Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sælkeraferð um Baskaland

Úrval Útsýn býður upp á ein­staka ferð um Baska­land á Norður-Spáni um pásk­ana, með til­heyr­andi útsýn­is­ferðum, vín­s­mökk­unum og öðrum lífs­ins lystisemdum.

Sælkeraferð um Baskaland

Gist verður á fyrsta flokks hót­eli, Hotel Dolarea í bænum Baesin, sem er í aðeins klukku­stundar akst­urs­fjar­lægð suð­austur af hinni líf­legu hafn­ar­borg Bilbao og tím­anum varið í að smakka vín og rétti að hætti heima­manna í nær­liggj­andi byggð­ar­lögum.

Eftir beint flug með Icelandair til Bilbao um hádeg­is­bil fimmtu­dag­inn 18. apríl verður kynn­ing­ar­setur Idiazabal-osts­ins fyrsti við­komu­staður, en hann hefur lengi verið eft­ir­læti baskneskra fjár­hirða. Osturinn góði verður þar í boði og sömu­leiðis Txakoli-vín áður en leiðin liggur svo til Baesin, þar sem þæg­indi Dolorea-hót­els­ins taka við.

Daginn eftir verður síðan lagt af stað að hjarta vín­fram­leiðsl­unnar í Baska­landi sem er að finna í Logrono, höf­uð­borg La Rioja-sjálf­stjórn­ar­svæð­is­ins. Borgin er meðal ann­ars þekkt fyrir for­vitni­lega bygg­ing­ar­list sem á rætur að rekja til tíma Rómverja og í þess­ari heim­sókn gefst færi að kynna sér hana betur í skoð­un­ar­ferð um gamla bæinn. Víngerð er ein helsta atvinnu­grein borg­ar­búa og verða vín svæð­is­ins því vit­an­lega smökkuð og í leið­inni litið inn á nota­lega tapas-staði sem eru í löngum röðum sums staðar í Logrono. Upp úr hádegi sama dag verður svo frægt vín­gerð­ar­hús að nafni Wineary Marques de Riscal heim­sótt, en í vín­kjall­ara þess er að finna raðir af ámum sem geyma allar árgerðir vín­anna frá stofnun árið 1858.

Allt það besta í mat og drykk

Höf­uð­borg Baska­lands, Vitoria eða Vitoria-Gestseuz, verður heim­sótt laug­ar­dag­inn 20. apríl, en árið 2012 var borgin útnefnd Græna borg Evrópu vegna þeirra óvenju mörgu grænu svæða sem eru á víð og dreif um hana. Vitoria er þó þekkt fyrir fleira, svo sem fjöl­margar kirkjur, for­vitni­leg söfn, fjöl­breytta veit­inga­staði, bari og versl­anir sem gaman er að skoða, en eftir heim­sókn­ina verður farið til Ananan-salt­svæð­is­ins sem hefur að geyma elstu salt­námur heims, um það bil 6.500 ára gamlar (!) og þar bragðað á hreinu salt­inu.

Áfanga­staður sunnu­dags­ins er svo ekki af verri end­anum en þá verður farið til hafn­ar­borg­ar­innar San Sebast­ian þar sem varla er þver­fótað fyrir góðum veit­inga­stöðum, versl­unum, heilsu­lindum og öðrum lúxus. Við kom­una verður meðal ann­ars farið í skoð­un­ar­ferð um borg­ina, bragðað á Txakoli-víni úr smiðju heima­manna og ef tími gefst farið með kláf­ferju upp á Igu­eldofjall þar sem glæsi­legt útsýni er yfir borg­ina.

Loka­deg­inum verður svo varið í Bilbao, menn­ingar- og mennta­mið­stöð Baska­lands, sem státar af fínum veit­inga­stöðum, versl­unum, arki­tektúr og fal­legri nátt­úru í grennd­inni og svo auð­vitað hinu skemmti­lega skrítna Gug­gen­heimsafni, sem margir koma gagn­gert til að skoða, enda algjört lista­verk í sjálfu sér. Varla er hægt að biðja um betri endi á ævin­týra­legu ferða­lagi þar sem allt það besta í mat og drykk er á boðstólum.

Mynda­texti: Úrval Útsýn býður upp á fimm daga ferð um Baska­land og fjórar gistinætur, dag­ana 18. apríl til 22. apríl. Þar verða stað­irnir Beasin, Logrono, Vitoria, San Sebast­ian og Bilbao heim­sóttir en þeir eru við jaðar Rioja-vín­svæð­is­ins.

Stúdíó Birtíngur
Í sam­starfi við Úrval Útsýn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur