Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Með ólíkindum að svona geti komið fyrir“

Mistök við fram­kvæmd Reykja­vík­ur­mara­þons í fyrra, þar sem allir tímar í mara­þoni og hálf­mara­þoni, voru úrskurð­aðir ógildir, höfðu ýmis óþæg­indi í för með sér fyrir hlaupara. Þeir eru ósáttir við að skipu­leggj­andi hlaups­ins ætli ekki að bæta hlaup­urum upp fyrir mis­tökin.

„Með ólíkindum að svona geti komið fyrir“
Mynd/Birt­ingur|
Einar Eiríkur Hjálm­ars­son var einn þeirra hlaupara sem ekki fengu tíma gilda.

Skráning í Reykja­vík­ur­mara­þon Íslands­banka 2019 sem fram fer í 36. sinn þann 24. ágúst hófst í síð­asta mán­uði. Hlaupið hefur um ára­bil notið gíf­ur­legra vin­sælda bæði meðal lengra kom­inna lang­hlaupara sem og skemmtiskokk­ara. Á síð­asta ári setti klúður í braut­ar­mæl­ingu Reykja­vík­ur­mara­þons­ins hins vegar stórt strik í reikn­ing­inn, sem rekja má til þess að færa þurfti grindur við snún­ings­punkt á Sæbraut stuttu fyrir hlaup vegna umferðar og gleymd­ist að færa þær til baka.

Afleið­ingin var sú að hlaupa­leiðin var 213 metrum of stutt og olli því að tímar hlaupara sem kepptu í heilu og hálfu mara­þoni urðu ógildir. Í kjöl­farið varð Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur sem sér um mara­þonið að senda út afsök­un­ar­beiðni.

Einar Eiríkur Hjálm­ars­son var einn þeirra hlaupara sem ekki fengu tíma gilda en hann var að hlaupa í fyrsta sinn heilt mara­þon. Í sam­tali við Mannlíf segir hann að þetta sé baga­legt og geti haft áhrif þegar taka á þátt í hlaupum erlendis.

Í svona stóru hlaupi sem er jafn­mikið „hæpað“ upp, að það skuli ekki vera einn und­an­fari sem þekkir braut­ina, fari yfir þetta 20 mín­útum áður en skotið er af stað og gangi úr skugga um að allt sér rétt.

„Ef þú ætlar í hlaup erlendis, eins og Boston- eða Berlín­ar­m­ara­þonið, þá þarftu að skila tíma í þínum ald­urs­flokki til að kom­ast fram fyrir almenn­ing. Ef þú ert ekki með tíma ferðu aft­ast í röð­ina og þarft að hlaupa í gegnum 50 þús­und manna þvögu. Þannig að þetta getur komið sér mjög illa og ekki síður fyrir Reykja­vík­ur­borg og orð­spor keppn­innar,“ segir Einar og bætir við að það sé með ólík­indum að svona geti komið fyrir. „Í svona stóru hlaupi sem er jafn­mikið „hæpað“ upp, að það skuli ekki vera einn und­an­fari sem þekkir braut­ina, fari yfir þetta 20 mín­útum áður en skotið er af stað og gangi úr skugga um að allt sér rétt. Sér­stak­lega á þessum krítísku punktum eins og á við­snún­ing­unum. Það ætti ekki að vera mikið mál að fara þetta á mót­or­hjóli. Þetta er stærsta mara­þon á Íslandi og mikið kynnt erlendis.“

 Málið vand­ræða­legt

Þá segir Einar málið vera fyrst og fremst vand­ræða­legt. „Þetta verður líka svo kjána­legt, eins og með þau sem unnu af Íslend­ing­unum, þau eru Íslands­meist­arar í hlaupi sem er ekki gilt,“ segir hann. Arn­ar Pét­urs­son sem kom fyrst­ur Íslend­inga í mark í heilu mara­þoni á tím­an­um 2:26:43 klukku­stund­um, var á besta tíma sem Íslend­ing­ur hef­ur náð í mara­þoni á Íslandi og Anna Berglind Pálma­dóttir var fyrst íslenskra kvenna. Þau eru því Íslands­meist­arar í mara­þoni.

Einar segir jafn­framt að móts­hald­arar hafi ekki boðið upp á neinar sára­bætur. „Það hvarflar ekki að þeim. Nú er ein­hver meist­ara­mán­uður þar sem þú getur fengið ein­hvern afslátt en það hefði ekki verið neitt mál að bjóða þeim sem fengu ógilda tíma í fyrra að hlaupa ókeypis í ár.“

Mótshaldarar á tánum

Jóna Hildur Bjarna­dóttir, verk­efna­stjóri við­burða-, lýð­heilsu- og jafn­rétt­is­mála Íþrótta­banda­lags Reykja­víkur, segir að allt sé nú gert til að koma í veg fyrir að mis­tökin end­ur­taki sig. „Við erum að vinna að drögum um að leggja nýja braut, svo erum við að skerpa á öllu ferl­inu varð­andi starfs­menn­ina okkar á braut­inni. Einnig erum við að upp­færa öryggis- og korta­hand­bók. Við erum á tánum með það í huga að bæta öll ferli hjá okkur,“ útskýrir hún.

Því miður voru svo margir þættir sem komu þarna inn í sem gerðu það að verkum að við náðum ekki að leið­rétta mis­tökin í tæka tíð.

Aðspurð um hvort brautin sé ekki yfir­farin rétt áður en hlaupið er ræst segir Jóna Hildur að það sé gert. „Við erum með braut­ar­stjóra sem skipta á milli sín svæð­inu og hver kannar sitt svæði, hvort allt sé til reiðu. Því miður voru svo margir þættir sem komu þarna inn í sem gerðu það að verkum að við náðum ekki að leið­rétta mis­tökin í tæka tíð.“ Hún getur þess að öllum sem taki þátt í hlaup­inu í ár verði hins vegar boðið upp á 20% afslátt fram til 6. júní og þeim sem hafi tekið þátt áður verði veittur 10% afsláttur auka­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ