Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Við munum berjast eins og ljónynjur“

Íslenska A-lands­liðið í kvennaknatt­spyrn­unni leikur einn mik­il­væg­asta leik sinn nokkru sinni á morgun þegar þær mæta þýska lands­lið­inu í und­ankeppni HM 2019 á Laug­ar­dals­velli. Íslensku stelp­urnar unnu fyrri leik lið­anna í und­ankeppn­inni 3-2 og Sara Björk Gunn­ars­dóttir, fyr­ir­liði liðs­ins, er hörð á því að þær eigi alla mögu­leika á að sigra þær aftur, þrátt fyrir að þýska liðið sé eitt það besta í heimi.

„Við munum berjast eins og ljónynjur“
|Sara Björk Gunn­ars­dóttir var íþrótta­maður árs­ins 2018.|||||
Sara Björk Gunn­ars­dóttir, fyr­ir­liði íslenska kvenna­lands­liðs­ins.

Sara Björk Gunn­ars­dóttir, fyr­ir­liði íslenska kvenna­lands­liðs­ins sem mætir Þýska­landi á morgun, er bar­átt­uglöð og von­góð og segir liðið mæta til leiks með því hug­ar­fari að vinna og tryggja sér þar með sæti á HM á næsta ári. Liðið hafi sýnt það með sigri á þýska lið­inu síð­ast­liðið haust að það sé full­fært um að sigra í leiknum og í huga liðs­kvenna komi ekki annað til greina. Þær muni leggja allt undir.

Ég byrja á að spyrja Söru Björk hvort liðið sé vel und­ir­búið fyrir leik­inn. „Já, ég held það,“ svarar hún. „Við spilum margar erlendis, í Evrópu eða Banda­ríkj­unum, og höfum verið með hug­ann við að spila með okkar liðum þar í sumar, en það kemur í ljós á æfing­unni á eftir hvernig liðið hrist­ist saman. Ég á ekki von á öðru en að það gangi vel.“

Eruð þið stress­aðar fyrir þessum leik?
„Nei, en spenntar,“ svarar Sara Björk hress. „Þetta verður einn stærsti leikur sem við höfum spilað, gegn einu besta liði í heimi, bar­átta um sæti á HM næsta sumar og vænt­an­lega fyrir full­setnum áhorf­enda­stúkum þannig að þetta er mjög spenn­andi leikur fyrir okkur og við teljum okkur eiga góða mögu­leika á sigri, þannig að við erum ekk­ert stress­aðar, bara ein­beittar.“

Heldurðu að fjar­vera lyk­il­leik­manna, eins og Hörpu Þor­steins­dóttur og Dagnýjar Brynjars­dóttur, geti sett strik í reikn­ing­inn?
„Auðvitað er mikið högg fyrir liðið að missa svona reynslu­mikla leik­menn og það verður erfitt að vera án þeirra en það koma aðrir leik­menn í stað­inn, ég vona að fjar­vera þeirra geri ekki gæfumun­inn. Við verðum bara að berj­ast aðeins harðar.“

„ … við munum gefa allt í hann og berj­ast eins og ljónynjur, þú mátt treysta því. Það verður ekk­ert gefið eftir.“

Liðinu gekk ekki vel á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu síð­ast­liðið sumar, er það betur í stakk búið núna til að sigra jafn­erf­iða and­stæð­inga og Þýska­land?
„Nei, það lagð­ist ekk­ert með okkur á EM í fyrra, það er rétt,“ segir Sara Björk og það þykknar í henni við spurn­ing­una. „En það var nú í þriðja sinn sem við tókum þátt í Evr­ópu­meist­ara­móti, svo við erum vanar því að keppa við erf­iða and­stæð­inga. Ég veit ekki hvort liðið núna er betra en þá, en við unnum þýska liðið síð­ast­liðið haust svo ég held við séum búnar að sýna að við eigum alveg erindi í keppni með þeim bestu. Við erum ekki ein­hverjir byrj­endur.“

Eins og kunn­ugt er, spilar þú með Wolfsburg í Þýska­landi og barst fyr­ir­liða­band Wolfsburg þegar liðið vann 5-0 stór­sigur á Werder Bremen í þýsku úrvals­deild­inni fyrr á árinu. Heldurðu að reynsla þín í Þýska­landi eigi eftir að koma að góðum notum í leiknum á laug­ar­dag­inn?
„Ég veit það nú ekki,“ segir hún og hugsar sig um. „Ég get auð­vitað lagt til ein­hverja punkta um ýmsa leik­menn og við höfum spilað við þetta lið áður og þekkjum þær býsna vel. Ég held samt að reynsla mín úr þýsku úrvals­deild­inni hjálpi heil­mikið til.“

Þið eruð með marga unga leik­menn, held­urðu að það komi til með að nýt­ast vel?
„Já, ég held það. Líka mik­il­vægt upp á fram­tíð­ina að ungu stelp­urnar stígi upp og öðlist reynslu í svona stórum leikjum. Þær bæta það sem vantar upp á reynsl­una með leik­gleði og bar­áttu­vilja og eru mik­ill styrkur fyrir liðið. Ég held að það sé bara jákvætt að yngja liðið upp.“

Ertu sátt við hóp­inn?
„Já, ég er það,“ segir Sara Björk ákveðin. „Þetta er gott lið, með marga sterka leik­menn og góðan lið­sanda. Og við höfum sýnt það á und­an­förnum árum að við eigum erindi í hóp þeirra bestu í heim­inum.“

Þú segir að þið þekkið þýska liðið vel, hverjir eru helstu styrk­leikar þess?
„Þetta er eitt besta lið í heimi, eins og ég sagði áðan,“ segir hún. „Þær eru með marga rosa­lega sterka leik­menn, spila vel saman og eru mjög skipu­lagðar og agaðar. Það er alltaf erfitt að mæta þeim, en við erum ekk­ert hræddar við þær og, eins og ég sagði líka áðan, þá unnum við þær 3-2 í fyrri leiknum í und­ankeppn­inni í októ­ber í fyrra, og það á úti­velli, þannig að ég tel okkur eiga góða mögu­leika á að sigra í þessum leik.“

Miðarnir á leik­inn hafa rokið út og allt bendir til að upp­selt verði á leik­inn á laug­ar­dag­inn, hvernig er að finna fyrir þessum áhuga?
„Það er bara frá­bært og við höfum stefnt að því lengi. Það skiptir máli að hafa sterkan hóp stuðn­ings­manna á bak við okkur og mjög hvetj­andi að finna fyrir auknum áhuga á lið­inu og leikjum þess. Við höfum líka sýnt það og sannað að við erum gott lið og það er gleði­legt að áhorf­endur séu farnir að sjá það og meta okkur að verð­leikum.“

Með hvaða hug­ar­fari farið þið inn í þennan mik­il­væga leik?
„Auðvitað með því hug­ar­fari að vinna. Við förum í alla leiki með því hug­ar­fari. Og það er enn meira undir í þessum leik en nokkurn tím­ann áður þannig að við munum gefa allt í hann og berj­ast eins og ljónynjur, þú mátt treysta því. Það verður ekk­ert gefið eftir.“

________________________________________________________________________

Agla María Alberts­dóttir.

„Þetta ger­ist ekki stærra“
„Stemn­ingin fyrir leiknum er mjög góð og maður finnur hvað allir í kringum mann eru spenntir. Það eru mjög margir á leið­inni á völl­inn og ég býst við því að stemn­ingin verði frá­bær,“ segir Agla María Alberts­dóttir, spurð að því hvernig leik­ur­inn legg­ist í hana. „Það væri auð­vitað ótrú­legt afrek fyrir okkur að kom­ast á HM og kvenna­fót­bolt­ann í heild sinni þar sem íslenska kvenna­lands­liðið hefur aldrei kom­ist á HM. Það væri frá­bært að kom­ast á stærsta sviðið í fót­bolt­anum. Þetta ger­ist ekki stærra.“

Glódís Perla Vigg­ós­dóttir

Reynsl­unni rík­ari eftir EM
„Á EM fengum við tæki­færi til að spila þrjá stór­leiki á stórum völlum fyrir framan fullt af fólki og sú reynsla hefur nýst okkur,“ segir Glódís Perla Vigg­ós­dóttir, innt eftir því hvort hún telji að liðið komi til með að geta nýtt sér reynsl­una af EM í leiknum á morgun. „Til dæmis kunnum við betur að und­ir­búa okkur fyrir leiki, aðal­lega and­lega og líka að stýra betur fók­u­snum og orkunni. Núna erum við bara spenntar að fara út á völl­inn okkar og gefa allt í þessa tvo sein­ustu leiki í riðl­inum!“

Svava Rós Guð­munds­dóttir.

Hlakkar til að berj­ast við Þjóð­verja
„Það að kom­ast á HM hefði gríð­ar­lega þýð­ingu fyrir mig og fyrir kvenna­bolt­ann á Íslandi. Það myndi klár­lega styrkja stöðu kvenna í knatt­spyrnu á Íslandi og hvetja yngri stelpur til að æfa fót­bolta. Sjálfar erum við gríð­ar­lega vel „móti­ver­aðar”, sam­heldnin er mjög góð og hóp­ur­inn góð blanda af reynd­ari leik­mönnum sem hafa tekið vel á móti þeim yngri og óreynd­ari. Stemn­ingin í hópnum er mjög góð. Við erum allar mjög spenntar fyrir kom­andi verk­efni og hlökkum til að berj­ast fyrir sæti á HM,” segir Svava Rós Guð­munds­dóttir.

Sigríður Lára Garð­ars­dóttir

Góður lið­sandi
„Mórall­inn í lið­inu er góður. Við stefnum allar í sömu átt,” segir Sigríður Lára Garð­ars­dóttir þegar blaða­maður spyr að því hvernig mórall­inn sé innan liðs­ins í aðdrag­anda leiks­ins. „Það er kom­inn spenn­ingur í okkur og við hlökkum til. Við erum reynsl­unni rík­ari eftir EM. Lærðum margt þar sem gæti nýst okkur á HM á næsta ári. Það væri því algjör draumur að kom­ast þangað. Það væri stórt afrek fyrir íslenskan kvenna­bolta.“

Ingi­björg Sig­urð­ar­dóttir.

Draumur að kom­ast á HM
Ingi­björgu Sig­urð­ar­dóttur hefur dreymt um að spila á HM frá því að hún var krakki. „Það hefur alltaf verið stór draumur. Ég hef unnið hörðum höndum að því að kom­ast þangað síðan ég var lítil,“ segir hún og finnst alveg ótrú­legt að hugsa til þess hversu ótrú­lega nálægt liðið er að ná tak­mark­inu. „Sem hvetur maður enn meira til að gera þetta með stæl.“ Hún telur að þátt­töku­réttur liðs­ins á HM hefði mikla þýð­ingu fyrir kvenna­bolt­ann á Íslandi. „Ég hugsa að það yrði ungum stelpum hvatn­ing til að æfa vel og fengi fólk almennt til að að sýna kvenna­bolt­anum meiri áhuga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ