Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Vona að ég verði ekki grýttur á almannafæri“

„Vona að ég verði ekki grýttur á almannafæri“
|

Rit­höf­und­ur­inn Snorri Krist­jáns­son, sem hefur getið sér góðan orðstír fyrir Val­hall­ar­sögu-þrí­leik­inn, hefur sent frá sér nýja bók, KIN (Ættin), sem hefur hlotið fína dóma og hefur útgáfu­rétt­ur­inn á henni þegar verið seldur til Þýska­lands og Rúss­lands. Líkt og fyrri verk Snorra ger­ist bókin á tímum vík­inga en höf­und­ur­inn sjálfur lýsir henni sem eins­konar sam­blandi af fantasíu­verki og glæpa­sögu í einka­spæj­ara­stíl.

„Þetta er morð­saga á vík­inga­öld, svona í anda „Nordic Noir“ þótt brúna­þungir rann­sókn­ar­lög­reglu-menn star­andi út í skamm­degið séu reyndar víðs­fjarri,“ segir Snorri kím­inn og vísar þar til þess að aðal­sögu­hetjan er ung kona, Helga Finns­dóttir, sem rann­sakar hrotta­fengið morð í föð­ur­húsum þar sem ýmsar miður geð­felldar per­sónur liggja undir grun, þar á meðal systk­ini hennar sem eru hvert öðru skugga­legra.

Snorri kveðst ekki vita til þess að skrif­aðar hafi verið skáld­sögur um rann­sókn og lausn glæpa á vík­inga­öld, hvað þá af íslenskum rit­höf­undum, en þorir ekki að slá því föstu að hann sé fyrstur til að ríða á vaðið. Eitt er þó víst, KIN markar visst brott­hvarf frá fyrri bókum Snorra, fyrr­nefndum Val­hall­ar­sögu-þrí­leik, sem voru hrein­ræktuð fantasíu­verk. „Það var mjög gaman að skrifa þrí­leik­inn en þegar þriðju bók lauk var ég orð­inn leiður á því að skrifa stórar bar­daga­senur,“ segir hann hrein­skil­inn. „Mér fannst bara komið gott. Kominn tími til að skrifa um eitt­hvað annað.“ Hann úti­lokar þó ekki að hann muni ein­hvern tíma snúa sér aftur að fantasíu­skrifum ef hann fái góða hug­mynd að sögu.

En var hann ekk­ert tví­stíg­andi að takast á við annað bók­mennta­form, glæpa­sög­una? „Nei, í sjálfu sér ekki,“ svarar hann. „Því KIN er blanda af fantasíu og glæpa­sögu, eig­in­lega sögu­leg furð­u­glæpa­saga. Þannig að í raun er ég ekki að takast á við form og hefðir glæpa­sög­unnar. Ég er ekki að taka þátt í „sam­ræðum geirans“ ef svo má að orði kom­ast. Ég fékk bara hug­mynd að fléttu og skrif­aði sögu út frá því.“

Er ekki að halda því fram að konur séu svona

Snorri seg­ist reyndar ekki vera viss um hvernig sú hug­mynd kvikn­aði nákvæm­lega. Í aðdrag­anda skrif­anna hafi hann verið búinn að horfa á býsn af glæpa­þáttum og haft gaman af því að fylgj­ast með eig­in­kon­unni leysa gátur.  Hann hafi ákveðið að útbúa eina slíka fyrir heim­ilið og hún end­aði sem úrdráttur að bók, tvær blað­síður sem útgef­and­anum leist vel á og bauð Snorra því nýjan samn­ing. „Já, umboðs­mað­ur­inn sýndi útgef­and­anum þær og hún las yfir og sagði: „Hmmm, já þetta virkar“,“ segir hann og hlær.

Sögu­hetjan Helga, er skel­egg ung kona sem skaut fyrst upp koll­inum í annarri bók í Val­hall­ar­sögu-þrí­leiknum. Það er kannski ákveðin klisja að spyrja, en þú hefur ekk­ert verið hræddur við að skrifa út frá sjón­ar­hóli konu? Snorri brosir. „Að ígrund­uðu máli ætla ég að halda því fram að ég hafi ekki verið skít­hræddur við það. Ætli það hljómi ekki betur að segja að ég hafi nálg­ast það verk­efni af yfir­vegun og tölu­verðri virð­ingu,“ segir hann sposkur.

Að því sögðu við­ur­kennir hann að vissu­lega sé það alloft kveðin vísa að karl­kyns rit­höf­undar eigi erf­ið­ara með að „skrifa út frá sjón­ar­horni kvenna“ en kven­kyns rit­höf­undar út frá sjón­ar­horni karla. Í KIN sé til hins vegar heill her­skari kven­per­sóna fyrir utan Helgu sjálfa og þær séu hver annarri snún­ari.

„En auð­vitað er ég ekki að skrifa út frá eigin reynslu og það getur vel verið að það fari illa í ein­hverja les­endur. Ég vill þó und­ir­strika að ég er alls ekki halda því fram að konur séu „svona“ eins og kon­urnar eru í bók­inni, en ég vona inni­lega að kven­per­són­urnar mínar séu sann­fær­andi og að ég verði ekki grýttur á almanna­færi fyrir að voga mér upp á téðan sjón­ar­hól.“

Hörð samkeppni

KIN er skrifuð á ensku og gefin út í Bret­landi líkt og fyrri verk Snorra og segir hann ekki standa til að þýða bók­ina á íslensku því það sé bæði dýrt og tíma­frekt verk. Útgáfu­rétt­ur­inn á bók­inni hafi hins vegar þegar verið seldur til Þýska­lands og Rúss­lands, auk þess sem Val­halla­sögu-þrí­leik­ur­inn hafi líka verið þýddur á pólsku, hol­lensku, spænsku og ung­versku og gef­inn út í Banda­ríkj­unum. Spurður hvort það sé stór mark­aður fyrir svona bækur erlendis, segir hann það fara eftir því hvað sé átt við með „svona bókum“. Eins og sjá­ist á Krúnu­leik­unum (Game of Thrones) sé alveg sæmi­legur mark­aður fyrir eina og eina fantasíu, en það séu færri og stærri nöfn í þeim geira. Á meðan glæpa­sögur selj­ist aftur á móti á til­tölu­lega breið­ari mark­aði en fantasíur þá sé „harð­ari sam­keppni um að kom­ast á flug­vallar-hill­una“.

Hefur komið til tals að kvik­mynda bæk­urnar? „Já, þegar Vikings þætt­irnir voru hvað vin­sæl­astir barst í tal að kvik­mynda Val­hallar-bæk­urnar en það varð lítið úr því og smám saman hef ég áttað mig á því að kvik­mynda­gerð­ar­fólki finnst afskap­lega gaman af því að tala um hlut­ina. Þess vegna hall­ast ég núorðið að við­horfi Elmore Leonard til kvik­mynda, en hann sagði að bíópen­ingur væri fundið fé.“

En sérðu fyrir þér að getað lifað alfarið af skrifum? „Það er draum­ur­inn,“ svarar hann, „en í augna­blik-inu er ansi langt í það. Þeir rit­höf­undar sem ég hef rætt þetta við segja að það sé spurn­ing um úthald og fram­leiðslu frekar en að skrifa ein­hverja met­sölu­bók. Ég hef mjög gaman af skrifum, þannig að ég ætla bara að halda þeim áfram á meðan ég get og nenni. Ritstörf og kennsla eru hvort tveggja dásam-leg og skrítin störf sem geta átt hug manns allan og eins og er hef ég náð góðu jafn­vægi á milli þess­ara starfa.“

Sem stendur seg­ist hann vera með nokkrar hug­myndir að bókum sem hann er að þróa. Þar á meðal að annarri „Helgu-bók“ og svo hand­rit að ung­linga­bók sem þurfi að fín­pússa. Ætlar hann þá að fikra sig yfir í enn eina bók­menntgrein­ina?  „Já, ég er að sjálf­sögðu að stefna að fulln­að­ar­sigri í þeim öllum þannig að ætli ég sendi ekki svo frá mér róm­an­tíska ung­linga­glæpaf­urðu­sögu árið 2022,“ segir hann og hlær.

Mynd / Gunnar Freyr Steins­son Pho­tography

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ