Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Neysla eykst við lögleiðingu

Lög­leið­ing neyslu kanna­bis­efna í Kanada hefur hleypt nýju lífi í umræð­una um þessi mál hér­lendis. Að venju sýn­ist sitt hverjum, þeir sem eru and­vígir halda á lofti hætt­unni sem kanna­bis­neysla veldur ungu fólki og þeir sem eru með­mæltir telja bann við neyslu kanna­bis­efna skerð­ingu á ein­stak­lings­frelsi, enda sé um til­tölu­lega hættu­lítið efni að ræða.

Neysla eykst við lögleiðingu

Mannlíf fékk tvo ein­stak­linga til að leggja sín lóð á vog­ar­skál­arnar og rök­styðja skoð­anir sínar á því hvort lög­leiða eigi kanna­bis eða ekki. Guðrún Björg Ágústs­dóttir, áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafi, er ein þeirra. Hún er með yfir 30 ára starfs­reynslu, síð­ustu sjö ár sem ráð­gjafi hjá Vímu­lausri æsku – For­eldra­húsi. Hún telur að neysla muni aukast við lög­leið­ingu.

Sjá einnig: Spurning um sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt

Hvaða rök mæla gegn lög­leið­ingu kanna­bis? „Með lög­leið­ingu er verið að segja unga fólk­inu okkar að kanna­bis sé ekki svo hættu­legt efni, enda hvernig gæti það verið það, ef það væri lög­legt? Eins og við flest vitum eru það ung­lingar sem eru stærsti hóp­ur­inn sem notar vímu­efni en það er einmitt sá hópur sem er við­kvæm­astur fyrir áhrifum vímu­efn­anna.“

Hver er reynsla ann­arra þjóða af lög­leið­ingu?„Það hefur nú þegar sýnt sig í Colorado að 85 pró­sent fleiri ung­menni nota kanna­bis þar miðað við hin ríkin í Banda­ríkj­unum. Eins hefur bílslysum sem rakin eru til kanna­bis­neyslu fjölgað um 151 pró­sent. Einnig blómstrar svarti mark­að­ur­inn, and­stætt því sem almennt er talið.“

Hverju myndi lög­leið­ing breyta fyrir þjóð­fé­lagið? „Mín skoðun er sú að það myndi breyta mörgu í þjóð­fé­lag­inu ef kanna­bis yrði lög­leitt. Það eru mörg gróða­tæki­færi í fram­leiðslu og sölu á kanna­bis. Kannabis er hægt að setja í sæl­gæti, mat, drykk, rafrettur og fleira. Áhrif kanna­bis vara mun lengur en af áfengi. Mann­eskja sem notar kanna­bis til dæmis tvisvar í viku mun mæl­ast með THC í þvagi alla daga vik­unnar. Þá varpa ég fram spurn­ing­unni: Hvaða áhrif mun það hafa á umferð­ina og slys af völdum áhrifa undir stýri? Með auk­inni neyslu þarf að auka með­ferð­ar­úr­ræði fyrir þá sem ánetj­ast efn­inu. Svo virð­ist sem reynsla þeirra sem hafa lög­leitt kanna­bis sé sú að neysla auk­ist. Það er nú þegar aukn­ing á neyslu kanna­bis hjá ung­lingum hér á landi og það er vitað að því yngri sem ung­lingar byrja neyslu því meiri skaði verður við notkun og meiri líkur á að ung­ling­ur­inn ánetj­ist efn­inu. Með lög­leið­ingu yrði þá líka að stór­auka með­ferð­ar­úr­ræði.“

Áhrif kanna­bis vara mun lengur en af áfengi. Mann­eskja sem notar kanna­bis til dæmis tvisvar í viku mun mæl­ast með THC í þvagi alla daga vik­unnar.

Hvers vegna ert þú per­sónu­lega and­víg lög­leið­ingu kanna­bis? „Ég hef séð hvernig kanna­bis­neysla hefur haft áhrif á fólk, sér­stak­lega ungt fólk. Ein helstu rök ung­linga sem eru að eyði­leggja líf sitt vegna neyslu kanna­bis eru: Þetta er ekk­ert hættu­legt, það er verið að lög­leiða þetta. Ung­lingar horfa ekki á að það sé ald­urs­tak­mark fyrir kaupum á kanna­bis þar sem það er lög­legt. Þau eru ung og þau gera það sem við full­orðna fólkið höfum fyrir þeim. Ef við lög­leiðum kanna­bis verður það líka fyrir 14 ára börn.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ