Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Ég hef verið kölluð ógeðsleg, óábyrg og sagt að ég fari illa með dýr“

„Ég hef verið kölluð ógeðsleg, óábyrg og sagt að ég fari illa með dýr“
|||

„Ég fór út í hunda­ræktun með góðu hug­ar­fari. Mig lang­aði að gera gott, styrkja teg­und­ina og alfarið mig sjálfa. En nú er bara verið að reyna að eyði­leggja orð­sporið mitt og það sem ég hef unnið hörðum höndum að í eitt og hálft ár,“ segir hunda­rækt­and­inn Erna Christiansen.

Erna fékk rækt­un­ar­nafnið sitt sam­þykkt þann 13. jan­úar á síð­asta ári hjá Hunda­rækt­un­ar­fé­lagi Íslands og ræktar hún hunda af teg­und­inni Russian Toy. Í byrjun febr­úar flutti hún inn sinn fyrsta hund og fann strax fyrir miklum mót­byr frá aðilum innan hunda­sam­fé­lags­ins, bæði ein­stak­lingum og öðrum hunda­rækt­endum.

„Ég hélt að þetta væri tíma­bundið en það var það í raun­inni ekki. Nú glími ég við dag­legt ein­elti eða and­legt áreiti,“ segir Erna. Þetta ein­elti og áreiti sem hún talar um lýsir sér í því að aðrir rækt­endur hafa talað illa um hana, reynt að sann­færa kaup­endur um að kaupa ekki hvolpa af henni, ásakað hana um að svindla á kaup­endum, skrifað mis­fögur orð um hana í opnum Facebook-hópum og hún sökuð um að fara illa með hundana sína, að eigin sögn.

Enginn er vinur þinn í hundaheiminum

Erna lítur á hundana sem börnin sín.

Erna hefur leyft fylgj­endum sínum á Snapchat að fylgj­ast með hund­unum sínum en hefur lent í því að þau óhöpp sem hún lendir í séu notuð gegn henni, eins og til dæmis þegar einn rakk­inn hennar fót­brotn­aði.

„Ég hef verið mjög óheppin og hef lent í nokkrum áföllum með hundana og það er verið að nota þau gegn mér. Þetta eru bara slys sem hefðu getað gerst á hvaða heim­ili sem er. Slys ger­ast og það ætti ekki að nota þau gegn manni. Ég hef verið kölluð ógeðs­leg, óábyrg og sagt að ég fari illa með dýr. Enginn er vinur þinn í þessum hunda­heimi og það er mikil sam­keppni í honum,“ segir Erna, mikið niður fyrir.

„Það er ekki hægt að treysta neinum í þessum hunda­heimi. Einn dag­inn eru aðrir rækt­endur vinir þínir, hinn dag­inn er farið að dreifa lyga­sögum um mann. Fólk sem ég hélt að ég gæti treyst og hefur sjálft lent illa í því í hunda­heim­inum reynd­ist ekk­ert skárra en fólkið sem bak­tal­aði það,“ segir Erna.

Ung stelpa með stóra drauma

Hún hefur oft lent í því að talað sé óbeint illa um sig í hópnum Hunda­sam­fé­lagið á Facebook og finnst henni það miður.

„Í gegnum Facebook hefur verið skotið mikið á mig óbeint, talað illa um mig, ráð­ist á mig per­sónu­lega og sett út á það sem ég er að gera. Aðrir rækt­endur hafa reynt að eyði­leggja fyrir mér og senda skila­boð á alla rækt­endur mína sem eru erlendis. Í þeim skila­boð hefur verið logið uppá mig alls kyns óhróðri.“

Erna við­ur­kennir að hafa svarað fyrir sig, en ein­göngu til að vernda sinn starfs­heiður og hundana sína, sem hún lítur á sem börnin sín.

„Ég er ung stelpa með stóra drauma sem eru loks­ins að verða að veru­leika. Ég er mjög stolt af því sem ég er búin að gera og vil halda áfram án þess að verið sé að dreifa lyga­sögum um mig og ýkja allt sem ég segi. Ég við­ur­kenni að ég hef sagt mörg ljót orð og logið að aðil­anum sem byrj­aði þessar árásir. En ég hafði góða ástæðu til, auð­vitað verður maður reiður og sár þegar ein­hver talar illa um börnin sín. Ég er reið og sár og búin að byrgja það inni í langan tíma. Auðvitað hélt ég að ég gæti talað við þetta fólk sem er að ráð­ast á mig en ég hef lært það af bit­urri reynslu að þessi heimur snýst ekki um annað en slúður og óheið­ar­leika.“

Sökuð um að vera í neyslu

Eitt af því sem hefur verið sett út á varð­andi hunda­ræktun Ernu eru samn­ingar sem hún hefur gert þegar hún selur hvolpa.

„Ég hef eytt rosa­lega miklum tíma í að vinna í hund­unum mínum og öllu í sam­bandi við þá. Kaup- og fóð­ur­samn­ing hef ég gert sjálf með hjálp frá nokkrum rækt­endum og hunda­fé­lögum og þeir eru ekk­ert óvenju­legir. Allir rækt­endur eru með mis­mun­andi kaup­samn­inga. Auðvitað vill manni líða vel með hvert hund­arnir fara og ef eitt­hvað kemur uppá vill maður geta treyst á kaup­samn­ing­inn. Það kemur bara engum við hvað hver og einn rækt­andi hefur í sínum samn­ingum.“

Ernu þykir líka miður að sögu­sagnir um hana snúa ekki aðeins að hunda­ræktun og hundum, heldur einnig að henni sjálfri per­sónu­lega.

Hér má sjá sam­skipti á milli eins rækt­anda og vin­konu Ernu.

„Það hefur verið sett út á klæðnað minn á hunda­sýn­ingum, sagt að það sé eitt­hvað mikið að mér og ég ætti að vera lögð inn og ég sökuð um að vera í neyslu. Það er sagt að ég vilji bara græða á þessu og ekk­ert annað, að ég geymi hundana mína í búrum og ég berji þá. Og ég veit ekki hvað og hvað,“ segir Erna hnuggin.

„Sann­leik­ur­inn er sá að hund­arnir mínir, sem eru fimm tals­ins, sofa uppí rúmi allar nætur og eru lausir á dag­inn. Þetta er ástríða mín og mér finnst þetta ótrú­lega gaman. Ég geri allt fyrir hundana mína og hef eytt öllum mínum pen­ing og sparn­aði í hunda­ræktun svo ég geti gert þetta vel. Ég flyt inn rán­dýra hunda en þótt þetta séu rækt­un­ar­hundar eru þetta samt börnin mín og verða það alltaf. Eftir að ég byrj­aði í ræktun opn­aði ég Snapchat-ið mitt svo fólk gæti virki­lega séð hvernig ég hugsa um hundana. Ég hef það að mark­miði að reyna að þókn­ast öllum en því miður er ekki hægt að þókn­ast sumu fólki. Getur fólk ekki bara hugsað um sjálft sig og hvað það er að gera og hætt að nið­ur­lægja aðra?“

Hundinum stolið

Erna hefur einnig lent í því að þessar sögur og bak­tal hafi borist alla leið til rækt­enda sinna í Rúss­landi, sem hefur orðið til þess að hún hefur misst hunda sem henni voru lof­aðir.

„Ég var búin að greiða fyrir hund úti í Rúss­landi og bað annan rækt­anda um hjálp með rúss­nesk­una, þar sem rækt­and­inn skildi litla ensku. Það endar á því að rúss­neski rækt­and­inn hættir að tala við mig og fékk ég loks að vita að hann væri hættur við að láta mig fá hund­inn. Síðan kemur í ljós að rækt­and­inn sem ég bað um hjálp frá hafði í raun stolið af mér hund­inum og flutti hann inn sjálfur.“

Lokar sig inni

Ástandið er orðið svo slæmt að Erna fer stundum ekki út svo vikum skiptir, enda sögur um hana farnar að breið­ast út á hunda­svæðum borg­ar­innar að eigin sögn.

„Stundum langar mig að hætta öllu og fara. Það hafa komið tíma­bil þar sem ég hef ekki farið út úr húsi þar sem ég er ekki nógu and­lega hraust til að takast á við fólk. Ég er hrædd um að standa með sjálfri mér því ég gæti eyði­lagt eitt­hvað. Og stundum er ég stút­full af reiði og tárum yfir því hversu ógeð­fellt fólk getur verið,“ segir Erna, en þessi lífs­reynsla hefur einnig ýft upp gömul sár.

„Ég hef verið lögð í ein­elti síðan ég man eftir mér. Ég skar mig alltaf úr. En með hund­unum mínum finnst mér ég vera frjáls og til­heyra hópi. Hund­arnir hafa komið mér upp úr alvar­legu þung­lyndi, kvíða og halda ADHD niðri. Ég tek ekki lengur lyf og þarf ekki á þeim að halda. Ég veit ekki hvar ég væri án þeirra og þeir hafa hjálpað mér meira en sál­fræð­ingar og læknar. Ég lenti í ýmsu þegar ég var yngri og auð­vitað stendur það í manni þegar ein­elti heldur áfram þegar maður er orð­inn full­orð­inn.“

Skrif á netinu geta eyðilagt fólk

Hún hvetur þá sem eru í þeim hug­leið­ingum að fá sér hund að skoða bak­grunn rækt­and­ans vel.

„Skoðið vel bak­grunn fólks­ins og fræð­ist um rækt­endur. Leyfið rækt­and­anum að spyrja ykkur spjör­unum úr og bjóða ykkur í heim­sókn. Fylgist með hvort rækt­and­inn talar illa um aðra. Passið að fá alla sög­una í kringum hundana og spyrja einmitt um slys og annað. Rækt­endur geta verið mjög sann­fær­andi áður en kaup eiga sér stað en láta sig hverfa þegar búið er að borga. Ég vona svo inni­lega að fleiri lendi ekki í svona ómann­úð­legri aðför eins og ég. Fólk verður að átta sig á því að það er hægt að eyði­leggja líf fólk bara með því að tala um það eða skrifa um það á net­inu.“

Vildi enda líf sitt

Falleg stund.

En hvernig áhrif hefur þessi reynsla á Ernu?

„Ég við­ur­kenni alveg að ég er ekki full­kom­inn rækt­andi, enda er það eng­inn í byrjun. Það er mjög sárt fyrir mig sem nýjan rækt­anda að fá svona við­brögð frá fólk sem ætti að vera að hjálpa mér og leiða mig áfram, í stað þess að rakka mig niður. Ég hef upp­lifað mikla van­líðan og kvíða af því að setja inn myndir og upp­lýs­ingar um hundana mína á sam­fé­lags­miðla vegna þess hvernig er komið fram við mig af öðrum rækt­endum. Mér sárnar það mikið hvað er sett út á samn­ing­ana mína. Ég hef upp­skorið mikið bak­tal fyrir það að leita hjálpar frá öðrum rækt­endum í þeim efnum en samt er ég máluð sem ósann­gjörn og óþverri. Ég vil bara fá séns og stuðn­ing, þar sem ég er ný í brans­anum. Ég er ekki að biðja um vor­kunn heldur gagn­kvæma virð­ingu innan þessa heims. Ég er ekki að reyna að gera neinn að vondri mann­eskju en þessa umræðu þarf að opna,“ segir Erna. Hún vonar líka að hennar saga opni almenna umræðu um ein­elti.

„Ég vil ekki sjá ein­elti í okkar sam­fé­lagi,“ segir Erna, sem lenti á botn­inum eftir þessar árásir fyrir stuttu.

„Ég fór til Spánar í lok sept­em­ber á þessu ári. Eftir allt sem ég hafði gengið í gegnum drakk ég ofan í þær til­finn­ingar og það rann ekki af mér fyrr en á fjórða degi. Seinasta kvöldið lá ég bara grát­andi uppí rúmi og vildi enda þetta bless­aða líf mitt. Ég gat ekki meir. Þá rann loks­ins upp fyrir mér að maður hleypur ekki frá vanda­mál­unum. Þarna féll ég á botn­inn, ekki út af ein­hverju sem ég sjálf hafði gert heldur út af ein­hverju sem aðrir höfðu gert mér. Ég var farin að trúa því sem aðrir sögðu að ég væri. Ég tók þetta inná mig. Ég ákvað að nenna ekki þessu bulli og vit­leysu. Ég hef fundið frið í mínu lífi eftir alla þessa erf­ið­leika og vona að ég haldi mínu striki. Ég er sterk­ari sem aldrei fyrr, þó enn sé langt í land,“ segir Erna, og vill brýna fyrir les­endum að þessu sé ekki beint að öllum.

„Þessu er alls ekki beint að öllum rækt­endum, alls ekki. En þið takið þetta til ykkar sem hafið tekið þátt í ein­hvers konar baktali, slúðri og að nið­ur­lægja aðra. Það eru heldur ekki bara rækt­endur sem skrifa illa um mig á net­inu. Nú held ég minni leið áfram og vil biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar ef ég hef sært þig eða ein­hvern sem þú þekkir. Ekki dæma mig fyrir mína for­tíð. Ég dæmi þig ekki fyrir þína og það eiga allir sína slæmu daga. Ég nenni ekki að spá meira í for­tíð­inni. Maður skapar sína eigin fram­tíð,“ segir Erna og bætir við hvatn­ing­ar­orðum til þeirra sem hafa ein­hvern tím­ann staðið í sömu sporum og hún.

„Haltu þínu áfram og þú kemst langt. Settu þér mark­mið og stattu við þau. Ekki láta ein­hvern segja þér hvernig þú átt að lifa þínu lífi.“

Texti / Lilja Katrín
[email protected]
Myndir / Eydís ljós­myndun / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ