Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Amatöravæðing stjórnmálanna

Kosn­inga­bar­áttan fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar á morgun hefur verið fremur rislág að mati Eiríks Berg­manns, pró­fess­ors í stjórn­mála­fræði, en hann segir þó athygl­is­vert að Sam­fylk­ingin haldi sjó í borg­inni og hversu sterkar and­stæðar blokkir séu að teikn­ast upp í Reykja­vík.

Amatöravæðing stjórnmálanna
|
Komið hefur Eiríki Bergmann, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, á óvart hvað Sam­fylk­ingin heldur sjó í Reykja­vík.

„Kosn­inga­bar­áttan hefur verið dauf­leg, það verður að segj­ast eins og er,“ segir Eiríkur Bergmann, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, spurður hvernig kosn­inga­bar­áttan fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar á morgun hafi verið. „En hún er líka að mörgu leyti sér­stök,“ bætir hann fljótt við. „Það er nátt­úr­lega rýmra um í borg­ar­stjórn­inni, ef maður skoðar hana sér­stak­lega. Það er verið að fjölga borg­ar­full­trúum upp í 23 sem veitir aukið rými og sam­hliða því, en ekki bara vegna þess heldur líka vegna almennrar þró­unar, þá sjáum við miklu fleiri fram­boð heldur en áður og það hefur sett sitt mark á þessa kosn­inga­bar­áttu.“

Vantrú á reynslu­boltum í stjórn­málum
Eiríkur segir þessa fjölgun á fram­boðum þó ekki vera sér­ís­lenskt fyr­ir­bæri. „Það hefur verið að ger­ast alls staðar á Vest­ur­löndum að hinir hefð­bundnu meg­in­straums­flokkar hafa átt í vök að verj­ast undan nýrri flokkum sem skora meg­in­straums­kerfið á hólm, oft út frá ein­hvers konar hug­myndum um aðkomu hins venju­lega manns og eig­in­lega til höf­uðs atvinnu­stjórn­málum, ef svo má segja. Að sínu leyt­inu til er þetta birt­ing­ar­mynd þró­unar sem við getum kallað ama­töra­væð­ingu stjórn­mál­anna, sem er ekki íslenskt fyr­ir­bæri heldur vest­rænt og bygg­ist á því að margt fólk hefur van­trú á þeim sem hafa reynslu í stjórn­málum. Stjórn­mála­menn leggja mjög gjarnan upp með það í dag að þykj­ast standa utan stjórn­mála­kerf­is­ins og hafa ekki fag­lega þekk­ingu á stjórn­mála­vaf­stri. Þetta er auð­vitað mjög merki­leg þróun og á sér stað alls stað víða.“

„Stjórn­mála­menn leggja mjög gjarnan upp með það í dag að þykj­ast standa utan stjórn­mála­kerf­is­ins og hafa ekki fag­lega þekk­ingu á stjórn­mála­vaf­stri.“

Hvaða áhrif held­urðu að þetta hafi á þróun stjórn­mál­anna? „Það er erfitt að átta sig á því,“ segir Eiríkur. „Óskin og vænt­ing­arnar fel­ast þá vænt­an­lega í því að að borð­inu komi fólk sem sé á ein­hvern hátt í betri tengslum við hinn almenna venju­lega mann, en hættan er auð­vitað sú að við stjórn­ar­taumunum taki fólk sem hvorki hefur þekk­ingu, kunn­áttu né getu til þess að stýra flóknum fyr­ir­bærum sem opin­ber rekstur felur í sér.“

Mistök hjá Sjálf­stæð­is­flokknum?

Eiríkur tekur fram að hér sé hann ein­göngu að tala um Reykja­vík, það gildi önnur lög­mál á lands­byggð­inni. Ísland sé sér­stakt á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu fyrir þær sakir að eitt sveit­ar­fé­lag gnæfi algjör­lega yfir öll önnur. Það geri eðli bar­átt­unnar og stjórn­mál­anna í Reykja­vík allt annað en ann­ars staðar á land­inu þar sem í raun­inni sé um allt aðra póli­tík að ræða víð­ast hvar ann­ars staðar, þar sem verið sé að kjósa fólk til að sinna bæj­ar­mál­efnum í hluta­starfi eða jafn­vel sem áhuga­máli. Og það sé erfitt að tala um sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar á Íslandi sem eitt fyr­ir­bæri vegna þessa eðl­is­munar.

En er eitt­hvað sem hefur komið Eiríki á óvart í kosn­inga­bar­átt­unni í Reykja­vík? „Það hefur auð­vitað komið svo­lítið á óvart hvað Sam­fylk­ingin heldur sjó,“ segir hann. „Og er hátt yfir því sem flokk­ur­inn mælist á lands­vísu og hátt yfir því sem flokk­ur­inn fær í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum í alþing­is­kosn­ingum, það er merki­legt og hlýtur að vekja eft­ir­tekt. VG hefur hins vegar dalað eftir því sem liðið hefur á bar­átt­una en Sós­í­alistar eygja vona á sæti í borg­ar­stjórn. Mið­flokk­ur­inn kemur sterkur til leiks, mest á kostnað Fram­sóknar og staða Pírata er merki­lega góð. Þá vekur eft­ir­tekt leið­toga­skiptin og í raun­inni algjör listask að þótt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn standi sterkur í mörgum sveita­fé­lögum í kringum borg­ina þá hafi sipti í Reykja­vík ekki orðið til fylg­is­aukn­ingar flokks­ins þar eins og lagt var upp með.“

Voru þetta þá mis­tök hjá Sjálf­stæð­is­flokknum? „Ja, hafi ætl­unin verið sú með því að skipta algjör­lega út list­anum að auka fylgið, þá virð­ist það ekki ætla að ganga eftir,“ segir Eiríkur og vill ekki fara nánar út í þá sálma.

Myndbönd Vigdísar krydd í daufa bar­áttu
Eiríkur segir kosn­inga­bar­átt­una hafa verið fremur leið­in­lega en þó megi segja að mynd­bönd Vigdísar Hauks­dóttur hafi verið nýlunda og skemmti­legt krydd í bar­átt­una. Það sé hins vegar mjög merki­legt að það séu að teikn­ast upp tvær mjög skýrar blokkir í borg­inni, undir aug­ljósri og skýrri for­ystu hvor fyrir sig. Vinstri blokkin undir for­ystu Dags B. Egg­erts­sonar og hægri blokkin undir for­ystu Eyþórs Arnalds. Svo séu flokkar eins og Viðreisn og Framsókn sem hugs­an­lega geti fallið hvoru megin sem er.

Annað sem Eiríkur telur athygl­is­vert er að þjóð­ern­is­flokk­arnir sem bjóða fram virð­ast ekki vera að ná neinu máli. „Þjóð­ern­ispopúl­ískum flokkum er að því er virð­ist svo gott sem alfarið hafnað í þessum kosn­ingum,“ segir hann. „Það er í mót­sögn við það sem hefur verið að ger­ast víða í Evrópu, en það hefur þó víða verið þannig að svona öfl hafa legið í lág­inni og ekki náð máli þar til þau allt í einu gjósa fram, eins og til dæmis var raunin í Svíþjóð, þannig að við ættum ekki að álykta um of í þeim efnum.“

Spurður hvort það sé ekki nán­ast borð­leggj­andi að það verði sami meiri­hluti í borg­ar­stjórn eftir kosn­ingar, að frá­taldri Bjartri Framtíð, segir Eiríkur að það sé fleira sem bendi til þess en færra og þá vænt­an­lega ásamt Viðreisn, en það fari þó tölu­vert eftir því hvernig minni flokk­unum reiði af.

„Þjóð­ern­ispopúl­ískum flokkum er að því er virð­ist svo gott sem alfarið hafnað í þessum kosn­ingum. Það er í mót­sögn við það sem hefur verið að ger­ast víða í Evrópu, en það hefur þó víða verið þannig að svona öfl hafa legið í lág­inni og ekki náð máli þar til þau allt í einu gjósa fram“

Að lokum spyr ég Eirík hvort ekki sé hætta á slæ­legri kjör­sókn vegna tíðra kosn­inga und­an­farið og hann tekur undir það að við því megi búast. „Það er hætt við að það verði lítil kosn­inga­þátt­taka, já,“ segir hann. „Hún hrundi alveg í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum fyrir fjórum árum og fór þá niður fyrir allt sem við höfum séð í seinni tíð á Íslandi og mér sýn­ist að við gætum jafn­vel farið enn neðar í þessum kosn­ingum, sem er ekki gott fyrir lýð­ræðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ