Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hreyfing – eitt besta gleðilyf sem til er

Á nýju ári fara margir af stað með fögur fyr­ir­heit, langar að bæta heils­una, létta sig og verða sterk­ari og stælt­ari. Farið er af stað af stað með látum og oft er mein­ingin að bylta matar­æð­inu og mæta dag­lega í rækt­ina en margir gef­ast fljótt upp og allt sækir í sama far og áður. Ágústa Johnson, eig­andi Hreyf­ingar, segir þó ein­fald­ara en fólk heldur að breyta lífs­stílnum.

Hreyfing – eitt besta gleðilyf sem til er

„Það er aldrei of seint að taka heilsu­m­álin föstum tökum og þú finnur fljótt mun­inn,“ segir hún. „Það þarf alls ekki að vera stór­mál að gera litlar jákvæðar breyt­ingar á lífs­stílnum til að upp­skera betri heilsu, meiri orku og bætta líðan.“

Ágústa segir langör­ugg­ast til að ná árangri að fá aðstoð fag­manna eða skrá sig á heilsu­rækt­ar­nám­skeið.

„Í Hreyf­ingu bjóðum við upp á fjöl­breyttar lausnir og umfram allt frá­bært fag­fólk sem er afar fært í að aðstoða fólk á allan hátt við að koma sér af stað á heilsu­braut­ina til fram­búðar. Hvort sem fólki hentar að koma og æfa í hópi á skemmti­legu nám­skeiði, þjálfa með einka­þjálf­ara eða, sem fjöl­margir nýta sér núna, að koma til okkar í Bestu aðild þar sem þjálf­ari er til taks í salnum, mælir lík­ams­á­standið með reglu­legu milli­bili, útbýr æfinga­kerfi og veitir reglu­legan stuðn­ing og aðhald. Reynslan sýnir að þeir sem æfa með ein­hvers konar aðhaldi frá þjálf­ara eru lík­leg­astir til að ná sínum mark­miðum. Besta aðildin er frá­bær leið því þar hef­urðu aðgang að þjálf­ar­anum hvenær sem þú þarft og hann er alltaf á kant­inum til að vísa þér veg­inn, fylgj­ast með fram­förum og end­urstilla æfinga­kerfið reglu­lega. Auk þess eru ótal huggu­leg og spenn­andi fríð­indi sem fylgja Bestu aðild­inni.“

Ágústa segir heilsu­rækt vera lífs­tíð­ar­verk­efni sem krefj­ist stöðugrar vit­undar og aðhalds. Hún vitnar í Nike: JUST DO IT! og gefur fjögur heilla­ráð fyrir þá sem vilja ná árangri.

  1. Hreyfing

„Hreyfing er lík­am­anum nauð­syn­leg, svo ein­falt er það. Ef þú ert ekki nú þegar með dag­lega hreyf­ingu í þínu lífi þarftu að breyta því. Í fyrsta lagi ætt­irðu að sporna við langri kyrr­setu með því að standa upp ekki sjaldnar en á 30 mín­útna fresti. Þó ekki væri nema í 1 til 2 mín­útur til að teygja úr þér og sækja þér vatn að drekka. Auk þess ættir þú að styrkja vöðvana með reglu­legum lyft­ingum og þjálfa mik­il­væg­asta vöðvann, hjartað, með kraft­miklum þol­æf­ingum. Liðleika- og jafn­vægisæf­ingar eru einnig afar mik­il­vægar. Í stuttu máli; stefndu að því að stunda fjöl­breyttar lík­ams­æf­ingar ekki sjaldnar en þrisvar sinnum í viku í 30 til 60 mín og vendu þig á að standa oft og iðu­lega upp úr stólnum alla daga.“

  1. Næring

„Allt of margir grípa mat á hlaupum og oftar en ekki er það lélegt, nær­ing­ar­s­nautt fæði sem fljót­leg­ast er að grípa til. En það er hverrar mín­útu virði að skipu­leggja matar­æðið vel og taka jafn­vel á sig krók til að vanda til fæð­unnar. Í stuttu máli er skyn­sam­legt að sneiða að mestu hjá sæt­indum og syk­ur­ríkri fæðu. Mik­il­vægt er að fá nægar trefjar dag­lega og sneiða sem mest hjá unnum mat­vælum og hertri fitu. Niður með rusl­fæðið og upp með græn­metið. Þegar farið er í að breyta matar­æð­inu er skyn­sam­legt að koll­varpa ekki öllu í einu. Byrjaðu á að gera áætlun, til dæmis 1 til 2 litlar breyt­ingar á mán­uði fyrir allt árið. Eftir árið hef­urðu kannski fest í sessi helm­ing breyt­ing­anna eða meira og yrði það frá­bær árangur.“

Niður með rusl­fæðið og upp með græn­metið.
  1. Slökun

„Eftir jól og ára­mót glíma margir við rugl í svefn­mynstr­inu og sumir hafa gengið svo langt að snúa nán­ast sól­ar­hringnum við. Þá þarf að kippa því í lag hið fyrsta. Svefn, hvíld og slökun eru hverjum manni nauð­syn. Í raun má segja að eitt besta fegr­un­ar­ráð sem til er sé reglu­legur 8 tíma svefn. Um leið og við töpum hvíld nokkra daga í röð fer allt á verri veg. Reyndu af fremsta megni að koma rútínu á svefn­venjur þínar. Fara að sofa á svip­uðum tíma, helst fyrir mið­nætti og ná að sofa í 7 til 8 klukku­stundir á hverri nóttu. Það verður bara allt auð­veld­ara og betra þegar það gengur eftir.“

  1. Skapið og gleðin

„Góð heilsa, gæða­stundir með ást­vinum, að vera í góðu jafn­vægi, vel hvíldur, nær­ast á góðum mat, gefa sér tíma til að sinna áhuga­málum, hafa næga orku til að takast á við krefj­andi verk­efni, ná árangri í líf­inu og njóta þess að safna skemmti­legum minn­ingum er það sem við flest óskum okkur til að njóta lífs­ins eins og kostur er.

Hvað sem dynur á okkur í líf­inu þá gerir það okkur öllum gott að átta okkur á því hvað kemur okkur í gott skap og veitir ánægju, ham­ingju og lífs­fyll­ingu. Að horfa á jákvæðu hlið­arnar frekar en þær nei­kvæðu breytir miklu fyrir and­lega líðan.

Bjart­sýni og jákvætt við­horf gerir virki­lega gæfumun­inn og það er marg­sannað að reglu­leg þjálfun er eitt besta gleð­i­lyf sem til er.“

Í sam­starfi við Hreyf­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur