Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Raunkostnaður hærri en verðskrá SÍ kveður á um

Raunkostnaður hærri en verðskrá SÍ kveður á um
|

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um að end­ur­skoða ætti greiðslu­þátt­töku rík­is­ins vegna tækni­frjóvg­un­ar­með­ferðar var sam­þykkt árið 2016 og átti end­ur­skoðun að ljúka fyrir árs­lok þess árs. Henni er ekki enn lokið.

Í þess­ari til­lögu var meðal ann­ars lagt til að greiðslu­þátt­taka sjúkra­trygg­inga nái til fyrstu glasa­frjóvg­un­ar­með­ferðar hjá fólki óháð því hvort það eigi barn fyrir, en í dag nær þessi þátt­taka aðeins frá annarri til fjórðu með­ferðar hjá pörum og ein­stak­lingum sem eiga ekki barn fyrir. Hins vegar er tekið þátt í fyrstu með­ferð para og ein­hleypra kvenna ef um er að ræða yfir­vof­andi ófrjó­sem­is­vanda­mál kon­unnar vegna fyr­ir­sjá­an­legrar lyfja­með­ferðar, geisla­með­ferðar eða bein­merg­s­flutn­ings. Þá end­ur­greiða Sjúkra­trygg­ingar Íslands 65% útlagðs kostn­aðar vegna ástungu á eista og fryst­ingu sáð­fruma þegar um er að ræða karl­menn með yfir­vof­andi ófrjó­sem­is­vanda­mál vegna fyr­ir­sjá­an­legrar lyfja­með­ferðar, geisla­með­ferðar eða bein­merg­s­flutn­ings. Í þeim til­fellum er Sjúkra­trygg­ingum Íslands heim­ilt að greiða 90% útlagðs kostn­aðar vegna geymslu­gjalds á frystum fóst­ur­vísum/sáð­frumum, þó að hámarki í tíu ár.

Þá fer greiðslu­þátt­taka eftir verð­skrá Sjúkra­trygg­inga Íslands, en sú verð­skrá hefur ekki verið upp­færð síðan árið 2011 og er ekki í sam­ræmi við verð­skrá þeirra stofn­ana sem fram­kvæma frjó­sem­is­með­ferðir. Eins og kemur fram í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er því raun­kostn­aður við frjó­sem­is­með­ferðir umtals­vert hærri en verð­skrá Sjúkra­trygg­ina Íslands kveður á um. Að mati flutn­ings­manna til­lög­unnar er Ísland nokkur eft­ir­bátur nágranna­landa okkar og þeirra landa sem við viljum almennt bera okkur saman við á þessu sviði. Tekin eru dæmi um að í Danmörku og Svíþjóð nái greiðslu­þátt­taka rík­is­ins yfir­leitt til fyrstu og þriðju með­ferðar.

Samkvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni standa þjóð­irnar sem við viljum bera okkur saman við okkur fremur í greiðslu­þátt­töku vegna frjó­sem­is­með­ferða.

Ekki unnt að uppfæra gjaldskrá vegna fjárskorts

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn til heil­brigð­is­ráð­herra, Svan­dísar Svav­ars­dóttur, um þetta greiðslu­þátt­töku­kerfi og hvar end­ur­skoðun þess stæði. Eft­ir­far­andi svör bár­ust frá ráðu­neyt­inu:

Í reglu­gerð um greiðslu­þátt­töku vegna tækni­frjóvg­ana stendur að end­ur­greiðsla mið­ist við gjald­skrá SÍ. Sú verð­skrá hefur ekki verið upp­færð síðan 2011 og tekur því ekki mið af verð­lags­breyt­ingum. Af hverju hefur sú verð­skrá ekki verið upp­færð?

Svar: Verð­skráin hefur tekið mið af þeim fjár­munum sem hafa verið til ráð­stöf­unar og fram­lög hafa ekki verið aukin þannig að unnt væri að upp­færa gjald­skrána.

Verðskrá SÍ og verð­skrá stofn­ana sem sjá um frjó­sem­is­með­ferðir eru tvær ólíkar verð­skrár. Stendur til að sam­ræma þessar verð­skrá að ein­hverju eða öllu leyti?

Svar: Ekki eru áform um að sam­ræma gjald­skrá SÍ og einka­rek­inna fyr­ir­tækja sem sinna þess­ari þjón­ustu, þar sem ekki hafa tek­ist samn­ingar milli SÍ og við­kom­andi aðila. Sem fyrr segir hefur þetta einnig með fjár­fram­lög að gera.

Enginn samn­ingur er á milli íslenska rík­is­ins og stofn­ana sem sjá um frjó­sem­is­með­ferðir. Stendur til að koma á slíkum samn­ingi? Ef já, hvar er það statt í ferl­inu? Ef nei, af hverju ekki?

Svar. Já, það er stefnt að því að semja um þessa þjón­ustu.

Varðandi orða­lag í reglu­gerð um greiðslu­þátt­töku vegna tækni­frjógv­unar þá er talað um að end­ur­greiða ein­hleypum konum með yfir­vof­andi ófrjó­sem­is­vanda­mál vegna með­ferðar. Hins vegar stendur að karl­menn með yfir­vof­andi ófrjó­sem­is­vanda­mál fái end­ur­greitt fyrir ástungu á eista eða fryst­ingu á sæð­is­frumum. Má þá skilja það þannig að ekki sé tekið þátt í frjó­sem­is­með­ferðum ein­hleypra karla að öðru leyti?

Svar: Það er rétt skilið.

Í gjald­skrá SÍ er ekki talað um fryst­ingu á fóst­ur­vísum og eggjum, heldur ein­göngu sáð­frumum. Er ekki tekið þátt í kostn­aði vegna fryst­ingar á fóst­ur­vísum og eggjum, eða er það talið hluti af frjó­sem­is­með­ferð?

Svar: Rétt er að benda á að frá árinu 2012 hefur verið 90% greiðslu­þátt­taka rík­is­ins vegna geymslu­gjalds á frystum fóst­ur­vísum (sbr. rg. um 2. breyt­ingu á rg. nr. 917/2011). Greiðslu­þátt­taka í fryst­ingu á egg­frumum hefur ekki verið í gjald­skránni til þessa vegna þess að með­ferðin hefur verið ófram­kvæm­an­leg hér á landi. Nú hefur orðið breyt­ing á því og þar með er áformað við end­ur­skoðun þess­ara mála að ríkið taki þátt í kostn­aði vegna fryst­ingar á egg­frumum.

Nú hefur verið sam­þykkt þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis að end­ur­skoða reglur greiðslu­þátt­töku rík­is­ins vegna tækni­frjóvg­un­ar­með­ferðar. Hvar er sú vinna stödd? Í þings­á­lyktun stendur að þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra ætti að end­ur­skoða reglur fyrir árs­lok 2016. Af hverju hefur þessi vinna taf­ist?

Svar: End­ur­skoðun á regl­unum stendur yfir í sam­vinnu við Sjúkra­trygg­ingar Íslands.

Stendur til að hækka fjár­fram­lag til þess­arar end­ur­greiðslu?

Svar: Stefnt er að því að setja nýja reglu­gerð um þessa þjón­ustu innan fárra vikna. Með henni verður breytt fyr­ir­komu­lagi varð­andi greiðslu­þátt­tök­una. Aftur á móti liggur fyrir fjár­magn til þess­arar þjón­ustu í fjár­lögum og því ekki svig­rúm til þess að auka útgjöldin á þessu ári.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ