Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Ég hef átt nokkra daga með Sir Ian og hann er hinn ljúfasti“

„Ég hef átt nokkra daga með Sir Ian og hann er hinn ljúfasti“
||

Leik­ar­inn Jóhannes Haukur Jóhann­es­son er nú við tökur á stór­mynd­inni The Good Liar. Myndin er gerð eftir skáld­sögu Nicholas Searle og skartar leik­ur­unum Dame Hellen Mirren og Sir Ian McKellen í aðal­hlut­verkum.

„Þetta er nátt­úr­lega allt saman miklu stærra en mig óraði nokkru sinni fyrir. Ég reyni bara að taka einn dag í einu í þessu djobbi og gera mitt besta,“ segir Jóhannes Haukur.

Hann má lítið sem ekk­ert tjá sig um sögu­þráð mynd­ar­innar eða hlut­verk sitt, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum á kvik­mynda­síð­unni IMDb leikur hann per­sónu sem heitir Vlad. Því má ætla að karakter hans sé af aust­ur­evr­ópskum upp­runa, en myndin fjallar um svika­hrapp­inn Roy Courtnay, sem leik­inn er af McKellen, sem kynn­ist ekkj­unni Betty McLeish, sem er leikin af Mirren, á Netinu. Það sem átti að vera enn eitt svind­lið breyt­ist síðan í eitt­hvað allt annað.

Sjá einnig: „Þetta gefur mér meiri tíma með kon­unni og börnum og það er það sem ég vil“.

Myndin er tekin upp í miðbæ Lundúna að sögn Jóhann­esar. „Um dag­inn voru grunn­búð­irnar okkar með treiler­unum rétt við Buckinham-höll,“ segir hann og bætir við að hlut­verkið hafi komið til hans í gegnum hefð­bundnar leiðir, það er í gegnum umboðs­mann.

Myndin er gerð eftir skáld­sögu Nicholas Searle.

„Ég er með einn í London og tvo í Los Angeles og þeir eru óþreyt­andi við að koma mér að í prufum fyrir hitt og þetta. Það er nú þannig að ég prófa fyrir mun meira en ég fæ, en fæ þó nógu reglu­lega hlut­verk til að geta haft þetta að aðal­starfi nú í um fjögur ár. Því fleira sem bæt­ist á fer­il­skrána því auð­veld­ara er að kom­ast að í leit­ars­íum fyrir hin og þessi verk­efni, þannig að þetta vindur alltaf upp á sig.“

Geggjaður matur á setti

Jóhannes byrj­aði í tökum fyrir um þremur vikum og nær að fljúga heim til Íslands á milli töku­daga. Tökur klár­ast í júní en ljóst er af allri umgjörð að um er að ræða sanna­kall­aða stór­mynd þar sem háar fjár­hæðir eru undir.

„Jú, við­bún­að­ur­inn er alltaf mik­ill í svona Hollywood-myndum. En það venst eins og annað. Maturinn er alltaf geggj­aður á setti,“ segir Jóhannes. Hann hefur ekki enn hitt Dame Helen, þó að það líði að því bráð­lega, en ber Sir Ian góða sög­una.

„Ég hef átt nokkra daga með Sir Ian og hann er hinn ljúfasti. Mikill húmoristi, jákvæður og glaður. Ég og Ian áttum gott spjall um bíla, heim­ilis- og sjúkra­trygg­ingar.“

Báðir miklir söngleikjamenn

Leik­stjóri mynd­ar­innar er Bill Condon en hann leik­stýrði meðal ann­ars Beauty and the Beast sem var frum­sýnd í fyrra og The Twilight Saga: Breaking Dawn Part 1 og 2. Jóhann­esi og Bill kemur vel saman á setti.

„Leik­stjór­inn er mik­ill söng­leikja­maður rétt eins og ég sjálfur og við höfum skemmt okkur við að raula hin og þessi lög, ég með íslenska text­anum og hann með enska. Það er mikið stuð.“

Áætluð frum­sýn­ing á The Good Liar er ein­hvern tíma á næsta ári en nóg hefur verið að gera hjá Jóhann­esi í erlendum verk­efnum upp á síðkastið, til dæmis í Netflix-ser­í­unni The Innocents, kvik­mynd­inni Atomic Blonde og geimser­í­unni Origin. Ætli þessi stór­mynd opni ein­hverjar nýjar dyr fyrir Jóhann­esi?

Jóhannes Haukur í hlut­verki sínu í Ég man þig.

„Ég er meira en sáttur við hvernig sakir standa og vona að ég geti haldið áfram í það minnsta á sömu braut. Eitt leiðir alltaf að öðru, ég vona það alla vega.“

Sjá einnig: Jóhannes Haukur fer á kostum í stiklu fyrir nýja Netflix-seríu.

Aðalmynd / Baldur Krist­jáns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ