Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Framtíðarlausnir sem geta breytt heiminum

Til sjávar og sveita er fyrsti við­skipta­hrað­al­inn hér­lendis sem ein­blínir á nýjar lausnir og sjálf­bæra verð­mæta­sköpun í land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi. Tíu spenn­andi teymi frum­kvöðla voru valin úr hópi rúm­lega sjö­tíu umsókna.

Framtíðarlausnir sem geta breytt heiminum

Á Íslandi má finna ótrú­lega hug­myndauðgi í nýsköpun í land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi, tveimur af grunn­stoðum íslensks atvinnu­lífs, að sögn Melkorku Sigríðar Magn­ús­dóttur, verk­efna­stjóra hjá Icelandic Startups.

Til sjávar og sveita er fyrsti við­skipta­hrað­al­inn hér­lendis sem ein­blínir á nýjar lausnir og sjálf­bæra verð­mæta­sköpun í land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi en tíu teymi frum­kvöðla voru valin úr hópi rúm­lega sjö­tíu umsókna. „Við val á teymum skiptu tveir þættir mestu máli, nýnæmi vör­unnar eða þjón­ust­unnar og teymið sjálft. Það er nefni­lega ekki nóg að vera með góða hug­mynd heldur skiptir öllu að hafa gott þver­fag­legt teymi á bak við hug­mynd­ina svo hún vaxi, dafni og verði að veru­leika.“

Stífar vikur fram undan

Við­skipta­hrað­all­inn hófst í lok mars og stendur yfir til loka maí. „Þetta eru stífar níu vikur hjá frum­kvöðl­unum okkar sem inni­halda m.a. sjö lotur af vinnu­smiðjum og fundi með yfir 40 mentorum en þann hóp skipa stjórn­endur, frum­kvöðlar, fjár­festar og aðrir sér­fræð­ingar úr atvinnu­líf­inu. Auk þess fá hóp­arnir fyrsta flokks vinnu­að­stöðu í Íslenska ferða­kla­s­anum úti á Granda. Hraðl­inum lýkur svo 24. maí með upp­skeru­degi í Tjarn­ar­bíói þar sem hóp­arnir munu kynna við­skipta­hug­mynd­irnar sínar. Allt þetta, og raunar meira til, er þátt­tak­endum að kostn­að­ar­lausu.“

Fjölbreyttar lausnir

Icelandic Startups keyrir sam­bæri­lega við­skipta­hraðla er snúa að stórum atvinnu­greinum. „Þar er Startup Reykja­vík senni­lega sá þekkt­asti en hann ein­blínir á tækni og skap­andi greinar. Einnig höldum við Startup Energy Reykja­vik fyrir frum­kvöðla í orku­geir­anum og Startup Tourism fyrir frum­kvöðla í ferða­þjón­ustu. Það lá því bein­ast við að setja á fót sams konar hraðal fyrir þessar tvær höf­uða­tvinnu­greinar þjóð­ar­innar, sjáv­ar­út­veg og land­búnað. Það var krefj­andi verk­efni að velja úr þeim fjölda góðra umsókna sem við fengum en loks voru tíu teymi valin til þátt­töku. Þrjú þeirra vinna að tækni­lausnum en hin sjö eru afurð­ar­tengd og koma bæði úr land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi. Mér finnst ótrú­leg breidd í þessum hópi og það verður sann­ar­lega spenn­andi að sjá hvernig teymunum tíu tekst til.“

Öllu ferlinu hraðað

Til sjávar og sveita á að vera upp­spretta nýrra vara og þjón­ustu og varpa ljósi á tæki­færin sem fel­ast í sjálf­bærri nýt­ingu auð­linda á Íslandi að sögn Melkorku. „Helsta mark­mið hrað­als­ins er að hraða ferl­inu frá hug­mynd til fyr­ir­tækis og hjálpa við að full­vinna vöru eða þjón­ustu. Það er mjög mik­il­vægt að hlúa að frum­kvöðlum á þessu stigi en margir sprotar þurfa langan þró­un­ar­tíma sökum nýnæmis hug­mynd­anna, jafn­vel 5-10 ár. Með því að hraða og ein­falda þetta ferli, sem er oft nógu flókið fyrir, leggjum við okkar að mörkum við að styðja við fram­tíð­ar­lausnir sem sumar hafa jafn­vel mögu­leika á að breyta heim­inum.“

Djarfar hugmyndir virka vel

Það kemur vafa­laust mörgum á óvart hversu mikil nýsköpun er í land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi hér á landi segir Melkorka. „Þar má m.a. nefna Jurt Hydroponics sem er að rækta íslenskt wasabi á Aust­fjörðum, Lava cheese er að fram­leiða lág­kol­vetna osta­snakk, Havarí býr til vegan-pulsur úr byggi og Kerecis er að nýta fiskiroð til að græða sár. Hér má finna mikið af ótrú­lega spenn­andi hrá­efnum í bland við áræðna frum­kvöðla með djarfar hug­myndir.“

Þýðir ekki að missa af byltingunni

Auk þess búum við yfir svo mörgu hér á landi til að geta brugð­ist við breyttum neyslu­venjum bætir hún við. „Nýjar kyn­slóðir ýta á breyt­ingar í neyslu á mat og mat­ar­venjum sem hafa áhrif á fram­leiðslu um allan heim. Þar má nefna auknar kröfur um gegn­sæi í fram­leiðslu og flutn­ings­ferli, minni neyslu á dýra­af­urðum út af umhverf­is­sjón­ar­miðum, meiri sjálf­bærni, áherslu á vörur úr nærum­hverfi, lóð­rétta ræktun og margt fleira. Ég vil líta á þetta sem ótrú­lega spenn­andi tíma og við Íslend­ingar verðum að taka þátt og vera sam­keppn­is­hæfir á erlendum grund­velli. Það þýðir ekki að missa af þeirri tækni- og mat­væla­bylt­ingu sem á sér stað um allan heim, við höfum nefni­lega alla burði til að vera í far­ar­broddi þegar kemur að nýj­ungum og lausnum í þessum atvinnu­greinum.“

Til sjávar og sveita við­skipta­hrað­all­inn er hald­inn í sam­starfi við Íslenska Sjáv­ar­kla­s­ann og með stuðn­ingi frá IKEA á Íslandi, Mat­arauði Íslands, HB Granda og Land­bún­að­ar­kla­s­ans.

Nánari upp­lýs­ingar má finna á til­sja­varogsveita.is.

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Til sjávar og sveita

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur