Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þrautseigja og kærleikur fara vel saman

Leik­skól­inn Hjalli varð þrjá­tíu ára þann 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og það er í raun ótrú­legt að hugsa til þess að þrír ára­tugir séu liðnir síðan Hjalla­stefnan varð til. Á þessum árum hefur hún auð­vitað þró­ast, tekið breyt­ingum og aðlag­ast aðstæðum í sam­fé­lag­inu en í grunn­inn er hug­mynda­fræðin þó í mjög sam­bæri­legri mynd og hún var. Í til­efni afmæl­is­ins var mikið um dýrðir og tók Stein­gerður Stein­ars­dóttir Írisi Helgu Bald­urs­dóttur, skóla­stýru Hjalla, tali vegna þess­ara tíma­móta.

Þrautseigja og kærleikur fara vel saman
Íris Helga Bald­urs­dóttir.|30 ára

Á afmæl­is­dag­inn tók starfs­fólk leik­skól­ans Hjalla sig til og setti saman sögu­sýn­ingu, þar sem hengdar voru upp myndir, minn­ingar og ýmis­legt annað frá árunum þrjá­tíu, í sal og á göngum skól­ans. Afmæl­isvikan var hátíð­leg og við­burða­rík. Fjöl­skyldur Hjalla heim­sóttu skól­ann í fjöl­skyldu­kaffi þar sem börnin sungu, buðu á list­sýn­ingu og léttar veit­ingar.

„Hátíð­leik­inn og gleðin svifu yfir í skól­anum þessa viku og stórir sem smáir tóku þátt í við­burðum vik­unnar,“ segir Íris Helga. „Á afmæl­is­dag­inn sjálfan kom fólk og sam­gladd­ist okkur í Hjalla, skóla­stjórar Hjalla­stefnu­skóla, skóla­stjórar leik­skóla Hafn­ar­fjarðar, fólkið sem vinnur mest með okkur á Skóla- og frí­stunda­sviði Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar, bæj­ar­stjór­inn Rósa Guð­bjarts­dóttir og Þórdís Jóna fram­kvæmda­stýra heiðr­uðu okkur með nær­veru sinni og að sjálf­sögðu frum­kvöð­ull stefn­unnar sjálfrar, hún vin­kona okkar Margrét Pála.“

Hjalla­stefnan er upp­eldis- og skóla­stefna sem rekur fjórtán leik­skóla og þrjá grunn­skóla. Í hverju er hún fólgin, í stuttu máli, og hvað leggið þið mesta áherslu á í upp­eldi barna? „Hjalla­stefnan er kær­leiksmiðuð og skap­andi lýð­ræð­is­stefna þar sem við iðkum jákvæðni og kær­leika jafnt til barna sem og sam­starfs­fólks, Hjalla­stefnan er mann­rækt­ar­stefna þar sem full­orðnir fá einnig tæki­færi til að iðka á sama hátt og börnin,“ segir Íris Helga. „Jafn­rétti stúlkna og drengja skiptir okkur einna mestu máli og þar höfum við kynja­námskrá til að vinna eftir. Þar eru einnig teknir fyrir ein­stak­lings- og félags­legir þættir sem mark­visst er unnið með í starfi með börnum.

Unnið er með litla hópa þar sem hver ein­stak­lingur fær að njóta sín á eigin verð­leikum og unnið er að því að nálg­ast hvert og einn barn eins og það þarf.

Þetta er miklu meira en bara orðin tóm heldur teygjum við okkur langt til að lifa eftir þessum gildum sem ein­kennir allt okkar starf. Leikefni er nokkuð óhefð­bundið í leik­skól­unum, en það er svo­kall­aður opinn efni­viður sem snýr að sköp­un­ar­krafti og ímynd­urn­ar­afli barn­anna fremur en að vera stýr­andi í leik þeirra.“

Hverju hafa þau við­horf og aðferðir sem hún notar breytt í mennta­málum hér á landi? „Við stefnum alltaf að því að finna leiðir sem henta hverju barni í leik og þroska. Við erum öll mis­jöfn og viljum öll fá tæki­færi til að æfa okkur og læra af mis­tökum. Þess vegna höfum við t.d. upp­byggi­leg orð yfir mis­tök og segjum að við rugl­umst og það gangi bara betur næst. Þetta er mark­visst notað og sam­kvæmt rann­sókn sem var unnin af Háskól­anum í Reykja­vík kemur í ljós að börnin okkar hafa meiri seiglu en önnur börn og það er mik­il­vægur eig­in­leiki. Við viljum gefa hverju barni rými til að æfa, end­ur­taka og sleppa tökum af mis­taka­ótta. Við viljum efla börn í að vera sjálf­stæð, hug­rökk og standa með sjálfum sér í leik og starfi,” segir Íris Helga. „Í Hjalla­stefn­unni er, eins og áður sagði, unnið eftir kynja­námskrá. Hún er byggð upp á sex lotum yfir skóla­árið, sem skipt­ast á að þjálfa ein­stak­lings- og félags­lega þætti barn­anna.“

Íris Helga segir að alla daga æfi kenn­arar og börn sig í að fara út fyrir boxið. Þau vilji að hvert barn geti víkkað sitt val, til­finn­inga­lega og áhuga­tengt, án þess að vera stýrt í ein­hverja átt út frá kyni. „Við erum með kynja­skipt starf, en það er ein­göngu verk­færið okkar að blöndun á jafn­rétt­is­grund­velli. Kynja­skipt­ingin er í sjálfu sér ekki mark­mið heldur leiðin að því mark­miði að börn, stúlkur og drengir, hafi frelsi til að vera eins og þau eru. Þar sem áhugi þeirra ræður för en ekki fyr­ir­fram mót­aðar hug­myndir um hvað hæfi þeim út frá kyni.

Aukning á kynj­uðum fötum og leik­föngum er gríð­ar­leg ef eitt­hvað er nefnt, það er búið að setja börn í mót og mót­aðan far­veg út frá kyni strax við fæð­ingu.

Námskrá Hjalla­stefn­unnar hefur notið sívax­andi vel­gengni og virð­ingar und­an­farin ár og hefur fengið ýmis konar við­ur­kenn­ingar vegna jafn­rétt­is­mála. Árið 1996 hlaut Hjalla­stefnan við­ur­kenn­ingu Jafn­rétt­is­ráðs Íslands fyrir sér­stakt átak í jafn­rétt­is­málum og Hjalli hlaut hvatn­ing­ar­verð­laun Jafn­réttis­nefndar Hafn­ar­fjarðar árið 2001. Nú á dög­unum hlaut Hjalla­stefnan svo verð­laun frá Manino og Við­skipta­ráði Íslands fyrir bylt­ing­ar­kenndar stjórn­un­ar­að­ferðir.

Hjalla­stefnan er nokkuð þekkt erlendis og skól­arnir fá til sín mjög marga erlenda gesti á hverju ári auk þess sem Margrét Pála og starfs­fólk Hjalla­stefn­unnar hafa verið fengin til að tala á ráð­stefnum víðs vegar um heim­inn. „Við erum henni óend­an­lega þakk­lát fyrir kjarkinn, þraut­seigj­una og óbilandi trú og stað­festu í að gera heim­inn betri fyrir okkur öll.“

„Það er eins og með allt, skoð­anir fólks eru mis­jafnar og það er í góðu lagi. Það þarf ekki öllum að líka vel við allt, það er það dásam­lega við að hafa val í skóla­kerf­inu eins og á öðrum stöðum,“ segir Íris Helga aðspurð hvort skoð­anir fólks hafi áhrif á starfið.

Íris Helga segir þau vera lánsöm að hafa stóran hóp fjöl­skyldna í þeirra sam­fé­lagi og mark­mið þeirra er að koma til móts við hverja ein­ustu fjöl­skyldu eins og þau þurfa. Hvernig sjáið þið fram­tíð­ina fyrir ykkur? „Við lítum svo sann­ar­lega björtum augum til fram­tíð­ar­innar og hlökkum til hennar, enda ekki annað hægt þegar börn eru ann­ars vegar. Það eru for­rétt­indi að vera í starfi þar sem kjarn­inn í öllu gengur út á að gera lífið betra og kær­leiks­rík­ara frá degi til dags,“ segir Íris Helga að lokum.

Texti / Stein­gerður Stein­ars­dóttir

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ