Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Átta stunda vinnudagur og helgarfrí eru samofinn sögu 1. maí

Árið 1923 var fyrst gengin kröfu­ganga á 1. maí á Íslandi. Dagurinn varð lög­skip­aður frí­dagur árið 1966 á fimm­tíu ára afmæli ASÍ. Alþjóð­legur bar­áttu­dagur verka­lýðs­ins er sam­of­inn bar­áttu verka­fólks fyrir stytt­ingu vinnu­tíma og helg­ar­fríi.

Átta stunda vinnudagur og helgarfrí eru samofinn sögu 1. maí
|Forsíða Alþýðu­blaðs­ins þiðju­dag­inn 1. maí áið 1923|Kröfu­ganga í New York á Union Square árið 1912|Kröfu­ganga 1. maí í Búkarest

Alþýðu­sam­bandið hefur tekið fram upp­lýs­ingar um hátíð­ar­höld víða um land. Á dag­skrár­síðu ASÍ má finna skipu­lag dag­skráa í meira en 30 sveit­ar­fé­lögum.

Vök­u­lögin á 1. maí
Saga 1. maí um allan heim er nátengd bar­átt­unni fyrir stytt­ingu vinnu­tím­ans; átta tíma vinnu­dag og helg­ar­fríi. Þann 1. maí árið 1886 gengu 300 þús­und starfs­menn 13000 banda­rískra fyr­ir­tækja frá störfum og fylktu liði í nafni verka­lýðs, sós­í­al­isma og bættra kjara. Mánuðum saman höfðu verka­lýðs­fé­lög í Banda­ríkj­unum, einkum í Chicago borg háð erf­iða bar­áttu fyrir bættum kjörum og átta stunda vinnu­dag.

Hér á Íslandi sækir dag­ur­inn upp­runa sinn einnig í það bar­áttu­mál. Árið 1921 voru vök­u­lögin, sem tryggðu íslenskum sjó­mönnum sex tíma hvíld á sól­ar­hring, eru eitt fyrsta dæmið hér á landi um rétt­indi sem áunn­ist hafa vegna verka­lýðs­bar­áttu. „Hér skal orð­takið það: Fylgj­umst ein­huga að!“ segir í aug­lýs­ingu á Kröfu­göngu­nefndar á for­síðu Alþýðu­blaðs­ins 1. maí árið 1923.

Fjallað var um hátíð­ar­höldin í blað­inu dag­inn eftir 2. maí 1923 og þeim lýst sem vinn­andi fólki til sóma. „Kröfu­gangan í gær varð alþýð­unni til sóma og heppn­að­ist full­kom­lega eins vel og menn höfðu gert sér vonir um, þar sem þetta var í fyrsta skiptið, sem slíkt fer fram hér.“ Þá segir blaðið að hvar­vetna í fylk­ing­unni hafi mátt sjá fána jafn­að­ar­manna borna. Meðal þeirra krafa sem göngu­menn báru í Reykja­vík var krafan um átta tíma vinnu og átta tíma hvíld og slag­orðið fátækt er eng­inn glæpur og vinnan ein skapar auð­inn. Hefð er fyrir því að launa­fólk gangi undir rauðum fána og leik­inn er alþjóða­söngur verka­lýðs­ins, Interna­sjónal­inn, sem einnig kall­ast Nallinn.

Forsíða Alþýðu­blaðs­ins þiðju­dag­inn 1. maí áið 1923

1. maí er ekki frí­dagur í Banda­ríkj­unum þótt landið spili lyk­il­hlut­verk í sögu hans.

Aðal­krafa mót­mæl­anna þann 1. maí árið 1886 var átta stunda vinnu­dagur. Krafa sem hafði verið að gerj­ast meðal verka­lýðs­fé­laga um heim allan frá miðri 19. öld. Í Chicago, þar sem bar­áttan var afar hörð eftir langvar­andi verk­föll var gangan að auki upp­haf nokk­urra daga aðgerða til stuðn­ings starfs­mönnum McCormick Har­vest­ing Machine Company sem höðu þá verið í verk­falli frá því í byrjun febr­úar sama ár.

Það kann að koma spánskt fyrir sjónir að Banda­ríkin spili svo stóra rullu í sögu 1. maí. Dagurinn er ekki frí­dagur í Banda­ríkj­unum og raunar þekkja fáir í land­inu upp­runa dags­ins. Það á sér þó sögu­legar og póli­tískar skýr­ingar. Dagurinn á sér sós­íal­ískar og anar­kískar rætur. Andúð auð­valds og yfir­valda á deg­inum varð til þess að í gegnum ára­tug­ina var háð eins­konar menn­ing­ar­stríð gegn því að dag­ur­inn festi rætur. Banda­rísk yfir­völd gerðu þrjár til­raunir til að breyta deg­inum úr degi and­ófs og bar­áttu verka­lýðs í fögnuð lög og reglu, amer­ísks stolts og tryggð. Þá var komm­ún­ista­andúðin og hræðslan við sós­í­al­isma á tímum kalda stríðs­ins til þess að draga veru­lega úr þátt­töku á deg­inum. Þrátt fyrir það er tals­vert um dýrðir og fögnuð hjá stéttar og verka­lýðs­fé­lögum í Banda­ríkj­unum á þessum degi en lög­form­legur frí­dagur verka­lýðs­ins er fyrsti mánu­dagur í sept­em­ber.

Það á sér langa sögu í Banda­ríkj­unum að fagna verka­lýðs­bar­átt­unni í byrjun sept­em­ber eða allt frá því í kringum 1894. Þá þegar vildu verka­lýðs­fé­lög í Banda­ríkj­unum að dag­ur­inn yrði fyrsta maí en sept­em­ber varð fyrir val­inu meðal ann­ars vegna ríks vilja til að minna ekki um of á blóð­uga sögu maí mót­mæl­anna í Chicago og póli­tískra rétt­ar­halda sem á eftir fylgdu og vöktu heims­at­hygli og hneykslun.

Saga 1. maí er saga stórra sigra og sam­fé­lag rétt­lætis en hún er um leið blóði drifin. Hvorki helgin né átta stunda vinnu­vika var afhent almenn­ingi án bar­áttu.

Minningardagur fyrir verkafólk sem lést í Chicago mótmælunum

Árið 1889 hitt­ust full­trúar alþjóða­sam­taka komm­ún­ista á þingi evr­ópskra verka­lýðs­fé­laga í París. Þar var sam­þykkt til­laga frá Frökkum um að 1. maí skyldi verða alþjóð­legur frí­dagur verka­fólks og bar­áttu­dagur hreyf­ing­ar­innar. Valið á þessum degi styðst við rót­gróna hefð í sunn­an­verðri Evrópu þar sem menn tóku sér oft frí þennan dag. Í heiðnum sið var hann tákn­rænn fyrir enda­lok vetr­ar­ins og upp­haf sum­ars­ins. Á Norð­ur­lönd­unum var 1. maí fyrsti dagur sum­ars. Í Róm­ar­veldi var 1. maí vetr­ar­loka­há­tíð og hátíð frjó­semi og vaxtar. Frakkar lögðu til að verka­fólk not­aði dag­inn til fjölda­funda til að fylgja eftir kröfum um 8 stunda vinnu­dag og aðrar umbætur á kjörum sínum. Þingið kall­aði eftir því að hátíð­ar­höldin um allan heim yrðu haldin í minn­ingu verka­mann­anna sem lét­ust í Chicago 4. maí árið 1886 þegar lög­reglan hóf að skjóta inn í hóp mót­mæl­enda.

Mótmælin höfðu farið frið­sam­lega fram og voru raunar farin að síga á seinni part þegar sprengju var kastað í hóp lög­reglu­manna sem svör­uðu með því að skjóta á verka­menn­ina. Enn þann dag í dag er ekki vitað hver kastaði sprengj­unni.

Frétta­teikn­ing frá rétt­ar­höld­unum yfir Hay­mar­ket átta.

Hay­mar­ket átta: Rétt­ar­morðið sem vakti heims­at­hygli
Í kjöl­farið voru átta anar­kistar sóttir til saka fyrir morðin. Aðeins þrír þeirra voru á staðnum þegar blóð­baðið átti sér stað. Rétt­ar­höldin vöktu athygli og hneykslun um allan heim. Kvið­dóm­ur­inn var hand­val­inn, dóm­ar­inn lýsti marg­sinnis yfir andúð sinni á sak­born­ingum og þrátt fyrir að ákæran væri fyrir morð lýstu yfir­völd og sak­sókn­arar því ítrekað yfir að hér væri réttað yfir anar­k­isma. Rétt­ar­höldin væru rétt­ar­höld sam­fé­lags laga og reglu yfir hug­mynda­fræði stjórn­leysis. Menn­irnir átta voru allir fundir sekir og sjö þeirra voru dæmdir til dauða.

Í nóv­em­ber árið 1887 voru fjórir mann­ana hengdir en einn hafði framið sjálfs­morð dag­inn áður. Á meðan á rétt­ar­höld­unum stóð höfðu 100 þús­und skrifað undir áskorun til yfir­valda um að sýna mönnum vægð.

Rétt­ar­höldin gengu svo nærri sið­ferð­is­kennd fólks um allan heim að rit­höf­undar og ljóð­skáld heims­horna á milli fjöll­uðu um rétt­ar­höldin. Þar á meðal Oscar Wilde og George Bernard Shaw. Árið 1893 voru þrír mann­anna náð­aðir af John Peter Altgeld, fylk­is­stjóra Illinois.

Kröfu­ganga í New York á Union Square árið 1912

Mótaði sögu dagsins

Það er ekki svo ein­falt að 1. maí sé hald­inn ein­göngu vegna mót­mæl­anna í Chicago heldur mót­aði áfallið sögu dags­ins og alþjóð­lega bar­áttu verka­lýðs­ins. Hörmu­legar aðstæður verka­fólks í Evrópu urðu til þess að mik­ill fjöldi þeirra leit­aði til Banda­ríkj­anna í von um betra líf. Í Chicago var stórt sam­fé­lag þýskra, írskra og skand­in­av­ískra inn­flytj­enda sem fluttu með sér evr­ópskar hefðir og 1. maí.

Í sögu ASÍ kemur fram að þingið í París árið 1889 á 100 ára afmæli frönsku bylt­ing­ar­innar hafi verið var ákveðið að gera kröf­una um átta stunda vinnu­dag að helstu kröfu verka­fólks á alþjóð­legum bar­áttu­degi, 1. maí. „Þegar árið eftir voru haldnar kröfu­göngur 1. maí víða í Evrópu og Norður-Ameríku til þess að leggja áherslu á kröf­una um átta stunda vinnu­dag. Árið 1889 var einnig ákveðið á þingi Annars alþjóða­sam­bands­ins að rauði fán­inn skyldi verða tákn fyrir bar­áttu verka­manna og sam­ein­ing­ar­merki þeirra, en rauði fán­inn hafði einmitt verið tákn bylt­ing­ar­sinna í febr­ú­ar­bylt­ing­unni í Frakk­landi árið 1848 og síðar tákn Par­ís­ar­komm­ún­unnar 1871. Á fyrri hluta þriðja ára­tug­ar­ins var farið að nota rauða fán­ann á fundum Alþýðu­sam­bands­ins og þá varð einnig til fáni og merki sam­bands­ins, rauður fáni með þremur örvum sem voru tákn frelsis, jafn­réttis og bræðra­lags.“

Á Íslandi, eins og áður segir, var dag­ur­inn hald­inn hátíð­legur árið 1923. „Hátíða­höldin í Reykja­vík voru skipu­lögð af nefnd á vegum full­trúa­ráðs verka­lýðs­fé­lag­anna. For­mæl­endur þess munu m.a. hafa verið Ólafur Frið­riks­son og Hendrik Ottósson og voru þeir félagar skip­aðir í und­ir­bún­ings­nefnd auk Þuríðar Frið­riks­dóttur og fleiri félaga. Við ramman reip var að draga því að 1. maí 1923 var virkur dagur og fólk þurfti að taka sér frí úr vinnu ef það vildi taka þátt. Hendrik skrif­aði brýn­ing­ar­grein í Alþýðu­blaðið og erind­rekar fóru um til þess að safna saman fólki; tókst það „furð­an­lega … þrátt fyrir hót­anir og ill­yrði sumra verk­stjóra. … Nokkrir danskir og sænskir smiðir, sem unnu í Hamri neit­uðu afdrátt­ar­laust að vinna 1. maí. Það væri ekki siður í löndum þeirra“. Einn „erind­rek­anna“ sem stóð í að fá fólk í göng­una var móðir Hendriks, Carolíne Siemsen, en hún fór um og skor­aði á með­limi verka­kvenna­fé­lags­ins að hætta að vinna á hádegi og taka þátt í kröfu­göng­unni.“ Þess má geta að árið 1923 var 1. maí einnig fagnað í fyrsta sinn í Indlandi.

Kröfu­ganga 1. maí í Búkarest, Rúmeníu.

Soví­et­ríkin tóku upp tákn verka­lýðs­ins
Ein­hverjir hugsa kannski um Sov­ét­ríkin sál­ugu og alræð­is­vald komm­ún­ista­stjórna þegar þeir sjá fán­ann og heyra söng­inn, en upp­runa­leg merk­ing þess­ara tákna er fyrst og fremst krafa um breyt­ingar og rétt­lát­ara þjóð­fé­lag. Rauði lit­ur­inn táknar upp­reisn gegn órétt­læti. Hann þýðir að nú sé nóg komið og er um leið tákn nýrra tíma. Barátta verka- og launa­fólks og táknin sem hreyf­ingin notar á sér langa sögu og í gegnum alla þá sögu hafa yfir­völd, stjórn­mála­hreyf­ingar og fjár­magn gert til­raunir til að tala bar­átt­una niður eða baða sig merkjum hennar.

Í um hund­rað löndum er 1. maí hátíð­is­dagur verka­lýðs­ins og opin­ber frí­dagur. Þá er honum víð­ast hvar fagnað af stétt­ar­fé­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ