Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Umboðsmaður Alþingis ítrekað óskað svara frá utanríkisráðuneytinu vegna Hauks Hilmarssonar

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ítrekað hunsað fyr­ir­mæli umboðs­manns Alþingis um svör vegna kvört­unar for­eldrar Hauks Hilm­ars­sonar sem full­yrt er að hafi fallið í Sýrlandi í febr­úar árið 2018.

Umboðsmaður Alþingis ítrekað óskað svara frá utanríkisráðuneytinu vegna Hauks Hilmarssonar
| Mynd: Leikmenn án landamæra/Simon Downey|

Eva Hauks­dóttir, móðir Hauks, birti bréf umboðs­manns á Facebook í gær og gagn­rýnir að stjórn­sýslan telji sig ekki bundna af fyr­ir­mælum umboðs­manns. „Ísland er landið þar sem mót­mæl­endur eiga að hlýða lögg­unni þegar hún bannar þeim að nýta stjórn­ar­skrár­var­inn rétt sinn til að láta skoð­anir sínar í ljós. En líka landið þar sem stjórn­sýslan þarf ekki að hlýða Umboðs­manni Alþingis,“ skrifar Eva.

Þann 8. júní næst­kom­andi stendu hóp­ur­inn Leikmenn án landamæra fyrir mál­þingi um hug­sjónir Hauks Hilm­ars­sonar. Mál­þingið fer fram í ráð­stefnu­sal Íslenskrar erfða­grein­ingar.

Leituðu til umboðsmanns til að knýja fram svör

For­eldrar Hauks leit­uðu til umboðs­manns Alþingis í nóv­em­ber á síð­asta ári til að knýja fram svör frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu um aðgerðir stjórn­valda vegna leit­ar­innar að Hauki og svara um afdrif hans. Fátt hefur verið um svör um beinar aðgerðir ráðu­neyt­is­ins til aðstand­enda vegna máls­ins. „Úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála gerði utan­rík­is­ráðu­neyt­inu að afhenda okkur slatta af gögnum til við­bótar við það sem þau voru búin að láta okkur fá. Það voru ekki gögn heldur bara tíma­lína um það hverja hefði verið haft sam­band við en ekk­ert hægt að sjá nein sam­skipti. Okkur fannst úrskurður ÚNU ekki ganga nærri nógu langt og skorta rök fyrir því hvers­vegna við mættum ekki sjá meira.“ segir Eva í sam­tali við Mannlíf.

Í bréfi umboðs­manns til utan­rík­is­ráðu­neyt­ins­ins sem dag­sett er 26. apríl kemur fram að umboðs­maður hafi ítrekað óska svara en ekki fengið. „Ég leyfi mér að ítreka þau til­mæli í bréfi, dags 31. des­em­ber 2018 og 26. mars sl., að utan­rík­is­ráð­herra láti umboðs­mann Alþingis í té upp­lýs­ingar og skýr­ingar í til­efni af kvörtun sem Eva Hauks­dóttir og Hilmar Bjarna­sona hafa borið fram með hlið­sjón af því sem um er beðið í bréfi umboðs­manns,“ segir í bréf­inu.

Tyrk­neski fjöl­miðlar full­yrtu snemma í mars árið 2018 að Haukur hafi fallið í loft­árás Tyrkja á Badina-Dimilya í febr­úar sama ár. Aðstand­endur Hauks hafa síðan leitað svara og ekki hefur tek­ist að hafa upp á lík­ams­leifum Hauks.

„Rýr í roðinu“

Eva hefur gagn­rýnt íslensk yfir­völd fyrir fram­taks­leysi og skort á svörum vegna hvarfs Hauks. Fyrir rúmu ári sagði hún á Facebook að gögn sem ráðu­neytið hafi afhent henni séu heldur „rýr í roð­inu“. „Ég sé því fram á margra mán­aða ferli við að knýja fram rétt minn, fyrst í gegnum Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál og ef það dugar ekki þá í gegnum Umboðs­mann Alþingis. Ég hef nóg annað að gera þessa dag­ana svo allar hug­myndir um skil­virk­ari leiðir eru vel þegnar,“ skrif­aði Eva fyrir ári.

Málið er nú á borði umboðs­manns en lítið virð­ist bóla á svörum.

Efast um hina opinberu sögu

Síð­ast­liðin mars fjall­aði Stundin ítar­lega um leit­ina að Hauk og sagði frá því að nánir vinir hans efist um hina opin­beru frá­sögn af and­láti Hauks. Blaðið ræddi við Snorra Pál Jónsson og Stein­unni Gunn­laugs­dóttir sem ásamt Fatimu, unn­ustu Hauks, hafa lagst í mikla rann­sókn­ar­vinnu og leitað svara. Frá­sagnir þeirra sem þau hafa rætt við af vett­vangi eru á margan hátt á skjön við fyrr­greinda yfir­lýs­ingu YPG. „Við höfum fengið þær upp­lýs­ingar eftir ýmsum leiðum að Haukur hafi horfið, ekki skilað sér til baka úr varn­ar­að­gerð í kringum aðra viku febr­úar. Félagar hans hafi leitað hans í um það bil tvær vikur, allt þar til YPG lýsti því yfir að hann væri fall­inn. Sú yfir­lýs­ing bygg­ist á því einu að hægt var að stað­festa and­lát ann­arra her­manna á þessu svæði á svip­uðum tíma,“ segir Snorri Páll í við­tali við Stundina þar sem hann rekur með ítar­legum hætti hverju rann­sókn þeirra hefur skilað og hverju ekki.

Hefur ráðherra „gert allt sem í hans valdi stendur til að finna Hauk“?

Margrét Tryggva­dóttir, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, beindi fyr­ir­spurn að Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, utan­rík­is­ráð­herra, á þingi í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Þar sagði hún fjöl­skyldu Hauks ekki hafa fengið skýr svör um hvað orðið hafi um lík­ams­leifar hans. „Hafa íslensk stjórn­völd spurt tyrk­nesk stjórn­völd beint hvað hafi orðið um lík­ams­leifar þeirra sem féllu í árás­unum 24. febr­úar sl.? Þegar ég segi beint á ég við ekki við hvort rætt hafi verið við sendi­ráð Tyrkja í Ósló eða aðrar diplómat­ískar leiðir not­aðar heldur hvort utan­rík­is­ráð­herra sjálfur hafi beitt sér sér­stak­lega og kraf­ist svara frá tyrk­neskum stjórn­völdum um afdrif Hauks Hilm­ars­sonar. Hefur ráð­herr­ann kraf­ist þess að farið verði inn á svæði þar sem átökin voru og þeirra sem þar féllu leitað?“ spurði Margrét ráð­herra. Guð­laugur Þór sagði þá að allra leiða hafi verið leitað vegna máls­ins. „Sam­starfs­ríki okkar vör­uðu við því í upp­hafi að staðan væri ein­stak­lega flókin og erfitt að afla upp­lýs­inga og var reyndin sú að þau hafa tak­mark­aða aðstoð getað veitt. Íslensk stjórn­völd hafa ítrekað óskað eftir upp­lýs­ingum um málið frá tyrk­neskum stjórn­völdum og fengið stað­fest eftir mörgum leiðum að þar­lend stjórn­völd telji Hauk af. Fjöl­skylda hans hefur verið upp­lýst um það eins og öll önnur skref sem tekin hafa verið í leit­inni að Hauki. Við teljum borg­ara­þjón­ustu­þætti máls­ins lokið í bili en lög­reglan rann­sakar málið sem manns­hvarf. Utan­rík­is­þjón­ustan mun áfram eiga reglu­leg sam­skipti við full­trúa tyrk­neskra yfir­valda í tengslum við þetta mál. Íslensk stjórn­völd munu einnig tala áfram fyrir auk­inni virð­ingu fyrir mann­rétt­indum og alþjóð­legum mann­rétt­indum í Tyrk­landi og ann­ars staðar í tví­hliða sam­skiptum og á alþjóða­vett­vangi eftir því sem tæki­færi gefst, til að mynda á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna, í Evr­ópu­ráð­inu og hjá ÖSE.“

Margrét ítrek­aði þá fyr­ir­spurn­ina og spurði ráð­herra hvort hann telji sig „per­sónu­lega hafi gert allt sem í hans valdi stendur til að finna Hauk eða lík hans ef hann er sann­ar­lega lát­inn og tryggja að það verði flutt heim?“

Því svar­aði utan­rík­is­ráð­herra ját­andi. „Ég hef gert allt sem í mínu valdi stendur til að hjálpa til í þessu máli. Ég hef m.a. rætt þetta við kollega mína í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við. Það er mér til efs að stjórn­völd hafi gengið jafn langt í sam­bæri­legu máli og við Íslend­ingar höfum gert. Ef það er eitt­hvað sem við getum gert til að hjálpa frekar til við þetta erf­iða mál munum við gera það. En við höfum leitað allra þeirra leiða sem við höfum talið geta hjálpað í þessu erf­iða máli. Ef eitt­hvað kemur upp þannig að við teljum að við getum gert meira munum við auð­vitað gera það.“

Guðlaugur Þór fundaði með efnahgsmálaráðherra Tyrklands

Utan­rík­is­ráð­herra hitti Nihat Zeybekci efna­hags­mála­ráð­herra Tyrk­lands í lok júlí árið 2018. Þá átti Guð­laugur Þór fund með honum á EFTA-fundi í Skaga­firði. „Hann full­viss­aði okkur um það að hann myndi skoða þetta og koma þá með upp­lýs­ingar til okkar. Ég vil trúa að hann geri það og ég vona svo sann­ar­lega að við getum náð ein­hverjum árangri í þessu erf­iða máli,“ sagði Guð­laugur við RÚV eftir fund­inn.

Aðstand­endur Hauks hafa opnað vef­inn Leikmenn án landamæra sem til­eink­aður er Hauki, leit­inni af svörum og bar­áttu Hauks. „Sonur minn Bylt­ingin helg­aði líf sitt and­ófi gegn rík­is­valdi, auð­valdi og her­valdi. Hann stóð fyrir og tók þátt í beinum aðgerðum gegn umhverf­is­spjöllum, kap­ít­al­isma og fas­isma, bæði á Íslandi og erlendis. Hann var virkur liðs­maður Saving Iceland í bar­átt­unni gegn Kára­hnúka­virkjun, sjálf­boða­liði í Palest­ínu, með­limur í Heims­sam­bandi verka­fólks, virkur í hús­töku­hreyf­ingum á Íslandi og í Grikk­landi. Hann var frum­kvöð­ull í bar­áttu fyrir rétt­indum flótta­fólks á Íslandi og vann að björgun flótta­manna í Grikk­landi,“ segir í skrifum Evu um Hauk á vefnum.

Aðalmynd: Leikmenn án landamæra/Simon Downey

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina