Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kynlífsvinna og vændi – val eða áþján?

Heitar umræður um vændi og kyn­lífs­vinnu hafa und­an­farið átt sér stað meðal íslenskra femínista.

Kynlífsvinna og vændi – val eða áþján?
||

Skiptar skoð­anir á eðli og skil­grein­ingu þess­ara hug­taka hafa orðið til þess að fólk hefur skipað sér í tvær fylk­ingar sem takast harka­lega á. Eru kyn­lífs­vinna og vændi normalís­er­ing nauðg­un­ar­menn­ingar eða frjálst val ein­stak­linga? Sólveig Anna Bóas­dóttir og Elísabet Ýr Atla­dóttir eru for­svars­menn ólíkra við­horfa í deil­unni og við fengum þær til að gera grein fyrir sínum við­horfum.

______________________________________________________________

Vændisfólki ber að búa við grundvallarmannréttindi

Sólveig Anna Bóas­dóttir, pró­fessor í guð­fræði­leg sið­fræði við HÍ, er ein þeirra sem vill gera grein­ar­mun á kyn­lífs­vinnu og vændi og virða frjálsan rétt ein­stak­linga til að stunda þá vinnu ef þeir kjósa það. Hver er hennar skýr­ing á þeim ágrein­ingi sem upp er kom­inn innan femínista­hreyf­ing­ar­innar í umræðu um þessi mál?

Sólveig Anna Bóas­dóttir, pró­fessor í guð­fræði­legri sið­fræði við HÍ. Mynd / Hallur Karlsson

„Kynlíf hefur verið spennu­valdur í femínískri umræðu frá upp­hafi. Segja má að umræða um kyn­líf meðal femínista hafi spennst milli tveggja and­stæðra póla þar sem ann­ars vegar hefur verið lögð áhersla á hættu á drottnun og ofbeldi karla og hlut­gerv­ingu kvenna og hins vegar á kyn­lífs­á­nægju kvenna, atbeina og val­frelsi. Önnur bylgja kvenna­hreyf­ing­ar­innar í Banda­ríkj­unum klofn­aði á sínum tíma vegna and­stæðra skoð­ana á kyn­lífi, klámi og vændi. Heitin kyn­lífs­vinna (e. sex work) og vændi (e. prostitution) eru yfir­leitt skil­greind á sams konar hátt, þ.e. sem sam­þykkt kyn­lífs­við­skipti milli tveggja full­orð­inna ein­stak­linga. Ákveðinn hópur femínista leggur að jöfnu kyn­lífs­vinnu/vændi a.v. og man­sal h.v. og gerir þar með ráð fyrir því að allt vænd­is­fólk vinni undir nauð­ung og þrælkun. Þar stendur hníf­ur­inn í kúnni.“

Er ein­hver munur á kyn­lífs­vinnu og vændi?
„Eins og ég segi er „sex work“ og vændi yfir­leitt skil­greint á svip­aðan hátt. Munurinn á heit­unum er sá að vænd­is­fólk, þ.e. er fólkið sem vinnur kyn­lífs­vinnu er yfir­leitt sátt við heitið „sex work“ vegna þess að það hefur sjálft átt þátt í að móta það. Það leggur áherslu á að „sex work“ sé vinna eins og hver önnur vinna. Því sama er ekki að heilsa með vænd­is­hug­takið, það er gild­is­hlaðið og felur í sér nei­kvæða, brenni­merkj­andi merk­ingu.“

Þú hefur fjallað um kyn­lífs­vinnu sem frjálst val ein­stak­linga og rétt kvenna til kyn­lífs á eigin for­sendum, hvernig rök­styð­urðu það?
„Í þau skipti sem ég hef tjáð mig um kyn­lífs­vinnu (e. sex work) þá hef ég byggt á rann­sóknum og skýrslum ýmissa frjálsra félaga­sam­taka sem byggj­ast á við­tölum við vænd­is­fólk í ýmsum löndum um félags­legar aðstæður þeirra, reynslu, þarfir og vilja. Femínískt og sið­fræði­legt sjón­ar­horn mitt felst í að byggja á reynslu hinna kúg­uðu og útskúf­uðu og leggja trúnað á það sem þau segja. Þá tala ég um þetta mál fyrst og fremst í hnatt­rænu sam­hengi því umhverfið hér á landi eða á Norð­ur­lönd­unum end­ur­speglar ekki gjörvallan heim­inn.

Ég geri sterkan grein­ar­mun á mann­sali og kyn­lífs­vinnu. Mansal slær sið­fræði­lega umræðu út af borð­inu. Mansal er glæpur. Ef sam­þykki milli full­orð­inna aðila er fengið með þving­unum, ógn, blekk­ingum eða svikum eða ef barn er aðili að máli er ekki verið að tala um kyn­lífs­vinnu heldur glæp. Vænd­is­fólk víð­ast hvar á það sam­eig­in­legt að lifa við mikla fátækt. Reynsla fólks sem vinnur kyn­lífs­vinnu á mis­mun­andi stöðum í heim­inum er sú að vinnu­mark­að­ur­inn sem þeim býðst sé ýmist eng­inn eða verri en kyn­lífs­vinnan. Fátækt, brenni­merk­ing – einkum trans fólks – og aðstöðu­leysi er yfir­leitt orsök þess að fólk leið­ist út í kyn­lífs­vinnu. Það er að reyna að lifa og kom­ast af. Í Kambódíu, svo dæmi sé tekið, kusu vænd­is­konur frekar að vinna kyn­líf­vinnu en starfa í verk­smiðj­unum. Það var betur borgað og þægi­legri vinna! Val þeirra stóð á milli tveggja slæmra kosta en slíkar val­að­stæður eru ekki eins­dæmi. Í mörgum löndum er kyn­lífs­vinna eina lífs­við­ur­værið trans fólks.“

„Það sem ég hef lagt fram í sam­hengi umræðu um kyn­lífs­vinnu er að vænd­is­fólki, sem öðrum, beri grund­vall­ar­mann­rétt­indi eins og líf, virð­ing og mann­helgi.“

Er það ekki  and­stætt femínískri hug­mynda­fræði að normalísera þá skoðun að lík­amar fólks séu versl­un­ar­vara?
„Ég kann­ast ekki við neina femíníska hug­mynda­fræði sem talar fyrir þessu! Líkamar okkar og limir eru hins vegar til sölu á hverjum degi, með ýmsu móti. Immanuel Kant hélt því fram að það væri ekki sið­ferði­legt vanda­mál að mað­ur­inn léti nota sig sem tæki, t.d. með því að lána hendur sínar, fætur og jafn­vel allan kraft sinn til ein­hvers verks, svo lengi sem hann sam­þykkti þá notkun. Orð hans má túlka þannig að lög­málið um virð­ingu fyrir per­són­unni gefi fólki mögu­leika á að leyfa viss afnot af sjálfu sér, að því gefnu að fólk sé ekki sam­tímis beitt blekk­ingum, stjórn­semi eða vald­beit­ingu af ein­hverju tagi.“

And­stæð­ingar normalís­er­ingar þeirrar skoð­unar tala um að með því sé verið að rétt­læta nauðg­un­ar­menn­ingu, hverju svararðu því?
„Þessi spurn­ing er þannig að við henni á ég ekk­ert svar. Hér eru settir upp tveir and­stæðir hópar. Með­mæl­endur og and­stæð­inga hvers? Hins hug­mynda­fræði­lega rétta? Hverjir tala fyrir nauðg­un­ar­menn­ingu meðal femínista? Mín skoðun er sú að femínistar séu að lang­mestu leyti sam­mála um hvað ein­kenni gott sam­fé­lag og leggi áherslu á að jöfn­uður og mann­rétt­indi séu grund­völlur þess. Það sem ég hef lagt fram í sam­hengi umræðu um kyn­lífs­vinnu er að vænd­is­fólki, sem öðrum, beri grund­vall­ar­mann­rétt­indi eins og líf, virð­ing og mann­helgi. Vænd­is­fólki beri sjálf­ræði og við sem viljum ekk­ert heitar en að skapa gott og full­komið sam­fé­lag skyldum fara var­lega í for­sjár­hyggju gagn­vart því. Öryggi, vel­ferð og heilsa eru gæði sem vænd­is­fólk fer að mestu leyti á mis við og því þarf sam­fé­lagið að breyta.“

Er bara pláss fyrir eina gerð af skoð­unum innan íslensku femínista­hreyf­ing­ar­innar?
„Það er undir þeim komið sem taka þátt í umræð­unni. Femínísk umræða hefur aldrei verið ein­radda kór og verður von­andi aldrei. Margar virkar raddir eru til þess gerðar að styðja við lýð­ræðið.“

______________________________________________________________

Normalísering á nauðgunarmenningu

Elísabet Ýr Atla­dóttir, heldur úti blogg­síð­unni kven­frelsi.wordpress.com og er ein af stofn­endum Aktí­vismi gegn nauðg­un­ar­menn­ingu, hóps­ins á Facebook. Henni var í vik­unni hent út af femínista­spjall­inu á Facebook vegna skoð­ana sinna. Hvaða skoð­anir eru það sem ekki hljóta náð fyrir augum stjórn­enda spjalls­ins? Um hvað snýst ágrein­ing­ur­inn?

Elísabet Ýr Atla­dóttir, stofn­andi kven­frelsi.wordpress.com og ein af stofn­endum Aktí­vismi gegn nauðg­un­ar­menn­ingu, hóps­ins á Facebook. Mynd / Hildur María Val­garðs­dóttir.

„Ágrein­ing­ur­inn snýst að mörgu leyti um hvernig vændi er skil­greint og hvernig það „má“ tala um vændi. Það hefur verið vax­andi bylgja frjáls­hyggju um allan heim og einn af fylgi­fiskum þess er sterk ein­stak­lings­hyggja – ef ég „vel“ eitt­hvað þá á ekki að mega hreyfa við því af ríki eða lögum, sama hversu skað­legt það getur verið. Þetta snýst í raun um að fólk vill sjaldan tala um hvernig vændi teng­ist kerf­is­bundnu ofbeldi og hlut­gerv­ingu, heldur vill það frekar sjá þetta sem val ein­stak­linga sem hægt er að horfa fram hjá og hafa engar áhyggjur af. Með því að láta allt snú­ast um ein­stak­lings­upp­lif­anir verður það að per­sónu­legri árás að gagn­rýna vændi, sem gerir rök­ræður um efnið erf­iðar. Og með því að snúa öllum rök­ræðum um vændi upp í árás á per­sónu­legar upp­lif­anir er umræðan fljótt afvega­leidd.“

Það er sem sagt þín skoðun að vændi feli alltaf í sér nauð­ung?
„Það þarf ekki að fela í sér nauð­ung nei, ekki alltaf. Það er samt sjald­gæft að ein­hvers konar neyð sé ekki til staðar, sama hvort sú neyð er af efna­hags­legum ástæðum, ofbeldi, fíkn eða að ein­hver annar þrýstir á að fara í vændi, neyðin getur verið margs konar og oft jafn­vel ekki vel grein­an­leg. Það er mín skoðun að vændi sé alltaf hlut­gerv­ing og að normalís­er­ing á vændi sé normalís­er­ing á nauðg­un­ar­menn­ingu.“

Er það ekki and­stætt femínískri hug­mynda­fræði að normalísera þá skoðun að lík­amar fólks séu versl­un­ar­vara?
„Jú, það er nákvæm­lega það. Þróunin sein­ustu ár virð­ist hafa haft þau áhrif að þessi ein­stak­lings­hyggja hefur náð að festa rætur í ýmsum femínískum rýmum og það kemur fram í svona hug­myndum um að val ein­stak­linga trompi hag meiri­hlut­ans og að það megi allt í einu ekki ræða það hvað val ein­stak­linga getur verið skað­legt bæði fyrir þá og aðra. Að normalísera vændi væri mikið högg fyrir rétt­indi kvenna, enda höfum við barist lengi fyrir því að vera ekki bara kjöt­skrokkur til sölu í einka­eigu eða almanna­eign.“

Sumir verja vændi á þeim for­sendum að það snú­ist um rétt kvenna til kyn­lífs, hvað finnst þér um það?
„Mér finnst það alls ekki eðli­legt að kalla vændi kyn­líf kvenna, því ekk­ert í vændi snýst um nautn eða kyn­frelsi kvenna. Vændi hefur alltaf snú­ist um það að „þjón­usta“ þann sem kaupir – honum gæti ekki verið meira sama hvort lík­am­inn sem hann kaupir nýtur þess eða ekki, enda bara tól fyrir hann til að fá sínu fram­gengt. Margir kúnnar vændis hafa meira að segja sagt að þeir fíli það betur þegar kon­urnar sem þeir kaupa fíla það ekki, því þeir voru að borga fyrir sig, en ekki hana. Réttur kvenna til kyn­frelsis og kyn­lífs snýst ekki um hversu auð­velt er fyrir okkur að vera keyptar af karl­mönnum sem það vilja. Að skil­greina vændi sem kyn­líf kvenna myndi ég telja hreint út sagt öskr­andi nauðg­un­ar­menn­ingu.“

„Mér finnst það alls ekki eðli­legt að kalla vændi kyn­líf kvenna, því ekk­ert í vændi snýst um nautn eða kyn­frelsi kvenna.“

Er bara pláss fyrir eina gerð af skoð­unum innan íslensku femínista­hreyf­ing­ar­innar?
„Nei, alls ekki, það er alltaf pláss fyrir alls konar skoð­anir. Það er mik­il­vægt að eiga gagn­rýnar umræður til þess einmitt að sjá aðra vinkla og geta tengt saman púslu­spilið, skipt um skoð­anir, byggt upp almenni­lega mynd af því sem við erum að berj­ast við. En mér hefur alltaf fund­ist mik­il­vægt að hamra á því að þetta snýst ekki um skoð­anir. Þetta snýst um stað­reyndir og lausnir, ekki per­sónu­legar upp­lif­anir ein­stak­linga, sem eru með aðrar skoð­anir en meiri­hlut­inn, eða heims­speki­leg fræði. Oft týn­ist femínísk umræða um alls konar mál í ein­hvers konar hug­mynda­fræði­legum pæl­ingum sem hafa lítið sem ekk­ert að gera með raun­veru­leik­ann og hafa engar praktískar áherslur. Það er mik­il­vægt að eiga svo­leiðis umræður en þegar við erum að tala um raun­veru­leik­ann og hvað er að ger­ast, stað­reyndir lífs kvenna og hvað þær eru að upp­lifa dags­dag­lega, þá getum við ekki ein­blínt á skoð­anir og pæl­ingar ein­stak­linga. Við þurfum að horfa á vand­ann sem kerf­is­bund­inn, ekki per­sónu­bund­inn, og þá gagn­ast skoð­anir oft lítið.

Það sem skiptir öllu máli er að það sé hægt að ræða þessi mál­efni gagn­rýnið og vernda þær sem eru þolendur vændis, gera þeim lífið auð­veld­ara, kenna þeim aldrei um aðstæður þeirra. Normalís­er­ing á vændi er ákveðin týpa af victim blaming – því ef hún „valdi“ þetta þá hlýtur hún að geta dílað við afleið­ing­arnar – þannig virð­ist pæl­ingin vera. Að konur þurfi bara að vera ákveðið sterkar ef þær ætla út í þennan bis­ness og þær sem koma út úr honum traumat­íser­aðar hafi bara ekki verið nógu klárar, nógu sterkar, nógu harðar á því að setja mörk. Það þarf að gera það skýrt að ábyrgðin liggur ekki hjá þeim sem eru í vændi heldur hjá þeim sem kaupa og nýta sér þeirra aðstæður, sama hvaða aðstæður það geta verið. Sama af hvaða ástæðu fólk fer í vændi, þá er það ekki þeirra að bera ábyrgð­ina á þessum iðn­aði og það er á ábyrgð okkar allra að koma til móts við þau og gera þeim auð­veld­ara að finna aðrar leiðir. Enginn ætti að þurfa að fara í vændi – aldrei.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ