Sjá umrætt viðtal við Vilhjálm: Segir umræðu um aukna lyfjanotkun Íslendinga byggja á mistúlkun
Í pistli sínum segir Vilhjálmur að svar Lyfjastofnunar byggi á ákveðnum misskilning og talar um „fjölmiðlaólæsi“.
Í pistli sínum segir hann einnig að Embætti landlæknis og Lyfjastofnun mistúlka gögn um lyfjanotkun Íslendinga. Hann segir ólíðandiað stofnanir á borð við Embætti landlæknis og Lyfjastofnun leyfi sér að horfa „svo þröngt á gögn af þessu tagi“.
„Að sömu starfsmenn [starfsmenn Embættis landlæknis og starfsmenn Lyfjastofnunar] fari í framhaldinu í fjölmiðla og láti út úr sér hluti á borð við það sem MBL hefur eftir Mími Arnórssyni er algerlega ótækt,“ skrifar hann og vísar þar í grein mbl.is þar sem Mímir Arnórsson, lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun, segir að „svefnlyf, eins og melótónín, séu ósjaldan notuð sem mótvægi við örvandi áhrifum ADHD-lyfjanna, eins og Concerta.“































Athugasemdir