Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sjálfsvígshugleiðingar algengari hjá körlum

Hjálmar Gunnar Sig­mars­son, ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, segir kyn­ferð­is­legt ofbeldi hafa nokkuð svip­aðar afleið­ingar fyrir karla og konur sem verða fyrir því. Hlutfall þeirra sem íhuga sjálfs­víg eftir að hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi sé þó hærra hjá körlum heldur en konum.

Sjálfsvígshugleiðingar algengari hjá körlum
|

Þrír karl­menn sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa verið nauðgað sögðu sögur sínar í nýjasta tölu­blaði Mannlífs, sem kom út á föstu­dag­inn. Þeir voru allir sam­mála um að umræðan um karl­menn sem fórn­ar­lömb nauð­gana væri enn í molum sem ylli því að karlar ótt­ist að stíga fram og segja frá reynslu sinni.

Hjálmar Gunnar Sig­mars­son, ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, vísar í árs­skýrslu Stíga­móta fyrir árið 2017 þegar hann er spurður út í hversu hátt hlut­fall þeirra sem leita til Stíga­móta séu karl­menn. Í skýrsl­unni kemur fram að 361 ein­stak­lingur hafi leitað til Stíga­móta árið 2017, þar af voru 52 karlar. Skýrslan leiðir í ljós að kyn­ferð­is­legt ofbeldi hafi nokkuð svip­aðar afleyð­ingar fyrir konur og karla.

„Í skýrsl­unni kemur fram að karlar og konur nefna svip­aðar afleið­ingar, um eða yfir 80% kvenna og karla nefna skömm, kvíða og dep­urð. Einnig var athygl­is­vert að hærra hlut­fall karla nefnir reiði borið saman við konur eða 70,6% karla sam­an­borið við 66,8% kvenna. Þessar nið­ur­stöður eru í sam­ræmi við nið­ur­stöður ársskýrslu ársins 2016.

Þar kom fram að karlar og konur glíma við svip­aðar afleið­ingar í kjölfar ofbeldis.

Þessar nið­ur­stöður eru einnig í sam­ræmi við rannsókn sem Særún Ómars­dóttir gerði á gögnum Stígamóta frá árunum 2011 til 2013. Þar kom fram að karlar og konur glíma við svip­aðar afleið­ingar í kjölfar ofbeldis. Í rannsókn Særúnar Ómarsdóttur (2014) kom fram að um eða yfir 80% kvenna og karla nefndu dep­urð, skömm og lélega sjálfs­mynd. Einnig kom fram í rann­sókn hennar að karlar nefndu reiði oftar borið saman við konur,“ segir Hjálmar.

Hann vísar þá í töflu sem finna má í skýrsl­unni þar sem afleið­ingar kyn­ferð­is­of­beldis eru skoð­aðar nánar.

Sjálfsvígshugleiðingar algengari hjá körlum

„Athygl­is­vert er að sam­kvæmt töfl­unni nefndi hærra hlut­fall karla sjálfsvígshug­leið­ingar heldur en konur eða 51% þeirra karla sem svör­uðu og 40,3% þeirra kvenna sem svör­uðu. Hærra hlut­fall karla nefndu skömm, ótta, sjálfsvígshug­leið­ingar og hegð­un­ar­erf­ið­leika borið saman við konur,“ segir Hjálmar og bendir á með­fylgj­andi töflu.

„Einnig er athygl­is­vert að hærra hlut­fall karla nefnir að áfengi, önnur vímuefni, fjárhættu­spil, tölvu­leiki, kynlíf og klám sem afleyð­ingar kyn­ferð­is­of­beldis sem hafi skert lífsgæði þeirra borið saman við konur. Þessar nið­ur­stöður eru svip­aðar og fram komu í ársskýrslu áranna 2014 til 2016.“

Skýrsl­una má lesa hérna, en skýrsla fyrir árið 2018 kemur út í mars.

Hjálmar bendir á að und­an­farin ár hafa Stígamót unnið mark­visst að því að gera þjón­ustu fyrir karl­kyns brota­þola sýni­legri og hjálpa fleirum að leita sér hjálpar. Á heima­síðu Stíga­móta er hægt að finna nán­ari upp­lýs­ingar um hvað er í boði, ásamt alls konar fræðslu­efni. Einnig er hægt að hringja í síma 562 6868 til að panta tíma hjá Stíga­mótum. Auk þess er net­spjall á heima­síðu Stíga­móta, þar sem hægt er að koma fram undir dul­nefni.

Sjá einnig: Glímir enn við reið­ina
Sjá einnig: Lifði í stöð­ugum ótta
Sjá einnig: Karlar eiga alltaf að vera til í kyn­líf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ