT EGF-serumið.
  • Mario Badescau Drying Lotion er bleikur vökvi sem þú berð á þegar þú færð bólu eða önnur óhrein­indi og hann virkar nán­ast sam­dæg­urs. Það besta sem ég hef prófað þegar ég fæ óvel­kom­inn gest á húð­ina.
  • BIOEFFECT Micellar Water er and­lits­hreinsir sem tekur í burt farða og önnur óhrein­indi án þess skemma PH-gildi húð­ar­innar.

HVAÐ ER BEST FYRIR
… þurra húð? Vörur sem inni­halda hyaluronic acid.
… eldri húð? Retinoid.
… feita húð? Vörur sem inni­halda AHA-sýrur.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son
Förðun og hár / Helga Krist­jáns

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ