Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimsþekkt dragdrottning til landsins

Rainbow Reykja­vík, vetr­ar­há­tíð hinsegin fólks, fer nú fram í átt­unda sinn. Að sögn skipu­leggj­enda kennir ýmissa grasa í ár en kynnir hátíð­ar­inn er eng­inn annar en hin heims­þekkta dragdrottn­ing Detox.

Heimsþekkt dragdrottning til landsins
||
Hannes Páll Pálsson.

„Auðvitað ljær þetta hátíð­inni alþjóð­legt yfir­bragð að fá svona heims­þekkta stjörnu til liðs við okkur. Við höfum aldrei gert þetta áður, þ.e. að fá svona stórt nafn eins og Detox til að vera gest­gjafi út alla hátíð­ina og það verður hrika­lega spenn­andi að sjá hvernig það kemur út,“ segir Hannes Páll Pálsson hjá ferða­þjón­ust­unni og við­burða­fyr­ir­tæk­inu Pink Iceland, sem hefur veg og vanda af því að skipu­leggja hátíð­ina.

Fyrir þá sem ekki þekkja til er Detox dragdrottn­ing sem skaut fyrst upp á stjörnu­him­in­inn í banda­ríska raun­veru­leika­þætt­inum RuPaul‘s Drag Race og hefur síðan þá verið eft­ir­sóttur skemmti­kraftur um allan heim. Spurður hvernig það hafi komið til að jafn stór stjarna skyldi taka að sér hlut­verk kynnis á hátíð­inni svarar Hannes því til að Detox hafi ein­fald­lega óskað eftir því sjálf.

„Já, hún bara bað um það. Hún hefur komið hingað nokkrum sinnum áður og dýrkar Ísland, bæði land og þjóð og er búin að vera góður vinur okkar hjá Pink Iceland frá því að við héldum utan um eina heim­sókn­ina hennar. Þannig að þegar hún frétti að Rainbow Reykja­vík stæði fyrir dyrum sótt­ist hún eftir því að fá að vera kynnir og við slógum til.“

Litskrúðug og skemmtileg dagskrá

Hannes segir að Rainbow Reykja­vík sé fyrir löngu búin að festa sig í sessi sem stærsti hinsegin við­burð­ur­inn yfir vet­ur­inn. Lögð sé áhersla á að skapa fjöl­breytta og skemmti­lega dag­skrá fyrir fólk á öllum aldri, en á meðal þess sem verður í boði í ár má nefna útsýn­is­ferðir, hinsegin sögu­göngu og bingó með Sigríði Klin­gen­berg. Sumir við­burð­anna séu svo­lítið stíl­aðir inn á þá erlendu gesti sem sæki hátíð­ina heim, eins og ferð um Gullna hring­inn og í Bláa lónið en í boði verði líka fjöl­margir við­burðir sem heima­menn ættu ekki síður að geta haft gaman af. Hápunkt­ur­inn sé svo án efa ball sem verður slegið upp í Iðnó annað kvöld.

Vetr­ar­há­tíðin Rainbow Reykja­vík fer nú fram í átt­unda sin. Norð­ur­ljósa­ferðir, sund­laugap­artý úti á landi og glæsi­legt ball annað kvöld eru á meðal við­burða sem eru í boði.

„Ballið er haldið undir for­merkjum „masquerade“,“ segir hann. „Það þýðir að gestir eru hvattir til mæta með grímur og í sínu skemmti­leg­asta pússi, prúð­búið, ögrandi, í raun bara eins og fólki líður best. Við leggjum áherslu á öruggt umhverfi þannig að það getur verið eins og það vill. Þarna munu lista­menn troða upp, plötu­snúðar þeyta skífum og fólki verður kennt að vogue-a í anda New York sen­unnar á 9. ára­tugnum.“

Íslandsdvölin hefur breytt lífi fólks

Að sögn Hannesar er þetta í átt­unda sinn sem hátíðin fer fram. Spurður hvor það sé eitt­hvað sem standi að öllu jöfnu upp úr að mati hinna erlendu gesta segir hann að öðru ólöst­uðu sé það tví­mæla­laust hin íslenska nátt­úra.

Sumir tala um að heim­sóknin hingað hafi hrein­lega breytt lífi sínu.

„Hún stendur alltaf vel undir vænt­ingum í allri sinni feg­urð og virð­ist koma fólki sífellt á óvart. Það er mjög hissa á því hvað nándin við nátt­úr­una er mikil, því það er ekki vant því heima fyrir og virð­ist upp­lifa þessa nánd bæði við nátt­úru og þjóð og eins frelsi til að vera það sjálft. Fólk hefur einmitt sér­stakt orð á því hvað við Íslend­ingar tökum vel á móti erlendum gestum. Sumir tala um að heim­sóknin hingað hafi hrein­lega breytt lífi sínu. Og það eru dæmi þess að fólk komi hingað aftur og aftur, það er svo yfir sig hrifið.“

En hverju skyldi skipu­leggj­and­inn sjálfur vera spennt­astur fyrir? „Ballinu,“ svarar hann og brosir.

„Það er sá við­burður á hátíð­inni sem ég hlakka alltaf mest til. Sem helg­ast ein­fald­lega af því að við vinnum svo mikið meðan á henni stendur en um leið og ballið byrjar getum við stimplað okkur út. Og farið að djamma með hinum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ