Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Skildi betur pabba sinn

Erna Kanema Mas­hink­ila ferð­að­ist á síð­asta ári til Sambíu í leit að sjálfri sér. Í heim­ilda­mynd­inni Söngur Kanemu, sem fer í almennar sýn­ingar í Bíó Paradís 6. sept­em­ber, er þess­ari örlaga­ríku ferð gerð skil.

Skildi betur pabba sinn

„Ég fór af stað út í þetta þar sem mig lang­aði til að kynn­ast betur föð­ur­fjöl­skyld­unni minni og mynda í leið­inni sterk­ari tengsl við heima­land pabba. Það er nefni­lega svo skrítið að þótt Sambía hafi alltaf verið stór hluti af mínu lífi vissi ég voða­lega lítið um þetta Afr­íku­ríki, hvað þá Afríku yfir­leitt, maður lærir ekki mikið um hana í skól­anum,“ lýsir Erna Kanema, 18 ára gömul mennta­skóla­mær sem hefur alist upp í Reykja­vík ásamt yngri systur, íslenskri mömmu og pabba frá Sambíu.

Pabbi hennar, Harry, hefur búið á Íslandi í 20 ár og fyrir utan tvær heim­sóknir til Sambíu í barn­æsku segir Erna Kanema að reynsla hennar af sam­bíski menn­ingu sé að mestu leyti verið fengin í gegnum hann. Henni fannst hún því ekki þekkja upp­runa sinn nógu vel og til að kynna sér hann betur ákváðu hún og fjöl­skylda hennar að heim­sækja Sambíu á síð­asta ári, en mamma hennar, Anna Þóra Stein­þórs­dóttir kvik­mynda­gerð­ar­kona, fékk að mynda ferða­lagið og útkoman varð að heim­ilda­mynd, Söngur Kanemu.

„Þetta var rosa­leg upp­lifun,“ segir Erna Kanema um ferð­ina og brosir, „því ég öðl­að­ist allt annan skiln­ing á hlut­unum en þegar ég heim­sótti Sambíu sem barn. Til dæmis vissi ég ekki mikið um bak­grunn pabba og skildi hann stundum ekki. Fannst hann geta verið ógeðs­lega strangur þegar ég var yngri en núna skil ég af hverju því í Sambíu er það þannig að þú ferð úr því að vera barn yfir í það að vera full­orð­inn. Það er ekk­ert sem heitir að vera ung­lingur. Það hug­tak er ekki til. Að átta sig á þessu eina atriði, að pabbi hafi komið úr svona umhverfi til Íslands hefur verið hjálp­legt fyrir okkar sam­band.“

„Til dæmis vissi ég ekki mikið um bak­grunn pabba og skildi hann stundum ekki. Fannst hann geta verið ógeðs­lega strangur þegar ég var yngri en núna skil ég af hverju því í Sambíu er það þannig að þú ferð úr því að vera barn yfir í það að vera full­orð­inn.“

Eins hafi verið gaman að kynn­ast tón­list­ar­menn­ingu og -hefðum Sambíu sem séu tals­vert ólíkt því sem þekk­ist á Íslandi. „Ég er á kafi í tón­list hér, syng í kórum og er að læra söng í djass­deild FÍH og fyrir mig var ein­stakt að fá að kynn­ast allt annarri tón­list­ar­menn­ingu og bera hana saman við það sem ég hef verið að gera. Ég var eig­in­lega alltaf með upp­töku­tækið í gangi, að taka upp kirkjukóra, messur og meira að segja hljóð í nátt­úr­unni. Mig lang­aði til að geyma allar minn­ingar sem ég gat,“ segir hún glöð, en þess má geta að tón­list mynd­ar­innar, sem er samin af Árna Rúnari Hlöðvers­syni, er meðal ann­ars byggð á þessum upp­tökum Kanemu Ernu.

Erna Kanema segir að síð­ast en ekki síst hafi verið dýr­mætt að fá að kynn­ast betur föð­ur­fjöl­skyld­unni. Fram að heim­sókn­inni hafi hún verið svo­lítið fjar­læg en þarna hafi hún náð að mynda sterk­ari tengsl við ætt­ingj­ana og sé nú í reglu­legum sam­skiptum við suma þeirra á Facebook. „Já, áður fyrr voru það þau sem voru meira í sam­bandi við mig en nú er ég alltaf að senda þeim skila­boð,“ segir hún og hlær.

Sjálf hafi hún öðl­ast sterk­ari sjálfs­mynd og tölu­vert dýpri skiln­ing á sjálfri sér eftir heim­sókn­ina til Sambíu. Henni finnst því mik­il­vægt að börn sem eiga for­eldra hvort frá sínum menn­ing­ar­heim­inum fái að kynn­ast upp­runa sínum. „Í því sam­hengi finnst mér að skólar og frí­stunda- og félags­mið­stöðvar á Íslandi mættu taka meira til­lit til ann­arra menn­ing­ar­heima og gera þeim betri skil. Við eigum að vera miklu opn­ari fyrir því að læra um aðra menn­ing­ar­heima og af þeim. Ef ég eign­ast börn vil ég til dæmis að þau séu með­vituð um sinn sam­bíska bak­grunn. Það er svo mik­il­vægt að þekkja upp­runa sinn.“

Spurð hvort þetta hafi aldrei verið erfitt ferli við­ur­kennir hún að stundum hafi verið lýj­andi að vera með tökulið á hæl­unum alla daga. Eins hafi henni brugðið svo­lítið við að sjá loka­út­gáfu mynd­ar­innar. „Aðallega vegna þess að þar sem mamma var á bak við vél­ina var ég ekk­ert feimin og átt­aði mig kannski ekki á því hversu ber­skjölduð ég yrði. Að því leyt­inu til er pínku­skrítið að myndin verði sýnd stórum hópi fólks í bíó. Annars gekk þetta vel og ef eitt­hvað erurðum við mamma bara nán­ari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ