Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Afar misvísandi fréttir af stöðu WOW

Enn er unnið að því að halda lífi í WOW air sem barist hefur í bökkum svo mán­uðum skiptir. Banda­ríska félagið Indigo er sagt komið aftur í spilið en fréttir af björg­un­ar­leið­angrinum hafa verið afar mis­vísandi.

Afar misvísandi fréttir af stöðu WOW

Þeir kröfu­hafar sem tóku þátt í skulda­bréfa­út­gáfu WOW í haust tóku yfir félagið í gær eftir kröf­unum var breytt í hlutafé. Þar með missti Skúli yfir­ráð sín yfir félag­inu en eins og turisti.is bendir á fer tvennum sögum af því hvernig það kom til. Annars vegar er haft eftir Skúla að kröfu­haf­arnir hafi sam­þykkt breyt­ing­una en hins vegar hafi mbl.is sagt að kröfu­haf­arnir hafi ákveðið að taka félagið yfir.

Í við­tali við RÚV í gær var rætt við Sigþór Kristinn Skúlason, for­stjóra Airport Associates sem er einn af kröfu­höf­unum 40.  Sagði hann að fyr­ir­tækið væri komið í rekstr­ar­hæft ástand, að fram­tíð­ar­horfur þess væru mjög bjartar og var ekki annað að heyra en að skuld­irnar hafi verið þurrk­aðar út.

Það er þó ekki alveg svo. Ekkert hefur komið fram um að Isavia sé til­búið til að slá af 2 millj­arða króna skuld WOW við félagið og í raun ólík­legt að svo fari, í ljósi þeirra for­dæma sem það myndi setja. Þá segir Guð­mundur Ingvi Sig­urðs­son, lög­maður sem fer fyrir hópi kröfu­hafa, í við­tali við turisti.is að ekki hafi allir sam­þykkt að breyta skuldum í hlutafé. Segir lög­mað­ur­inn að í hópnum séu aðilar sem séu því mót­fallnir. Þeirra á meðal eru eig­endur þeirra flug­véla sem WOW leigir.

Mark­að­ur­inn, við­skipta­rit Frétta­blaðs­ins, svipti í morgun hul­unni af áætlun um end­ur­skipu­lagn­ingu á rekstri WOW sem for­svars­menn og ráð­gjafar WOW hafa verið að kynna fjár­festum. Ekki er hægt að segja annað en að sú áætlun geri ráð fyrir ævin­týra­legum við­snún­ingi. Svipaðan tón mátti raunar greina í áætl­unum sem voru kynntar fjár­festum í tengslum við skulda­bréfa­út­boðið í haust en eins og Mannlíf greindi fyrst frá íhuga kröfu­hafar að leita réttar síns þar sem þeir telja að áætl­an­irnar hafi gefið ranga mynd af stöðu fyr­ir­tæk­is­ins.

Samkvæmt núgild­andi áætl­unum er gert ráð fyrir algjörum við­snún­ingi í rekstri WOW á næsta ári. Að lausa­fjár­staðan verði orðin jákvæð um 9 millj­ónir doll­ara sam­an­borið við nei­kvæða stöðu upp á 11 millj­ónir doll­ara eins og nú er. Raunar er búist við að staðan verði orðin nei­kvæð um 45 millj­ónir króna um mitt þetta ár, segir í Mark­að­inum.

Þá er gert ráð fyrir 8,7 millj­arða króna rekstr­ar­hagn­aði í árs­lok 2021 og að flug­vélar í flota félags­ins verði orðnar 16 tals­ins. Vélarnar voru 11 í lok árs í fyrra.

Þá greindi Mark­að­ur­inn frá því að Indigo Partners væri komið aftur að samn­inga­borð­inu eftir að hafa slitið við­ræðum um kaup á WOW á dög­unum. Láti Indigo slag standa, og WOW stendur af sér storm­inn, er stefnan að reka „harða lággjalda­stefnu“. Það væri vissu­lega hval­reki fyrir neyt­endur en myndi um leið koma illa við Icelandair. Ekki bara hafa hluta­bréf í Icelandair farið ört lækk­andi sam­hliða miklu rekstr­ar­tapi heldur hafa vand­ræði Boeing MAX 737 vél­anna sett fyr­ir­tækið í afar erf­iða stöðu. Þær vélar hafa verið kyrr­settar og alls óvíst hvenær þær hefja sig aftur til flugs. Nú þegar hefur Icelandair hætt við flug til Cleveland og Halifax vegna þessa.

Nýjasta atvikið í Orlando í gær er ekki til þess að auka traust á öryggi vél­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ