Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gott í matinn gefur góðar hugmyndir fyrir brúðkaupsveisluna

Vefsíðan gottimat­inn.is er upp­skrifta­síða Mjólk­ur­sam­söl­unnar en hún er góður staður til að byrja á þegar kemur að því að huga að veit­ingum fyrir brúð­kaups­veisl­una.

Gott í matinn gefur góðar hugmyndir fyrir brúðkaupsveisluna

Á síð­unni eru alls kyns flokkar á borð við köku-, kjöt- og osta­flokka en jafn­framt er þar að finna sér­stakan flokk til­eink­aðan veislum þar sem finna má margs­konar upp­skriftir sem henta full­kom­lega fyrir stóra dag­inn. Brúð­kaups­veislur nú til dags eru af ýmsum stærðum og gerðum og eru eins ólíkar og þær eru margar – rétt eins og brúð­hjónin hverju sinni.
„Að mörgu er að huga fyrir stóra dag­inn og í flestum til­fellum skiptir mat­ur­inn miklu máli en þá er líka gott að hafa í huga að það er engin ein rétt upp­skrift að full­kominni brúð­kaups­veislu heldur skiptir mestu máli að brúð­hjónin hafi hlut­ina eins og þau vilja,“ segir Gréta Björg Jak­obs­dóttir, mark­aðs­full­trúi MS.

Mögulega er mexíkóskur matur, ostar og osta­kökur í miklu upp­á­haldi hjá verð­andi brúð­hjónum. Hví ekki að ganga út frá því og bjóða upp á mexíkóska kjúklinga­súpu, ljúf­fenga osta­köku og girni­legan osta­bakka í veisl­unni. „Hvort sem brúð­hjónin langar að bjóða upp á smá­rétti og ljúf­fenga osta, súpu og snittur, heitt mat­ar­hlað­borð eða dýr­indis köku­veislu er valið þeirra og heima­síða Gott í mat­inn getur án nokk­urs efa aðstoðað við und­ir­bún­ing­inn,“ segir Gréta og deilir hér með les­endum nokkrum vel völdum upp­skriftum af síð­unni.

Mexíkósk kjúklinga­súpa
400 g kjúklinga­kjöt
1 msk. olía
1 laukur
6 plómu­tómatar, skornir í bita
100 g blað­laukur smátt saxaður
1 rauð paprika smátt söxuð
1 grænt chili, fínt saxað
2 tsk. papriku­duft
3 msk. tómat­púrra
1½ l kjúklinga­soð (vatn og ten­ingur)
2 dl salsa-sósa
100 g rjóma­ostur til mat­ar­gerðar frá Gott í mat­inn

Meðlæti í súp­una
sýrður rjómi frá Gott í mat­inn
nachos-flögur
rif­inn ostur frá Gott í mat­inn

Aðferð:

1. Steikið saman í olíu kjúklinga­kjötið, lauk­inn, blað­l­auk­inn, paprik­una, grænt chili og plómu­tómatana.
2. Bætið í papriku­dufti og tómat­púrru, blandið vel saman. Hellið saman við kjúklinga­soðið og látið sjóða í 15-20 mín. við vægan hita.
3. Bætið salsa-sósu í súp­una ásamt klípum af rjóma­ost­inum. Látið sjóða í 3-5 mín. við vægan hita.
4. Berið súp­una fram með sýrðum rjóma, nachos-flögum og rifnum osti.

Ofn­bak­aðar brauð­snittur með Dala-Camembert
1 snittu­brauð
Dala-Camembert
mangó-chutney
stein­selja
pistasíur

Aðferð:
1. Skerið snittu­brauðið í jafn­stórar sneiðar.
2. Leggið eina til tvær sneiðar af Dala-Camembert yfir hverja brauð­sneið.
3. Setjið góða mat­skeið af mangó-chutney yfir ost­inn.
4. Bakið við 180°C í 5-7 mín­útur eða þar til ost­ur­inn verður gull­in­brúnn.
5. Skreytið snitt­urnar með stein­selju og pistasíum og berið strax fram.

Osta­salat
1 Mexík­óostur
1 Hvít­lauksostur
180 g sýrður rjómi frá Gott í mat­inn 18% (1 dós)
1½ msk. grísk jógúrt frá Gott í mat­inn
1 rauð paprika, smátt söxuð
¼ blað­laukur, smátt saxaður
rauð vín­ber, magn eftir smekk

Aðferð:
1. Hrærið sýrðan rjóma og gríska jógúrt saman.
2. Skerið ostana í litla bita og blandið saman við sós­una.
3. Skerið papriku og blað­lauk smátt og blandið saman við.
4. Skerið að lokum nokkur vín­ber, magn fer eftir smekk.
5. Blandið þeim saman við og hrærið vel í sal­at­inu.
6. Salatið er betra ef það fær að standa í nokkrar klukku­stundir í ísskápnum áður en það er borið fram.

Osta­bakki með ítölsku ívafi
1 stk. Dala-Camembert
1 stk. Ljótur
1 stk. Gull­ostur

Meðlæti:
parma­skinka eða önnur hrá­skinka
grænar ólífur
salami, krydd­pylsa eða annað kjöt­á­legg
fersk jarð­ar­ber sett ofan á Gull­ost­inn
fersk blá­ber
kex

Oreo-osta­kaka
Botn:
320 g Oreo-kex­kökur
100 g smjör

Fylling:
600 g hreinn rjóma­ostur til mat­ar­gerðar frá Gott í mat­inn, við stofu­hita
3 msk. flór­sykur
200 g hvítt súkkulaði, brætt yfir vatns­baði
300 ml rjómi
1 tsk. vanilla
Oreo-kex­kökur

Aðferð:
1. Myljið kexið í mat­vinnslu­vél. Blandið smjör­inu saman við og þrýstið kex­blönd­unni í botn­inn á böku­formi og upp með börmum. Kælið á meðan þið útbúið fyll­ing­una.
2. Þeytið rjóma­ost­inn í smá­stund, bætið flór­sykrinum, rjóm­anum og vanillu saman við og hrærið.
3. Bræðið súkkulaðið yfir vatns­baði, kælið aðeins og hellið út í osta­blönd­una í mjórri bunu.
4. Hellið blönd­unni ofan á kex­botn­inn og setjið inn í kæli. Geymið kök­una í kæli í nokkrar klukku­stundir eða yfir nótt.
5. Myljið að lokum nokkrar kex­kökur og sáldrið yfir kök­una. Einnig er fal­legt að skreyta kök­una með berjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur