Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Mikil verðmæti fólgin í samstarfinu

ArcanaBio þróar nýja teg­und af tækni­lausn sem gerir vís­inda­mönnum kleift að útbúa öflug DNA-grein­ing­ar­próf á mun fljót­legri og ein­fald­ari hátt en áður.

Mikil verðmæti fólgin í samstarfinu

ArcanaBio er nýtt fyr­ir­tæki í hug­bún­að­ar­líf­tækni sem er að þróa nýja teg­und af tækni­lausn sem býr til DNA-grein­ing­ar­próf með hjálp háhraða­tölva í ský­inu. Um er að ræða próf sem notuð eru til að gera DNA-rann­sóknir í ýmsum til­gangi, allt frá því að skoða mat­væli fyrir gæða­eft­ir­lit og teg­unda­vott­anir, yfir í flókn­ari notkun á sviði líf­tækni, t.d. fyrir bakt­eríu- og örveru­rann­sóknir. Tækni­lausnin gerir vís­inda­mönnum, líf­fræð­ingum og öðrum sér­fræð­ingum kleift að útbúa öflug DNA-grein­ing­ar­próf á mun fljót­legri og ein­fald­ari hátt en áður hefur verið hægt að gera með núver­andi lausnum á mark­aðnum og með umtals­verðum sparn­aði segir Kristján Már Gunn­ars­son, með­stofn­andi og yfir­maður við­skipta­þró­unar hjá ArcanaBio. „Við teljum okkur vera að opna á nýjar og spenn­andi leiðir fyrir vís­inda­menn og líf­fræð­inga með því að bjóða upp á aukna sjálf­virkni­væð­ingu, ein­falda flókna ferla ásamt því að auð­velda og flýta fyrir allri þeirri und­ir­bún­ings­vinnu sem fer í að þróa áreið­an­leg próf fyrir ýmsar teg­undir DNA-grein­inga.“

Miklar fram­farir
Kristján segir miklar tækni­fram­farir hafa átt sér stað á síð­ustu árum með til­komu smærri og ódýr­ari vél­bún­að­ar­lausna, bæði í rað­grein­ingum og í raun­tíma­grein­ingum sem ArcanaBio þróar lausnir fyrir. „Þá höfum við átt mjög far­sælt sam­starf við Advania í Hafn­ar­firði sem hefur gefið okkur aðgang að mjög öfl­ugri háhraða­þjón­ustu sem hjálpar okkur mikið við að þróa hug­búð­inn hraðar og gera umfangs­miklar til­raunir.“
Fjöl­breyttur bak­grunnur

„Við teljum okkur vera að opna á nýjar og spenn­andi leiðir fyrir vís­inda­menn og líf­fræð­inga með því að bjóða upp á aukna sjálf­virkni­væð­ingu.“

Með­stofn­andi Krist­jáns er Dr. Andy McShea en þeir hafa starfað saman síð­ast­liðin fjögur ár að ýmsum verk­efnum. „Andy átti upp­runa­lega hug­mynd­ina að lausn­inni en hann hefur tölu­verða reynslu að gerð DNA-tækni­lausna. Hann var m.a. lyk­il­stjórn­andi hjá banda­ríska líf­tækni­fyr­ir­tæk­inu CombiMatrix auk þess sem hann var stjórn­andi og ráð­gjafi fyrir Bosarge Family Office, sem er einka­sjóður banda­ríska millj­arða­mær­ings­ins Ed Bosarge, en þar kom hann að ýmsum líf­tækni­t­engdum verk­efnum.“

Sjálfur sinnir Kristján við­skipta­þróun eins og fyrr segir auk þess að vinna náið með tækni­teym­inu sem er að hluta til stað­sett bæði í Rúmeníu og Banda­ríkj­unum. „Meðal fyrri verka minna má m.a. nefna stofnun TeqHire árið 2013 en félagið sér­hæfir sig í að útvega fyr­ir­tækjum, bæði hér á landi og erlendis, tækni­fólk til starfa og hefur félagið vaxið tölu­vert. TeqHire fékk t.d. við­ur­kenn­ingu sem einn af vaxt­ar­sprot­unum hjá Samtökum iðn­að­ar­ins árið 2016.“
Í teymi ArcanaBio er einnig banda­rískur vís­inda­maður sem þró­aði frum­gerð af tækn­inni sem m.a. var nýtt til að þróa fyrsta prófið sem notað var til að greina hinn skað­lega Zika-vírus.

Kristján Már Gunn­ars­son, með­stofn­andi og yfir­maður við­skipta­þró­unar hjá ArcanaBio. Mynd / Marino Thorlacius

Rannsaka sýkla­lyfja­ó­næmar bakt­er­íur
ArcanaBio er einnig að vinna að gerð rann­sókn­ar­verk­efnis sem gengur út á að gera hag­kvæm­ari og ódýr­ari grein­ing­ar­próf og ferla til að greina sýkla­lyfja­ó­næmi í bakt­er­íum, bæði í mönnum og dýrum hér á landi. Þá stendur til að nota vél­nám (e. machine learn­ing) við frek­ari rann­sóknir á gögn­unum til að skoða hvaða sýkla­lyfi bakt­er­í­urnar eru lík­legar til að mynda ónæmi gegn. Samhliða þessu verk­efni stendur til að skoða leiðir til að útbúa hag­kvæmar grein­ing­ar­að­ferðir við að skima inn­fluttar mat­vörur og fylgj­ast þannig með sýkla­lyfja­ó­næmum bakt­er­íum.

Sparar tíma og eykur gagn­sæi
Helstu við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins verða rann­sókn­ar­stofur, líf­tækni­fyr­ir­tæki, lyfja­fram­leið­endur og háskólar. „Það ríkir mikil sam­keppni á þessum tug­millj­arða-doll­ara mark­aði. Við teljum okkur hins vegar vera með tölu­vert aðgrein­an­lega lausn sem býður upp á minni hættu á að röng próf séu útbúin fyrir rann­sóknir. Tölu­verður kostn­aður getur falist í þró­un­ar­ferl­inu við að útbúa próf, sem á end­anum virka ekki sem skyldi og þarf þá að byrja aftur á öllu ferl­inu sem getur í sumum til­vikum, aðal­lega stærri verk­efnum, reynst mjög kostn­að­ar­samt. Þannig er hug­bún­að­inum ætlað spara tíma, bjóða upp á aukna sjálf­virkni­væð­ingu og einnig auka gagn­sæi í rann­sókn­ar­vinn­unni.“

Tengsl við frum­greinar
Kristján segir helstu ástæðu þess að ArcanaBio hafi sóst eftir að kom­ast í við­skipta­hrað­al­inn vera þá sér­stöku áherslu sem lögð er á sjáv­ar­út­veg­inn og mat­væla­geir­ann. Einnig skipti máli þekk­ing og tengsla­net frá mentorum sem koma með verð­mæta­ráð­gjöf til fyr­ir­tækj­anna. Hann segir að DNA-grein­ingar muni í náinni framtið verða partur af öllu gæða­eft­ir­liti í mat­væla­fram­leiðslu. „Sjáv­ar­út­veg­ur­inn er mjög spenn­andi fyrir okkur enda einn stærsti iðn­aður lands­ins. Við erum að skoða DNA-grein­ingar í gæða­eft­ir­liti í mat­væla­fram­leiðslu, t.d til að greina listeríu með ódýr­ari og fljót­legri aðferðum, m.a fyrir reyk­húsin. Einnig þykir okkur spenn­andi að skoða hvernig við getum mögu­lega þróað grein­ing­ar­þjón­ustu fyrir auð­kenn­ingu á mat­vælum sem kemur t.d. í veg fyrir svindl í mat­væla­við­skiptum.“

Verð­mætin í tengsla­net­inu
Kristján segir fyrstu tvær vik­urnar hafa farið sér­stak­lega vel af stað og er spenntur fyrir fram­hald­inu. „Að fá öll þessi tengsl í gegnum hrað­al­inn er að reyn­ast okkur afar vel. Við eru nú þegar byrj­aðir að kynn­ast og eiga sam­töl við margt, mjög öfl­ugt og klárt fólk úr mat­væla­geir­anum sem hefur áhuga að vinna með okkur. Þessi snerti­flötur hrað­als­ins er alveg frá­bær enda er mjög mik­il­vægt að vinna að mark­vissum lausnum með því að tala við fólk á ólíkum sviðum með mis­mun­andi þekk­ingu og reynslu. Það er mik­il­vægt fyrir okkur að geta unnið með mis­mun­andi til­gátur, spurt spurn­inga og fengið mik­il­væg svör frá öllu þessu reynslu­mikla fólki. Ég myndi segja að úr þeim sam­tölum fælust mikil verð­mæti fyrir okkur.“

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Til sjávar og sveita. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur