Hlynur Bæringsson og Jón Arnór Stefánsson, tveir af bestu körfuboltamönnum Íslands undanfarna tvo áratugi, hafa báðir spilað sinn síðasta landsleik eftir að hafa verið samferða í landsliðinu frá árinu 2000. Þótt ferill þeirra og bakgrunnur sé ansi ólíkur eru þeir þó um margt líkir. Báðir brenna þeir fyrir íþróttinni og hafa á henni sterkar skoðanir og báðir hafa þeir komið auga á ringulreiðina sem einkennir íslenskt samfélag eftir að þeir komu heim úr atvinnumennsku.
Mannlíf ræðir við þá félaga í nýjasta tölublaðinu sem kemur út á morgun, föstudag. Þar lýsir Jón Arnór því meðal annars hvernig hann dróst inn í risavaxið svindl bandarísks háskóla sem varð til þess að hann fékk ekki að fara til Bandaríkjanna í nokkur ár og Hlynur segir frá skrautlegu ári í Hollandi.
Mynd / Hallur Karlsson































Athugasemdir