Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þarf mikið til að koma skiptastjóra frá

Sveinn Andri Sveins­son ekk­ert á förum segir dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur.

Þarf mikið til að koma skiptastjóra frá
Sveinn Andri Sveins­son lög­maður. Mynd/ Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur segir að Sveinn Andri Sveins­son komi til með að verða áfram skipta­stjóri flug­fé­lags­ins WOW air.

Greint var frá því í nýjasta tölu­blaði Mannlífs að Arion banki hafi óskað eftir því að Sveinn Andri Sveins­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og nýskip­aður skipta­stjóri þrota­bús WOW air, yrði settur af vegna van­hæfis, en bank­inn er stór kröfu­hafi í búið. Þetta stað­festi Haraldur Guðni Eiðsson, for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs Arion banka í sam­tali við Mannlíf. Hann stað­festi einnig að þetta tengd­ist ágrein­ingi bank­ans við bústjóra þrota­bús tölvu­fyr­ir­tæk­is­ins Data Cell þar sem Arion er stærsti kröfu­haf­inn. Sveinn Andri er skipta­stjóri í því búi.

Símon Sig­valda­son, dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, sem skip­aði Svein Andra í stöðu skipta­stjóra þrota­bús WOW air segir hins vegar að Sveinn Andri muni verða áfram skipta­stjóri yfir búinu. Þetta kemur fram í dag í skrif­legu svari Símonar við fyr­ir­spurn frétta­stofu RÚV um málið. Símon segir að krafa Arion banka hafi verið tekin fyrir á aðfinnslu­fundi í gær þar sem „reynt var að miðla málum.“ Það hafi ekki gengið eftir og hafi fund­inum þannig að Sveinn Andri verði áfram skipta­stjóri. Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Vísis segir svo Símon að krefj­ist bank­inn form­lega úrskurðar, sem ekki hafi komi til hingað til, verði erindið að sér­stöku máli. Málið fari síðan í venju­legan far­veg sem endi með úrskurði.

Eins og greint var frá í Mannlíf í morgun var talið að það gæti orðið snúið fyrir Arion Banka að fá Svein Andri settan af sem skipta­stjóri þrota­bús WOW air. Arnar Þór Stef­áns­son, lög­maður hjá LEX lög­manns­stofu, sagði í sam­tali við Mannlíf að mikið þyrfti til að skipta­stjóri þrota­bús væri settur af eftir að hafa verið skip­aður.

„Það þarf mikið til. Það eru ákvæði í lögum um gjald­þrota­skipti sem segja að við­kom­andi þurfi að brjóta af sér í starfi eða vera með stór­kost­lega slæ­lega fram­göngu. Und­an­fari er yfir­leitt á þá leið að sett hafi verið fram aðfinnsla við hér­aðs­dóm á störfum við­kom­andi og að Hér­aðs­dómur hafi fall­ist á rétt­mæti aðfinnsl­anna. Ef Hér­aðs­dómur telur að þessar aðfinnslur séu nægi­lega miklar getur dóm­ari sett við­kom­andi af. Þannig að það þarf mikið til, ein­hvers konar klúður í starfi,“ sagði Arnar.

Haraldur Guðni Eiðsson, for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs Arion banka hefur sem minnst viljað tjá sig um málið.

„Málið er bara í far­vegi og við ætlum ekki að reka það í fjöl­miðlum,“ sagði Haraldur við Mannlíf, en hann hefur nú bætt við að bank­inn muni fara fram á úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um stöðu Sveins Andra.

Enn sem komið er hefur Sveinn Andri ekki tjáð sig opin­ber­lega um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð