Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Ég stal þessum hundi ekki”

„Ég stal þessum hundi ekki”
||||

„Ég hef aldrei sagt neitt ljótt um Ernu. Ég og mað­ur­inn minn höfum hins vegar reynt að aðstoða hana eins mikið og við höfum getað því ég þekki þessa teg­und nokkuð vel. En hún hefur því miður ekki tekið því með jákvæðu hug­ar­fari og oft­ast snúið því við,” segir hunda­rækt­and­inn og grunn­skóla­kenn­ar­inn Larisa Vikt­ors­dóttir.

Larisa seg­ist hafa orðið fyrir miklu aðkasti eftir að við­tal við annan hunda­rækt­anda, Ernu Christiansen, birt­ist á vef Mannlífs, en bæði Erna og Larisa rækta hunda af teg­und­inni Russian Toy. Í við­tal­inu sagði Erna frá ein­elti sem hún hefur þurft að þola innan hunda­sam­fé­lags­ins, en vændi einnig annan hunda­rækt­anda um þjófnað.

„Ég var búin að greiða fyrir hund úti í Rúss­landi og bað annan rækt­anda um hjálp með rúss­nesk­una, þar sem rækt­and­inn skildi litla ensku. Það endar á því að rúss­neski rækt­and­inn hættir að tala við mig og fékk ég loks að vita að hann væri hættur við að láta mig fá hund­inn. Síðan kemur í ljós að rækt­and­inn sem ég bað um hjálp frá hafði í raun stolið af mér hund­inum og flutti hann inn sjálfur,” lét Erna hafa eftir sér í umræddu við­tali. Larisa segir þessum orðum beint að sér, enda sé hún eini aðri rækt­andi Russian Toy á Íslandi sem talar rúss­nesku þar sem hún er af rúss­nesku bergi brotin.

Hundurinn auglýstur til sölu

Hér er skjá­skot af hunda­aug­lýs­ing­unni umræddu.

„Ég stal þessum hundi ekki. Rækt­and­inn aug­lýsti hund­inn á Facebook í maí á síð­asta ári. Hann var aug­lýstur til sölu á Facebook 16. maí 2017. Það sést hér á mynd sem ég sendi með. Sagðist hún vera hætt við að selja Ernu hann og hún skyldi selja mér hann í stað­inn. Af hverju hún hætti við að selja hann til Ernu veit ég ekki. Ég reyndi að spyrja rækt­and­ann af hverju en hún sagði að þetta væri mál á milli sín og Ernu. Meira veit ég ekki,” segir Larisa og ítrekar þá aðstoð sem hún hefur boðið Ernu.

„Ég og mað­ur­inn minn meira að segja tókum að okkur rækt­anda sem kom til lands­ins með hund fyrir Ernu og hún hafði ekki tíma til að sinna. Sá rækt­andi hafði upp á mér og hringdi grát­andi í mig og spurði hvort ég gæti sýnt henni um. Hún var pen­inga­lítil og nán­ast mál­laus því hún talar ekki mikla ensku. Sá rækt­andi vildi taka hund­inn sem hún kom með til baka en ég sagði henni að hann yrði í lagi því Ernu þætti vænt um dýrin sín. Sá hundur lenti í slysi strax eftir ein­angrun og reyndi ég að styðja hana meðal ann­ars með pen­ingum fyrir aðgerð á hund­inum, en hún bað um aðstoð á net­inu. Þess vegna finnst mér ekki rétt hvernig hún talar um mig í grein­inni. Við bentum henni á lög­mann sem hjálp­aði henni þegar MAST vildi svæfa tík sem hún átti og kom sprautulaus til lands­ins í ein­angrun. Þannig að tíkin var send úr landi og komst til baka eftir mánuð. Við reyndum að hjálpa henni eins mikið og við gátum. Það getur verið að aðrir hafi talað illa um hana en við reyndum að standa með henni. En hún fer sínar eigin leiðir svo það er erfitt,” segir Larisa. Hún segir að eftir að kaupin gengu í gegn hafi Erna hætt að tala við sig og eig­in­mann sinn.

„Hún byrj­aði að tala illa um okkur og kalla okkur ljótum nöfnum, sem og aðra rækt­endur. Ég er kenn­ari og stend ekki í svona sam­skiptum við fólk. Ég var búin að gefa henni góð ráð um ræktun og stinga uppá því að við gætum unnið saman, en hún tók öllu eins og við værum á móti henni. Ég bara skil þetta ekki. Mér líður mjög illa yfir þessu og ég var mjög sár að hún skildi segja þetta í grein­inni. Maðurinn minn sagði mér að taka þetta ekki nærri mér en á mjög erfitt með það. Þetta nið­ur­lægði mig fyrst og fremst og mér finnst ekki rétt af henni að vera að deila þess­ari grein á hinum ýmsu sam­fé­lags­miðlum,” segir Larisa.

Mikið um baktal

Larisu þykir afar vænt um hundana sína.

Larisa hefur verið í hunda­ræktun í rúm tvö ár hér á Íslandi og seg­ist hafa fundið vel fyrir því hvað þessi hunda­heimur getur verið harður.

„Að rækta hunda er ekki bara dans á rósum,” segir Larisa og vísar í tvennt; að það sé hörku­vinna að vera hunda­rækt­andi en líka að mikið sé um bak­tal í hunda­sam­fé­lag­inu.

„Kannski er það öfund­sýki sem veldur þessum nún­ingi á milli fólks og baktali. Ég bara veit það ekki. Ég upp­lifi það þannig að sumir innan hunda­sam­fé­lags­ins tala ekki einu sinni við mig. Ég stakk upp á því að við þrjár sem ræktum Russian Toy á Íslandi myndum hitt­ast og tala saman, þar sem Russian Toy er ný teg­und á Íslandi. En ekk­ert varð úr því, því miður, þannig að hvað get ég gert? Ég stend þá bara ein með sjálfri mér því ég er ekki fyrir það að standa í erjum við fólk. Erna sagð­ist ætla að kaupa marga hunda og vera númer eitt á Íslandi, sem er gott og blessað. En síðan spurði hún hvort ég vildi lána henni rakka undir tík­ina sína og ég sagð­ist ekki vilja það strax því ég hefði keypt þennan rakka fyrir tík­ina mína. Ég sagði það með vin­semd og virð­ingu en síðan kom grein­ina þar sem hún vændi mig um þjófnað,” segir Larisa og heldur áfram.

Á teg­und­ar­kynn­ingu í Garð­heimum.

„Það kom mér á óvart hvað Russian Toy hefur vakið mik­inn áhuga hjá fólki hér á landi og mér finnst gaman hvað ég fæ mikið af spurn­ingum um teg­und­ina í gegnum Facebook. Í rækt­un­inni minni RustoyIceland legg ég áherslu á að vera með fáa en góða hunda. Því þetta er mikil vinna og tíma­frek. Það þarf að hugsa mjög vel um hundana, leyfa þeim að aðlag­ast heim­il­inu og hverf­inu og þar fram eftir göt­unum. Það getur líka verið erfitt að vera með hunda og tíkur því það getur orðið mik­ill hasar á heim­il­inu þegar tík­urnar eru á lóðaríi,” segir Larisa og hlær.

Lítur framhjá erfiðleikunum

Larisa veit ekki hve lengi hún ætlar að halda áfram í hunda­ræktun og ætlar að leyfa tím­anum að leiða það í ljós. Hún hefur alist upp með hundum allt sitt líf.

„Þetta er mitt áhuga­mál og ég sinni því af mik­illi ánægju og ég lít fram­hjá erf­ið­leik­unum sem geta fylgt. Ég man vel eftir því þegar ég fór á mark­að­inn í heima­borg minni og þar voru til sölu þessir krútt­legu, litlu hnoðrar með þessi stóru eyru og augu. Ég hef því verið heilluð af teg­und­inni í fjölda ára. Síðan ég kom til Íslands hefur það verið draumur minn að flytja Russian Toy inn hingað. Það var svo fyrir þremur árum að ég keypti minn fyrsta Russian Toy. Það má segja að einn stærsti galli þess­arar teg­undar sé að um leið og fyrsti hvolp­ur­inn kemur á heim­ilið, langar mann strax í annan. Börnin mín eru farin af heim­il­inu, svo hund­arnir fá alla þá athygli sem þeir þurfa og mikla ást og umhyggju,” segir Larisa.

Litlir hundar með stór hjörtu

Það stendur ekki á svör­unum þegar blaða­maður spyr hvað það sé nákvæm­lega sem heilli hana svo við Russian Toy hunda.

„Russian Toy eru skemmti­legir hundar, alltaf glaðir og mjög lif­andi. Allt frá upp­hafi rækt­unar þeirra hafa þeir verið þjálfaðir til rottu­veiða og sem varð­hundar og er því lær­dóms­genið í þeim mjög virkt. Vegna þessa er mjög auð­velt að þjálfa Russian Toy og kenna honum. Margir sem koma og skoða þá eru mjög hissa á því hversu dug­legir þeir eru. Einnig eru þeir mjög heilsu­hraustir og ekki er vitað um að þeir valdi neinum ofnæmum og fara þeir lítið úr hárum. Svo las ég í grein að þeir séu góðir félagar fyrir börn með ein­hverfu þar sem þeir eru mjög trúir og passa­samir á eig­endur sína,” segir Larisa og heldur áfram.

Russian Toy eru með stór hjörtu – og eyru og augu.

„Það getur komið fyrir að það þurfi að passa Russian Toy í göngut­úrum því þeir verja eig­anda sinn ef þeir telja honum ógnað. Russian Toy er mjög góður fjöl­skyldu­hundur og verður mjög hændur að eig­anda sínum. Hann passar öllum ald­urs­hópum, bæði börnum og full­orðnum. Hann er til­val­inn félagi fyrir alla. Hann elskar að fara með eig­anda sínum hvert sem er og vill helst ekki víkja frá honum. Þegar eig­andi fer í göngutúr vill hann koma með og þegar eig­and­inn hvílir sig eftir á hvílir hund­ur­inn sig einnig. Hann vill gera allt það sama og eig­and­inn gerir. Þetta eru litlir hundar með stór hjörtu.”

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð