Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Ég var bara fangi á Íslandi“

Tómas Þór Þórð­ar­son hefur verið ráð­inn til að stýra þætti um enska bolt­ann hjá Sjón­varpi Símans. Hann seg­ist vera ánægður með nýja starfið þótt hann sé í eðli sínu lítið gef­inn fyrir breyt­ingar. Fáir hafa hins vegar gert eins miklar breyt­ingar á lífi sínu og Tómas sem hefur á fimm árum losnað við 120 kíló og líður miklu betur.

„Ég var bara fangi á Íslandi“
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Lygar og felu­leikir eru algjör­lega órjúf­an­legur hluti af fíkni­hegð­un­inni og það er alveg ótrú­legt hvað það er erfitt að fá hjálp við mat­ar­fíkn. Ég vona samt að það sé komið eitt­hvað lengra núna en það var á þeim árum,“ segir Tómas Þór í opin­skáu við­tali við Mannlíf sem kemur út á morgun. Þar ræðir hann meðal ann­ars um þá miklu breyt­ingu sem hefur átt sér stað í hans lífi eftir að hann grennt­ist.

„Á rosa­lega skömmum tíma var ég far­inn að geta gert alls konar hluti sem ég hafði ekki getað áður,“ útskýrir Tómas.

„Ég hafði til dæmis ekki getað farið í vinnu­ferðir til útlanda síðan 2008 þegar ég fór á EM í Frakk­landi 2016. Ég hafði bara einu sinni á þeim tíma farið í flug, í afmæl­is­ferð með pabba til Manchester 2014. Ég var bara fangi á Íslandi. Síðan ég fór í aðgerð­ina hef ég farið í enda­lausar flug­ferðir, bæði vegna vinn­unar og til að skemmta mér með kærust­unni. Og ég get gengið. Ég veit ekki hvort nokkur maður áttar sig á því hvernig það er að geta ekki labbað nema 60 metra í einu og geta ekki staðið í lapp­irnar meira en fjórar mín­útur í einu án þess að þurfa að setj­ast, þannig að mér finnst næstum því eins stór­kost­legt að geta gengið um allt eins og að sjá alla þessa stór­kost­legu staði.

„Ég sturt­aði frá mér þrí­tugs­aldr­inum með mat.“

Svo er ég nátt­úr­lega kom­inn með minn eigin sjón­varps­þátt sem ég hélt að myndi aldrei ger­ast, það var verið að kaupa mig í aðra vinnu og ég er kom­inn í sam­búð. Þannig að hlut­irnir hafa gengið alveg rosa­lega hratt fyrir sig eftir að ég loks­ins komst í stand til að gera venju­lega hluti í líf­inu, ná frama í vinn­unni og verða ást­fang­inn til dæmis. Mér finnst ég engan tíma mega missa þar sem ég sturt­aði frá mér þrí­tugs­aldr­inum með mat, þannig að mark­miðið er að reyna að gera eitt­hvað af viti á þessum bless­aða fer­tugs­aldri.“

Ekki missa af Mannlífi á morgun.

Uppfært:
Lestu við­talið við Tómas í heild sinni hérna: Var með eina og hálfa mann­eskju utan á sér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ